„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vilja bjarga persónuafslættinum: „Aðför að lífeyrisþegum sem flúið hafa fátækt á Íslandi“

Vilja bjarga persónuafslættinum: „Aðför að lífeyrisþegum sem flúið hafa fátækt á Íslandi“
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins

Flokkur fólks­ins segja yfir­völd hafa laumað laga­band­ormi inn rétt fyrir þing­lok síð­asta árs, sem svipti þús­undum líf­eyr­is­þega sem búa erlendis, lög­bundnum per­sónu­afl­sætti. Það sé aðför að líf­eyr­is­þegum sem flúið hafa fátækt á Íslandi.

Frétta­til­kynn­ing barst fjöl­miðlum í morgun frá Flokki fólks­ins þar sem farið er yfir hug­myndir rík­is­stjórn­ar­innar um að hafa af líf­eyr­is­þegum sem búa erlendis, per­sónu­af­slátt­inn sem nemur allt að 65.000 krónum á mán­uði. Flokk­ur­inn náði fyrr í vetur að fresta gild­is­töku ákvæð­is­ins um eitt ár og hafa nú lagt fram frum­varp sem fellir laga­breyt­ing­una algjör­lega úr gildi.

Frétta­til­kynn­ing­una má lesa í heild sinni hér:

Aðför að líf­eyr­is­þegum sem flúið hafa fátækt á Íslandi

Rétt fyrir þing­lok síð­asta árs laum­uðu stjórn­völd inn í laga­band­orm um gistin­átta­skatt o.fl., ákvæði sem sviptir þús­undir líf­eyr­is­þega búsetta erlendis lög­bundnum per­sónu­af­slætti, sem nemur nú 65.000 krónum á mán­uði.

Hér er um að ræða allt að 30 pró­sent tekju­skerð­ingu fyrir hóp sem hefur í mörgum til­vikum neyðst til að flytja af landi brott vegna sárrar fátæktar hér­lendis. Þingmenn Flokks fólks­ins vöktu athygli á þess­ari aðför fyrr í vetur og náðu að fresta gild­is­töku ákvæð­is­ins um eitt ár, enda var það illa ígrundað og engin grein­ing lá fyrir um áhrif þess.

Til að koma í veg fyrir að þetta ákvæði taki gildi um næstu ára­mót hafa þing­menn Flokks fólks­ins nú lagt fram frum­varp sem fellir laga­breyt­ing­una úr gildi. Það er óboð­legt að stjórn­völd séu enn að reyna að hrifsa per­sónu­af­slátt af blá­fá­tæku fólki sem hefur kosið að flýja land með fót­unum, þrátt fyrir að það standi í skilum með alla skatta og skyldur á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífeyrismál

Sjómenn fengu góðar fréttir eftir áramót – Eftirlaun hækka um 630 þúsund
InnlentLífeyrismál

Sjómenn fengu góðar fréttir eftir ára­mót – Eft­ir­laun hækka um 630 þús­und

Í jan­úar bár­ust sjó­mönnum góðar fréttir en líf­eyr­is­greiðslur til þeirra hækk­uðu umtals­vert. Hækkun varð í jan­úar á líf­eyr­is­greiðslum hjá flestum líf­eyr­is­sjóðum lands­ins en mis­mikið þó. Til að mynda fær mann­eskja sem náð hefur eft­ir­launa­aldri nú 7,18 pró­sent hærri líf­eyri en áður, sé hann að fá greitt út úr Líf­eyr­ir­sjóði Verzlunarmanna en 10,5 pró­sent hærri líf­eyri sé hann sjó­maður sem greiðir...
Sigurður fyrrum bæjarstjóri: „Eldri konur eiga þetta ekki skilið!“
InnlentLífeyrismál

Sigurður fyrrum bæj­ar­stjóri: „Eldri konur eiga þetta ekki skilið!“

Sigurður var einn vin­sæl­asti Mogga­blogg­ari lands­ins og umdeildur sem slíkur. „Það sjá allir hversu mikið órétt­læti þetta er,“ segir Sigurður Jónsson, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garði, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. Þar skrifar hann um það órétt­læti sem hefur verið við lýði hér á landi í líf­eyr­is­málum und­an­farna ára­tugi. Sigurður bendir á að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna hafi nú ákveðið að hækka líf­eyri...
Síma- og greiðslukerfi TR hrunið: Öryrkjar bíða eftir launum sínum
InnlentLífeyrismál

Síma- og greiðslu­kerfi TR hrunið: Öryrkjar bíða eftir launum sínum

Símkerfi Trygg­ing­ar­stofn­unar er sprungið og sama gildir um vef­síð­una, en fjöl­margir líf­eyr­is­þegar bíða nú milli vonar og ótta eftir mán­að­ar­launum sínum. Á Facebook síðu Trygg­inga­stofn­unnar má lesa eft­ir­far­andi: Síma- og greiðslu­kerfi TR er hrunið vegna álags. Þessi má lesa á síðu TR á Facebook í dag Fáeinir hafa ritað athuga­semdir inn á Facebook síðu stofn­un­ar­innar og bendir meðal ann­ars einn...
Guðrún í Kjörís með eigur launþega
InnlentLífeyrismál

Guðrún í Kjörís með eigur laun­þega

Guðrun Haf­steins­dóttir, einn eig­enda Kjöríss, sækir mikil völd í líf­eyr­is­sjóð­ina þar sem hún deilir og drottnar með eigur almennra laun­þega, meðal ann­ars sem vara­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna. Ákveðinn hópur atvinnu­rek­enda með Guðrúnu í önd­vegi hefur náð gríð­ar­legum völdum með því að koma sér inn í stjórnir sjóð­anna og það kerfi sem fer með eig­enda­vald á líf­eyri almenn­ings. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður...
„Lífeyrissjóðurinn hélt ég væri dauður“
InnlentLífeyrismál

„Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hélt ég væri dauður“

Guðni Már Henn­ings­son, líf­eyr­is­þegi og fyrrum útvarps­maður, er ekki par hrif­inn af líf­eyr­is­sjóði sínum þar sem honum barst ekki greiðsla þaðan um nýliðin mán­að­ar­mót. Ástæðuna telur hann vera þá að sjóð­ur­inn hafi álitið hann lát­inn. „Einn líf­eyr­i­s­jóður borg­aði mér ekki núna um mán­aða­mótin. Þau héldu að ég væri dauður og hefði ekk­ert með pen­inga að gera í himna­ríki, hvað þá...
Segja ásakanir Ragnars Þórs ósannar og íhuga réttarstöðu sína
Innlent

Segja ásak­anir Ragnars Þórs ósannar og íhuga rétt­ar­stöðu sína

Fram­kvæmda­stjóri Sam­taka at­vinnu­lífs­ins og for­stöðu­maður hjá sam­tök­un­um segja ásak­an­ir for­manns VR á hend­ur sér ósann­ar. Fara þeir fram á að hann dragi þær til­baka og biðji alla hlut­að­eig­andi afsök­unar á þeim. Annars sé óhjá­kvæmi­legt að þau sem hafa orðið fyrir „órök­studdum dylgjum“ hans íhugi rétt­ar­stöðu sína. „Það er sorg­leg stað­reynd og um leið umhugs­un­ar­efni fyrir alla sem styðja opna og...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins