„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Öryrkjabandalagið leiðréttir misskilning: „Samtökin eiga enga beina aðkomu að frumvarpinu“

Öryrkjabandalagið leiðréttir misskilning: „Samtökin eiga enga beina aðkomu að frumvarpinu“
Frá aðal­fundi ÖBÍ rétt­inda­sam­taka í októ­ber 2023. Nýkjör­inn for­maður Alma Ýr Ing­ólfs­dóttir ásamt hluta af stjórn sam­tak­anna. Mynd: SILJA

Öryrkja­banda­lag Íslands áréttar að sam­tökin hafi ekki verið með í ráðum við gerð frum­varps til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna end­ur­skoð­unar örorku­líf­eyr­is­kerfis almanna­trygg­inga.

Stjórn ÖBÍ sendi rétt í þessu frá sér ályktun vegna þess mis­skiln­ings sem rétt­inda­sam­tökin segja að sé í gangi varð­andi nýtt frum­varp sem varðar end­ur­skoðun á örorku­líf­eyr­is­kerfis almanna­trygg­inga. „Sá mis­skiln­ingur virð­ist vera uppi að vinnan sem snýr að frum­varp­inu og end­ur­spegl­ast í efni þess, sé komin frá ÖBÍ. ÖBÍ var boðið á upp­lýs­inga­fundi ráðu­neyt­is­ins og kom þar á fram­færi áhyggjum sínum og til­lögum ásamt því að skila inn ítar­legri umsögn. ÖBÍ átti enga frek­ari aðkomu að gerð frum­varps­ins,“ segir meðal ann­ars í álykt­un­inni.

Þá seg­ist ÖBÍ hafa kallað eftir ein­földun kerf­is­ins og hækkur líf­eyr­is­greiðsla í fjölda ára og seg­ist hlynnt þeim kerf­is­breyt­ingum „s

em eru til hags­bóta fyrir það fólk sem reiðir sig á örorku­líf­eyr­is­kerfi almanna­trygg­inga.“

Segja sam­tökin enn­fremur að Alþingi beri ábyrgð þegar kemur að breyttu örorku­líf­eyr­is­kerfi almanna­trygg­inga og að um sé að ræða líf og lífs­kjör þús­unda ein­stak­linga.

Að end­ingu hvetur stjórnin stjörn­völd til þessa að virðar skuld­bind­ingar þær sem þau hafa und­ir­geng­ist sam­kvæmt samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna.

„Að lokum hvetur stjórn ÖBÍ stjórn­völd til þess að virða þær skuld­bind­ingar sem þau hafa und­ir­geng­ist skv. samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks og við­hafa að raun­veru­legt sam­ráð við fatlað fólk og hags­muna­sam­tök þess.“

Hér má lesa álykt­un­ina í heild sinni:

Ályktun frá stjórn ÖBÍ réttindasamtaka

Stjórn ÖBÍ rétt­inda­sam­taka vill koma því á fram­færi að sam­tökin eiga enga beina aðkomu að þeirri vinnu sem frum­varp til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna end­ur­skoð­unar örorku­líf­eyr­is­kerfis almanna­trygg­inga byggir á.

Sá mis­skiln­ingur virð­ist vera uppi að vinnan sem snýr að frum­varp­inu og end­ur­spegl­ast í efni þess, sé komin frá ÖBÍ. ÖBÍ var boðið á upp­lýs­inga­fundi ráðu­neyt­is­ins og kom þar á fram­færi áhyggjum sínum og til­lögum ásamt því að skila inn ítar­legri umsögn. ÖBÍ átti enga frek­ari aðkomu að gerð frum­varps­ins.

ÖBÍ hefur í fjölda ára kallað eftir ein­földun örorku­líf­eyr­is­kerfis almanna­trygg­inga og hækkun líf­eyr­is­greiðslna. ÖBÍ er hlynnt þeim kerf­is­breyt­ingum sem eru til hags­bóta fyrir það fólk sem reiðir sig á örorku­líf­eyr­is­kerfi almanna­trygg­inga.

Alþingi ber ábyrgð þegar kemur að breyttu örorku­líf­eyr­is­kerfi almanna­trygg­inga. Um er að ræða líf og lífs­kjör þús­unda ein­stak­linga sem eiga allt sitt undir því að breyt­ingar sem kunna að verða gerðar tryggi mann­sæm­andi fram­færslu og tæki­færi til þátt­töku í sam­fé­lag­inu til jafns við ófatlað fólk. ÖBÍ gerir þá kröfu að vandað verði til verka við með­ferð þessa máls sem varðar með svo afdrifa­ríkum hætti grund­vall­ar­hags­muni meg­in­þorra fatl­aðs fólks á Íslandi.

Að lokum hvetur stjórn ÖBÍ stjórn­völd til þess að virða þær skuld­bind­ingar sem þau hafa und­ir­geng­ist skv. samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks og við­hafa að raun­veru­legt sam­ráð við fatlað fólk og hags­muna­sam­tök þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Réttindabarátta

Illugi minnist móður sinnar: „Þá tókst henni að bæta svolítið veröldina. Já, bara heilmikið“
Innlent

Illugi minn­ist móður sinnar: „Þá tókst henni að bæta svo­lítið ver­öld­ina. Já, bara heil­mikið“

„Mamma hefði orðið 84 ára í dag en hún dó úr lungna­krabba­meini fyrir sjö árum af því þó hún væri ham­hleypa til flestra verka þá tókst henni aldrei að hætta að reykja. Í dag langar mig að minn­ast mömmu sem fram­kvæmda­mann­eskju í þágu kvenna og ein­stæðra for­eldra.“ Þannig hefst Facebook-færsla Illuga Jök­uls­sonar, rit­höf­unds og fjöl­miðla­manns en þar minn­ist hann móður...
Þuríður fór á fimmta Evrópuþings fatlaðs fólks: „Frjáls för er réttur, ekki óeðlileg krafa“
Innlent

Þuríður fór á fimmta Evr­ópu­þings fatl­aðs fólks: „Frjáls för er réttur, ekki óeðli­leg krafa“

Fimmta Evr­ópu­þing fatl­aðs fólks var haldið í vik­unni en 600 full­trúar fatl­aðs fólks frá öllum aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins mættu til Brussel. Þar voru rétt­indi fatl­aðra innan Evr­ópu­sam­bands­ins rædd. Eft­ir­far­andi texta er að finna um fund­inn á vef Öryrkja­banda­lagi Íslands: 600 full­trúar fatl­aðs fólks frá öllum aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins mætt­ust í sal Evr­ópu­þings­ins í Brussel í vik­unni á fimmta Evr­ópu­þingi fatl­aðs fólks til...
Kvennafundur þar sem ályktanir voru samþykktar að Ísland gengi úr NATO
InnlentRéttindabarátta

Kvenna­fundur þar sem álykt­anir voru sam­þykktar að Ísland gengi úr NATO

Alþjóð­legur bar­áttu­dagur kvenna er hald­inn hátíð­legur í dag, 8. mars og að því til­efni efndu Kaup­höllin (e. Nasdaq Iceland) í sam­starfi við UN Women á Íslandi, FKA – Félag kvenna í atvinnu­líf­inu og Samtök atvinnu­lífs­ins til við­burðar í Hörpu í gær þar sem opn­un­ar­bjöllu var hringt fyrir jafn­rétti. Kaup­hallir víða um heim hringja inn bjöllu fyrir jafn­rétti í þess­ari viku...
„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“
Innlent

„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“

„Hvernig held­urðu í heil­indi þín sem femínisti, þegar það er auð­veld­ara að skil­greina sig opin­ber­lega sem femínista heldur en að gera það ekki?“ var spurn­ing sem níger­íski rit­höf­und­ur­inn og bar­áttu­konan Chimamanda Ngozi Adichie fékk, í opnum umræðum eftir fyr­ir­lestur sinn í Háskóla­bíói á föstu­dag­inn. „Virki­lega? Finnst þér í alvöru auð­veld­ara að skil­greina þig sem femínista heldur en að gera það...
Bára býður sig fram til alþingis: „Réttindabarátta fatlaðs fólks er ekkert annað en sjálfsvörn“
InnlentRéttindabarátta

Bára býður sig fram til alþingis: „Rétt­inda­bar­átta fatl­aðs fólks er ekk­ert annað en sjálfs­vörn“

Bára Hall­dórs­dóttir varð þjóð­hetja í augum lang­flestra Íslend­inga þegar afhjúpaði við­bjóðs­lega og afar sær­andi umræðum þing­manna Mið­flokks­ins á Klaust­urs­bar fyrir nokkrum miss­erum síðan. Þar varp­aði Bára ljósi á hvernig þing­menn Mið­flokks­ins ræddu sín á milli í nokkuð mik­illi áfeng­is­vímu um hrossa­kaup á emb­ætt­is­stöðum; töl­uðu með nið­ur­lægj­andi hætti um hinsegin fólk, konur og fatl­aða. Sjálf er Bára er fatl­aður hinsegin aktí­visti,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins