„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jón Þorsteinsson stórsöngvari er látinn

Jón Þorsteinsson stórsöngvari er látinn

Jón Þor­steins­son, söngv­ari og söng­kenn­ari, lést á Sjúkra­hús­inu á Akureyri aðfara­nótt 4. maí eftir stutta sjúk­dóms­legu. Jón var 72 ára.

Jón var sonur hjón­anna Þor­steins Jóns­sonar og Hólm­fríðar Jak­obs­dóttur en hann fædd­ist 11. októ­ber 1951 í Ólafs­firði og ólst þar upp.

Í Noregi stund­aði hann ungur hjúkr­un­ar­nám og hóf söng­nám í Ósló 1974. Eftir það fór hann til Árósa og nam söng við Det Jyske Musikkonservatori­um. Lá leiðin síðan til Modena á Ítalíu þar sem hann stund­aði nám hjá hinum virta söng­kenn­ara Arrigo Pola og var Jón fyrstur Íslend­inga til að syngja í óperukór Wagner-hátíð­ar­leik­anna í Bayreuth en það gerði hann um tveggja ára skeið.

Árið 1980 flutti Jón til Hollands þar sem hann réðst til Rík­is­óp­er­unnar í Amster­dam en þar starf­aði hann í rúman ára­tug. Söng hann þar um 50 ein­söngs­hlut­verk og vakti athygli fyrir snjalla túlkun sína á tón­list sam­tímatón­skálda. Ári eftir flutn­ing­inn, 1981, vann Jón fyrstu verð­laun í keppni Kon­ung­lega kirkju­tón­list­ar­sam­bands­ins í Hollandi. Eftir það beindi hann áhuga sínum og kröfum á meira mæli að sígildri kirkju­tón­list og gat hann sér frægð­ar­orð á meg­in­landi Evrópu fyrir túlkun sína á trú­ar­legri tón­list.

Síðustu þrjá­tíu árin kenndi Jón söng við hina ýmsu tón­list­ar­skóla á Íslandi, sem og í Tón­list­ar­há­skól­anum í Utrecht þar sem þjálfur og vel­ferð ungra söngv­ara af ólíku þjóð­erni átti hug hans allan, eins og það er orðað í and­láts­frétt mbl.is.

Eft­ir­lif­andi eig­inmaður Jóns er Ricar­do Bat­i­sta da Silva.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins