„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Karl með yfirvararskegg herjar á börn í Hafnarfirði:„Fólk slegið og óöruggt að senda börnin ein út“

Karl með yfirvararskegg herjar á börn í Hafnarfirði:„Fólk slegið og óöruggt að senda börnin ein út“
Hafn­ar­fjörður

For­eldrar í Norðurbæ Hafn­ar­fjarðar eru skelk­aðir eftir að karl­maður veitt­ist að og elti börn á röndum. Maðurinn hefur ekki náðst.

Móðir nokkur sagði frá því á hverfa­síðu Norð­ur­bæjar á Facebook fyrir sex dögum, að níu ára sonur hennar hafi verið eltur af karl­manni á leið sinni á Víði­staða­tún. Hafi mað­ur­inn náð að rífa í vesti drengs­ins, sem varð til þess að dreng­ur­inn fór úr vest­inu, reif það af honum aftur og hljóp á hoppu­belg­inn þar sem vinur hans beið. Karl­mað­ur­inn lét það ekki duga heldur elti dreng­ina svo hálfa leið heim.

Færsluna má lesa hér:

„Sonur minn 9 ára var á leið­inni á Víði­staða­tún fyrir ca klst og var ca á göng­stígnum hjá rað­hús­unum sem eru í bygg­ingu, hjá skáta­heim­il­inu, þegar maður var allt í einu kom­inn fyrir aftan hann. Maðurinn labb­aði svo hratt að honum og reif fast í vestið sem hann var î þannig að hann fór úr því. Sonur minn náði að rífa af honum vestið og hljóp á hoppu­belg­inn til vin­ars síns. Maðurinn elti hann þangað og elti þá svo ca hálfa leið heim líka.

Hann var ca 30-40 ára, með svart hár og yfir­vara­skegg og ekki íslenskur hélt hann, aðeins dekkri á hör­und. Var í app­el­sínu gulri úlpu.Við erum búin að láta lögg­una vita ásamt því að leita um allt hverfi en fundum hann ekki.Vildi bara láta vita svo aðrir geti verið á varð­bergi og rætt við sín börn og endi­lega látið lög­regl­una vita ef þið sjáið ein­hvern sem passar við lýs­ing­una.

Endilega deilið þessu lika sem víð­ast, inn á aðrar hverf­is­síður bæj­ar­ins eða bekkj­ar­síður hjá krökk­unum ykkar.“

Önnur móðir skrif­aði í gær frá reynslu barns­ins síns sem lenti lík­lega í sama manni:

„Hugs­an­lega sami mað­ur­inn, í app­el­sínugulri úlpu, sem hefur elt barn í síð­ustu viku, réðst á vin sonar míns og hljóp á eftir þeim. Reif í úlpu­hett­una og vildi ekki sleppa m.a..Þetta var rétt hjá Engi­dals­skóla, svona frí­stunda megin, í „skóg­inum“ þar.

Það er búið að hringja og til­kynna til lög­reglu.“

Enn annar for­eldri hafði sömu sögu að segja en faðir skrif­aði eft­ir­far­andi athuga­semd við þessa færslu: „Alveg lík­legt að þetta sé sami aðil­inn og réðst á minn dreng. Hann var í app­el­sínugulri peysu, dökkur með yfir­vara­skegg. Mögulega eru örygg­is­mynda­vélar í nálægð­inni endi­lega allir í þessu hverfi að kíkja á hvað hefur verið tekið upp sem mögu­lega gæti hjálpað til við að finna þennan væskil.“

Móðirin sem skrif­aði fyrstu færsl­una sagði í sam­tali við Mannlíf að málið væri „mjög óhugna­legt og fólk slegið, óör­uggt að senda börnin ein út í hverf­inu“.

Lög­reglan í Hafn­ar­firði neit­aði að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins