„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Össur Skarphéðinsson tætir stuðningsmann Jóns Gnarr í sig: „Ættu að leiðbeina honum um mannasiði“

Össur Skarphéðinsson tætir stuðningsmann Jóns Gnarr í sig: „Ættu að leiðbeina honum um mannasiði“
Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra.

Mikil harka virð­ist vera fær­ast í kosn­inga­bar­átt­una en stuðn­ings­menn for­seta­fram­bjóð­enda skrifa eins marga pistla og greinar og þeir kom­ast upp með og eru þeir mis­mál­efna­legir að mati sumra. Gísli Hvanndal Jak­obs­son, sem er stuðn­ings­maður Jóns Gnarr og að eigin sögn lækna­mið­ill og and­legur leið­togi, birti í gær pist­ill á heima­síðu Frétta­tím­ans þar sem hann gagn­rýnir Katrínu Jak­obs­dóttur harð­lega og segir hana vera nýta and­lát föður síns til að fá sam­úð­ar­at­kvæði en móðir Gísla lést úr krabba­meini í fyrra.

„Auðvitað er þetta sorg­legt, ég veit það af eigin raun og Katrín Jak­obs­dóttir hefur alla mína samúð. En svona leikur til að fá atkvæði er bara ekki rétt og ekki sæm­andi nýjum for­seta sem stökk úr ráð­herra­stóli til þess að verða í stærsta emb­ætti á Íslandi vegna eigin met­orða­girndar.

Það sjá allir hvað Katrín breyt­ist í fram­boð­inu með sitt gervi­bros og tugi millj­óna ef ekki meira til að vekja athygli á sér. Til að kaupa aug­lýs­ingar, skoð­ana­kann­anir, ferð­ast í lúxus og gera hvað sem er til að fá atkvæði.

Myndir þú kjós­andi góður nota látna ein­stak­linga úr fjöl­skyldu þinni til að fá atkvæði? Til að vekja athygli á þér?“ skrifar Gísli en hann hefur einnig haldið því fram að íslenskir fjöl­miðlar séu að snið­ganga Jón Gnarr þrátt fyrir að öll töl­fræði­gögn sýni hið gagn­stæða. 

Subbulegur pistill

Þessi pist­ill virð­ist hafa farið mjög í taug­arnar á Össuri Skarp­héð­ins­syni, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands, en hann svarar Gísla í athuga­semda­kerfi Frétta­tímanns.

„Á fram­bjóð­andi að ljúga ef hún/hann er spurð af blaða­manni um áföll í lífi sínu í við­tali sem er tekið til að skyggn­ast inn í sál­arkirnur við­kom­andi? Pistill þinn er óvana­lega ræt­inn af manni, sem hefur atvinnu af því að hugga og lækna. Talaðu fyrir verð­leikum fram­bjóð­anda þíns í stað þess að níða skó­inn af öðrum. Mér sýn­ist hann ekki veita af því en það er vel skilj­an­legt ef and­legir ráð­gjafar hans eru ríg­fastir í nei­kvæðni. Ves­al­ings Gnarr að hafa þig í sínu liði!“

Undir þetta tekur maður að nafni Leo og segir pistil­inn vera ansi ómerki­legan. „Nákvæm­lega. Subbu­legur. Þeir sem hann er í sam­bandi við fyrir handan ættu að leið­beina honum um mannasiði,“ svarar Össur honum Leo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins