„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lögreglumenn mótmæla niðurskurði yfirvalda: „Getur ekki annað en endað illa fyrir samfélagið allt“

Lög­reglu­menn mót­mæla harð­lega fyr­ir­ætl­uðum nið­ur­skurði stjórn­valda til lög­gæslu­mála.

Stjórn Lands­sam­bands lög­reglu­manna sendi rétt í þessu frá sér ályktun þar sem fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda um nið­ur­skurð í lög­gæslu­málum, er harð­lega mót­mælt.

Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði á dög­unum að nið­ur­skurð­ur­inn ætti ekki að koma niður á störf lög­regl­unnar. „Ég skil á vissan hátt áhyggjur þeirra en ég ætla að benda á það í fjár­mála­á­ætlun að þá er 60 milljón króna nið­ur­skurður hjá dóm­stóla­sýsl­unni á fjög­urra ára tíma­bili. Þannig að ég bind nú vonir við að þau ættu að geta náð því í starf­semi sinni,“ segir Guðrún í við­tali á RÚV.

Í álykt­un­inni segir að sú skerð­ing á fjár­fram­lögum sem boðuð sé til mála­flokks lög­gæslu, geri, að mati lög­reglu­manna, lög­regl­unni erfitt fyrir að ann­ast lög­bundin störf sín, auk þess sem álag á ein­staka lög­reglu­menn muni aukast til muna. Þar kemur einnig fram að þær hug­myndir að lög­gæsla og þjón­usta muni ekki skerð­ast við nið­ur­skurð­inn, séu „draum­órar“. „Sífelldur nið­ur­skurður til lög­gæslu getur ekki annað en endað illa fyrir sam­fé­lagið allt,“ segir orð­rétt í álykt­un­inni.

Aukreitis er kvartað yfir hús­næð­is­málum í álykt­un­inni og þar sagt ríkja „ófremd­ar­á­stand“. Að lokum hvetur stjórnin yfir­völd til þess að „gera betur“ og falla frá fyr­ir­hug­uðum nið­ur­skurði og bæta úr hús­næð­is­málum lög­regl­unnar.

Hér má lesa álykt­un­ina í heild sinni: 

ÁLYKTUN STJÓRNAR LANDSSAMBANDS LÖGREGLUMANNA 

Stjórn Lands­sam­bands lög­reglu­manna mót­mælir harð­lega fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda um nið­ur­skurð til lög­gæslu­mála sem boð­aður er í fjár­mála­á­ætlun 2025-2029 og harmar þá stöðu sem uppi er í hús­næð­is­málum lög­regl­unnar á Íslandi. 

Lands­sam­band Lög­reglu­manna mót­mælir harð­lega þeim nið­ur­skurði til lög­gæslu­mála sem boð­aður er í fjár­mála­á­ætlun 2025-2029. Að mati lög­reglu­manna er ljóst að boðuð skerð­ing á fjár­fram­lögum til mála­flokks lög­gæslu gerir lög­regl­unni erfitt fyrir að ann­ast lög­bundin verk­efni sín auk þess sem álag á ein­staka lög­reglu­menn mun aukast mikið.

Löggæsla er ein af grunn­stoðum sam­fé­lags­ins. Það er stað­reynd að hlut­falls­lega hefur lög­reglu­mönnum fækkað mikið und­an­farna ára­tugi í sam­an­burði við fjölgun íbúa og ferða­manna á Íslandi. Verkefni lög­regl­unnar hafa á þessum tíma orðið bæði flókn­ari og mann­afls­frek­ari en stjórn­völd telja ekki ástæðu til þess að bæta í heldur skera niður. Slík skila­boð yfir­valda til lög­reglu­manna eru ömur­leg á sama tíma og stéttin á í kjara­samn­ings­við­ræðum við samn­inga­nefnd rík­is­ins. Að mati Lands­sam­bands lög­reglu­manna eru það draum­órar að lög­gæsla og þjón­usta muni ekki skerð­ast nái fyr­ir­ætl­anir sem fjár­mála­á­ætlun ber með sér fram að ganga. Sífelldur nið­ur­skurður til lög­gæslu getur ekki annað en endað illa fyrir sam­fé­lagið allt. 

Þá hefur um langa hríð verið uppi ófremd­ar­á­stand í hús­næð­is­málum lög­reglu sem brýnt er að tekið verði á af festu. Nýverið var áformum um nýtt hús­næði við­bragðs­að­ila á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frestað sem eru mikil von­brigði fyrir lög­reglu­menn þar sem starf­semi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, starf­semi stjórn­stöðvar almanna­varna og fjar­skipta­mið­stöðvar lög­regl­unnar, býr við óvið­un­andi hús­næð­is­kost. Þá liggur fyrir að heilt lög­reglu­lið á Suð­ur­nesjum hefur verið í miklum vand­ræðum með hús­næð­is­mál um all­langa hríð vegna myglu­skemmda á lög­reglu­stöð. Þá er einnig slæm staða með hús­næð­is­mál lög­reglu á lands­byggð­inni, m.a. á Vest­fjörðum og Suð­ur­landi. Miðað við boð­aðan nið­ur­skurð sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun verður ekki séð að vand­ræði með hús­næð­is­mál lög­reglu verði leyst á kom­andi árum, sem er að mati Lands­sam­bands lög­reglu­manna óvið­un­andi og felur í sér for­gangs­röðun sem eru mikil von­brigði. 

Stjórn Lands­sam­bands lög­reglu­manna hvetur stjórn­völd til að gera betur, falla frá boð­uðum nið­ur­skurði til mála­flokks­ins og bæta úr hús­næð­is­málum og starfs­að­stöðu lög­regl­unnar á Íslandi. 

Reykja­vík 22. maí 2024

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnvöld

Heimildin hafnar ásökunum Jóns Gunnarssonar: „Kom að engu leyti að gerð upptakanna“
Innlentstjórnvöld

Heim­ildin hafnar ásök­unum Jóns Gunn­ars­sonar: „Kom að engu leyti að gerð upp­tak­anna“

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri á Heim­ild­inni sendi rétt í þessu frá sér yfir­lýs­ingu vegna ummæla Jóns Gunn­ars­sonar um blaða­menn Heim­ild­ar­innar. Neitar hún þar alfarið að Heim­ildin hafi komið að „blekk­ing­ar­leik“ og „njósnum“ sem Jón lýsti bæði á Facebook og á Bylgj­unni í morgun. Segir Ingi­björg að upp­tökur af einka­sam­tali sonar Jóns við hinn sviss­neska „fjár­festi“ hafa verið í dreif­ingu og...
Samstöðufundur fyrir Yazan boðaður í fyrramálið: „Ofbeldi gegn börnum er aldrei boðlegt“
Innlent

Sam­stöðu­fundur fyrir Yazan boð­aður í fyrra­málið: „Ofbeldi gegn börnum er aldrei boð­legt“

Boðað hefur verið til sam­stöðu­fundar fyrir utan rík­is­stjórn­ar­fund í fyrra­málið. Aðgerð­ar­sinnar hafa boðað til sam­stöðu­fundar fyrir Yazan Tamimi í fyrra­málið klukkan 8:15. Safnast á fyrir framan Hverf­is­götu 4 þar sem rík­is­stjórnin hyggst funda. Eins og alþjóð veit var gerð til­raun til að vísa hinum 11 ára Yazim úr landi í nótt en á síð­ustu stundu var ákveðið að fresta því,...
Helga Vala fordæmir vinnubrögð stjórnvalda: „Lífsógnandi veikindi eru engin fyrirstaða mannvonsku“
Innlentstjórnvöld

Helga Vala for­dæmir vinnu­brögð stjórn­valda: „Lífsógn­andi veik­indi eru engin fyr­ir­staða mann­vonsku“

Helga Vala Helga­dóttir for­dæmir vinnu­brögð íslenskra yfir­völd í máli Yazan Tamimi. Lög­mað­ur­inn og fyrrum þing­konan Helga Vala Helga­dóttir er ævareið vegna frétt­anna af til­raun íslenskra yfir­valda til að senda hinn 11 ára gamla Yazan Tamimi úr landi í morgun. „Rétt undir mið­nætti var lög­regla send í Rjóðrið, grið­ar­stað lang­veikra barna, að beiðni íslenskra stjórn­valda til að vekja þennan unga dreng,...
Lögreglan sótti Yazan á Barnaspítalann í nótt – Mótmæli boðuð á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Lög­reglan sótti Yazan á Barna­spít­al­ann í nótt – Mótmæli boðuð á Kefla­vík­ur­flug­velli

Lög­reglan sótti Yazan Tamimi af Barna­spít­al­anum rétt í þessu og ætlar sér að brott­vísa honum í fyrra­málð til Spánar. Mótmæli hafa verið boðuð. Samtökin No Borders Iceland boða mót­mæli á Kefla­vík­ur­flug­velli í nótt vegna fregna af því að lög­reglan hafi komið inn á Barna­spít­al­ann í nótt og sótt þar Yazan Tamimi, 11 ára dreng á flótta frá Palest­ínu. Rík­is­stjórn Bjarna...
Viðbragðshópur vegna kuldatíðar settur á laggirnar – Kaltjón á ræktarsvæðum verulegt
Landið

Við­bragðs­hópur vegna kulda­tíðar settur á lagg­irnar – Kaltjón á rækt­ar­svæðum veru­legt

Við­bragðs­hópur á vegum stjórn­valda hefur verið settur á lagg­irnar vegna þeirra erf­ið­leika sem kulda­tíðin und­an­farið hefur valdið. Á vef Stjórn­ar­ráðs­ins er sagt frá því að við­bragðs­hópur hafi verið skip­aður til að bregð­ast við þeim erf­ið­leikum sem kulda­tíðin hefur valdið víða í sveitum und­an­farnar vikur. Í hópnum sitja full­trúar mat­væla- og inn­við­a­ráðu­neyta, Bænda­sam­tak­anna, Ráð­gjafa­mið­stöðvar land­bún­að­ar­ins, Almanna­varna og lög­reglu­emb­ætt­anna á Norð­ur­landi vestra...
Segir flóttafólki haldið í limbói á Íslandi: „Þetta fólk gæti verið í vinnu og vill ekkert frekar“
Innlent

Segir flótta­fólki haldið í lim­bói á Íslandi: „Þetta fólk gæti verið í vinnu og vill ekk­ert frekar“

Eva Hauks­dóttir lög­maður bendir á rök­leysi Útlend­inga­stofn­unar í mál­efnum flótta­fólks sem stofn­unin vill senda úr landi. Á dög­unum kom frétt hjá Vísi þar sem sagt var frá því að um 200 ein­stak­lingar bíði eftir að vera flutt úr landi í þving­uðum brott­flutn­ingi. Eva Hauks­dóttir lög­maður skrif­aði Facebook-færslu og hlekkj­aði á frétt Vísis en í færsl­unni fer hún yfir stað­reynd­ina í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins