„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Valgerður er eina atvinnukonan í boxi: „Verður þú að hafa stjórn á tilfinningunum þínum í hringnum“

Valgerður er eina atvinnukonan í boxi: „Verður þú að hafa stjórn á tilfinningunum þínum í hringnum“

Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkast­inu sem er í boði Þvotta­hússam­steypunar er engin önnur en Val­gerður Guð­steins­dóttir; eina atvinnu­konan í hnefa­leikum á Íslandi í dag.Val­gerður, sem hefur keppt sem atvinnu­mann­eskja í hnefa­leikum í nokkur ár, er að horfa fram að á sinn stærsta bar­daga fram að þessu við hina 32 ára gömlu Jordan Dobie. Dobie sem er í 19 sæti á heims­list­anum yfir kven­kyns box­ara í sínum þyngd­ar­flokk og hefur unnið alla fjóra atvinnu­manna­bar­daga sína. Dobie hefur mikla reynslu af bar­daga­í­þróttum og hefur meðal ann­ars orðið heims­meist­ari í Muay Thai. Það er því ljóst að Valgerði bíður mikil áskorun.

Val­gerður seg­ist aldrei hafa verið í betra formi og er ákveðin í að sigra í þessum bar­daga. Frá því að hún byrj­aði fyrst að boxa 19 ára gömul hefur hún breyst mikið sem box­ari. Þá hafi hún á ákveðnum tíma­punkti þurft að taka sjálfan sig alveg í gegn hvað varðar matar­æðið þar sem hún fór að nota vör­urnar frá Her­balife. Með auknum þroska fór hún einnig að huga meira að and­legri heilsu sem hún segir að sé alveg nauð­syn­legt ef þú ætlar að ná langt sem box­ari. Álagið sem fylgir bæði und­ir­bún­ingnum sem og bar­dag­anum sjálfum hverju sinni krefst þess að haus­inn sé í lagi og að hægt sé að hugsa skýrt svo að við­brögð og snerpa séu upp á tíu. Mikil sál­fræði fylgir box­inu og beita and­stæð­ingar alls­konar aðferðum til að koma hvor úr öðrum úr jafn­vægi.

Val­gerður á æfingu.

Val­gerður seg­ist vera „natural burn pit­bull“ í box­inu. Hún ræðst á við­fangs­efnið eins og skrið­dreki og hún segir að þegar hún sé í hringnum detti hún í hálf­gert „zone“ þar sem tím­inn hverfur og aðeins eitt kom­ist að; sigur! Gunnar spurði hana hvort hún upp­lifi að verða keyrð áfram af heift eða reiði í bar­dögum og Val­gerður sagði það vera algjört klúður ef svo ger­ist. Þá missir maður bæði ein­beit­ingu og snerpu og öll þjálfunin fer út um glugg­ann. Hún segir að um sé að ræða íþrótt sem krefst alls af manni þar sem hugur og lík­ami verða að vinna saman sem ein heild til að ná árangri. „Þegar þú ert í bar­daga þá verður þú að hafa stjórn á til­finn­ing­unum þínum. Af hverju þú ferð þangað, hvað drífur þig áfram, það er annað. En að missa þig í reiði eða pirr­ing eða ein­hverri heift, það eyði­leggur bara fyrir þér.“Spurð út hvort hún sé ein­hvern tíman hrædd um að slasa and­stæð­ing­inn alvar­lega seg­ist hún oft hafa hugsað um það og að hún geti í raun ekki með neinu móti ímyndað sér hvernig hún gæti lifað með því ef svo myndi ger­ast. Hún und­ir­strikar þó að báðir aðilar stíga inn í hring­inn sem vel þjálfaðir atvinnu­menn í topp­formi og með­vit­aðir um hætt­una sem fylgir þessu sporti.Talið barst að svefn­venjum og Gunnar spurði hana út svefn­vörur. Val­gerður hefur nýverið fest kaup á nýjum ullar svefn­dýnu og segir að hún hefði aldrei trúað hvað þetta breytti miklu fyrir hana. Næt­ur­sviti, höf­uð­verkir, stífað nef og bólgur hafi nánst horfið um leið og hún færði sig í yfir í nátt­úru­lega dýnu. Hvíld og svefn sé lyk­il­þáttur í allri end­ur­heimt og hafi gríð­ar­leg áhrif á frammi­stöð­una í hringnum í því sam­hengi.Spurð út í hvar hún ætlar sér að verða eftir 5 ár seg­ist Val­gerður ætla að verða orðin heims­meist­ari á þeim tíma í sínum þyngd­ar­flokki. Hún er ákveðin og örugg um að það muni takast með yfir­vegun, þraut­seigju og þrot­lausum æfingum. Arnór spurði Valgerði hvaða for­seta­fram­bjóð­anda hún myndi velja í bar­daga ef hún þyrfti að velja og sagð­ist hún klár­lega allan dag­inn vilja slást við Ásdísi Rán; þær myndu örugg­lega báðar hafa gaman af því.Bar­dag­inn milli Val­gerðar og Jordan Dobie verður fer fram á föstu­dag­inn 24 maí og á sér stað á bar­daga­kvöldi hjá Unified Boxing Promotions og verður streymt í beinni á UFC Fight­pass.Val­gerður segir mikin kostnað fylgja atvinnu­mennsku í hnefa­leikum, sér­stak­lega þar sem atvinnu hnefa­leikar eru bann­aðir með lögum á Íslandi. Hún segir að með þraut­seigju nái hún að rétt að halda í við kostnað en er sann­færð um að hún muni upp­skera ríku­lega fyrir allt sitt erf­iði og sé rétt að byrja ferð sína upp heims­list­ann.Þeir sem hafa áhuga á að styðja Valgerði geta haft sam­band í gegnum

[email protected]

eða í gegnum instagram:

@valgerdurgud

.

Þetta flotta við­tal við hina mögn­uðu afreks­mann­eskju má heyra og sjá hér á spil­ar­anum fyrir neðan en einnig má heyra öll við­töl Alkast­ins á öllum streym­isveitum eins og Spotify og auð­velt er að merkja við follow eða subs­ribe og fær maður þá til­kynn­ingar í hvert skipti sem nýtt við­tal kemur út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kúltúrinn

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“
Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugn­an­legar lík­kistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

DJ Khaled er orð­inn nýj­ast stjarnan til að fá afhenta óhugn­an­lega lík­kistu heim til sín í Flórída. Áður hafði Tekashi 6ix9ine fengið slíka send­ingu á höfð­ingja­setur sitt nokkrum dögum fyrr. Hin óhuggu­lega lík­kista var send að heim­ili Khaleds í Miami síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, af tveimur mann­eskjum sem keyrðu trukki til örygg­is­varðar, og sögð­ust vera frá send­ing­ar­fyr­ir­tæki, sam­kvæmt lög­reglu­skýrslu. Eftir að þeim...
Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans
Menning

Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tím­ans

Tón­list­ar­mað­ur­inn Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína á morgun en nafn hennar er Rykfall. Rykfall, þriðja breið­skífa Myrkva, er afrakstur margra ára vinnu. Hún er sjálf­stæð­asta verk lista­manns­ins til þessa en nán­ast hvert smá­at­riði plöt­unnar er spilað eða útsett af honum. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu var mark­miðið að skapa eitt­hvað sem gæti stað­ist tím­ans tönn. Platan fjallar um að leggja allt undir...
Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza
Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórn­ar­lömb þjóð­ar­morðs­ins á Gaza

Stór­tón­leikar verða haldnir í Háskóla­bíói laug­ar­dag­inn 1. mars kl. 14:00. Ágóði af miða­söl­unni rennur í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza. Laug­ar­dag­inn 1. mars efni Félagið Ísland-Palest­ína til stór­tón­leika í Háskóla­bíó þar sem fram koma Bubbi, GDRN, Friðrik Dór, Jón Jónsson, KK og Ellen og hljóm­sveitin FLOTT! Samkvæmt frétta­til­kynn­ing mun ágóði af miða­sölu renna í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza sem stofnað var...
The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“
Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tíma­lausum smellum og anda kán­trítón­listar“

Fyrir fjöru­tíu árum, árið 1985, varð kán­trítón­listar saga sköpuð þegar fjórir af bestu tón­lista­mönnum allra tíma, Johnny Cash, Waylon Jennings, Willie Nelson og Kris Kristoffer­son, komu saman til að stofna The Highwaymen. Samstarf þeirra var sam­stundis far­sælt, leiddi til upp­seldra tón­leika, toppplatna og var­an­legrar arf­leifðar sem mót­aði fram­tíð kán­trítón­listar. Kraft­mik­ill og hjart­næmur hljómur þeirra ómaði um allan heim og nú,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza