„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Reiðibylgja skellur á Fiskikónginum og sniðgöngu hótað: „Ég fyrirgef ykkur öllum“

Reiðibylgja skellur á Fiskikónginum og sniðgöngu hótað: „Ég fyrirgef ykkur öllum“
Fiski­kóng­ur­inn, Kristján Berg Ásgeirs­son, stendur í ólgu­sjó.

Fiski­kóng­ur­inn, Kristján Berg Ásgeirs­son, stendur í ströngu eftir að hann birti opin­ber­lega lækn­is­vott­orð starfs­manns síns sem hann gaf til kynna að væri að svíkja út laun í veik­indum. Á mynd af vott­orði laun­þeg­ans mátti greina kenni­tölu hans. Fjöl­margir hafa orðið til þess að for­dæma fram­ferði Krist­jáns Bergs og ein­hverjir hvetja til þess að fólk snið­gangi versl­anir hans, Fiski­kóng­inn og Heita potta. Sjálfur er Kristján Berg hinn bratt­asti og gefur engan afslátt af ummælum sínum. Hann kallar þó eftir samúð vegna konu sinnar olg barna sem hann segir þjást vegna ummæla fjand­manna hans.

Þetta særir kon­una mína

„Ég verð nú að segja að mér finnst ekk­ert sér­stak­lega gaman að lesa sum þess­ara kommenta, þetta særir mig, særir kon­una mína, fjöl­skyldu, sam­starfs­fólk, vini og öll börnin mín sex,“ skrifar Kristján Berg. Hann seg­ist þegar hafa rætt við nokkra sem við­höfðu ljót­ustu kommentin og hafi íhugað meið­yrða­mál á hendur þeim þeim. Hann sá sig svo um hönd og seg­ist fyr­ir­gefa þessu fólki og sér líði betur núna. Hann nefnir í engu brot sitt gagn­vart laun­þeg­anum og hefur skorað á hann að sækja sinn rétt fyrir dóm­stólum. Þá telur hann að upp­ljóstrun sín ýti undir það að margir til­kynni sig veika á næst­unni.

„Mér sýn­ist geð­heilsan á íslensku þjóð­inni hanga á blá­þræði og senni­lega til­kynna margir sig veika í næstu viku. Kæmi mér ekki á óvart. Miðað við við­brögðin þá er þetta þörf umræða hér á landi og greini­lega ekki mikil sátt um hvernig þessum málum er hagað. Ég þakka Bylgj­unni og Rás 2 fyrir góð og fróð­leg við­töl, DV fyrir að starta þessu.  Mannlífi fyrir skemmti­legar fyr­ir­sagnir,“ segir hann um þátt fjöl­miðla í því  að vekja athygli á mál­stað hans og fram­göngu.

Samtök atvinnu­rek­enda hafa tekið sér stöðu við hlið Fiski­kóngs­ins. Ólafur Steph­en­sen fram­kvæmda­stjóri tók undir það á Bylgj­unni að svik eigi sér stað varð­andi lækn­is­vott­orð og inni­stæðu­laus veik­indi.

Kristján Berg ítrekar svo að hann fyr­ir­gefi þeim sem lýst hafa skoð­unum sínum á fram­ferði hans og gagn­rýnt með­ferð hans á laun­þeg­anum veika.

„Takk fyrir að lesa, deila, kommenta og taka þátt í þess­ari mik­il­vægu umræðu. Ég fyr­ir­gef ykkur öllum. Svo gott að fyr­ir­gefa,“ skrifar Kristján Berg á Facebook og fagnar því að kom­ast í sum­ar­frí þar sem svo margir ætli að sniðgnga fyr­ir­tækin hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins