„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Verðgáttin lögð niður fyrir fullt og allt: „Fyrst þau eru hætt þessu þá þurfum við að loka síðunni“

Verðgáttin lögð niður fyrir fullt og allt: „Fyrst þau eru hætt þessu þá þurfum við að loka síðunni“
Verð­gáttin verður lokað

Eins og Mannlíf greindi frá þá hefur Verð­gáttin verið óvirk um nokk­urt skeið og óskaði eftir upp­lýs­ingum frá Rann­sókn­ar­setri versl­unar, sem sér um Verð­gátt­ina, um ástæður þess en RSV var stofnað árið 2004 og að því standa Menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytið, VR, Samtök versl­unar og þjón­ustu, Bíl­greina­sam­bandið og Háskól­inn á Bifröst.

Í svari frá Magnúsi Sig­ur­björns­syni, for­stöðu­manni RSV, sagð­ist hann hins vegar vera hættur sem for­stöðu­maður og hafði Mannlíf þá sam­band við Maríu Magn­ús­dóttur, stjórn­ar­for­mann RSV, til að spyrja hana út í málið.

„Varðandi Verð­gátt­ina þá var þetta samn­ingur sem við áttum við [inn­skot blaða­manns: við­skipta]ráðu­neytið sem var gerður árið 2023 og við ákváðum að halda þessu opnu meðan aðilar voru að senda inn gögn,“ en að sögn Maríu var um til­rauna­verk­efni að ræða sem í raun lauk í lok árs 2023. „En svo sáum svo sem ekki til­gang í að loka síð­unni af því að búð­irnar voru að senda inn gögn. En síðan um mán­að­ar­mótin þá stoppar ein búðin að senda inn gögn en þessi samn­ingur var útrunn­inn og þá getum við í raun­inni ekki birt fyrir hina. Þannig að fyrst þau eru hætt þessu þá þurfum við að loka síð­unni. En það er nátt­úru­lega þetta Prís-app sem ASÍ kom með, það í raun hefur þetta hlut­verk í dag,“ en Prís-app ASÍ var kynnt til leiks í des­em­ber á síð­asta ári og er það styrkt af íslenskum stjórn­völdum.

„Mér þykir það góð lausn, þar geta neyt­endur líka sjálfir vaktað og sett inn vörur með strik­a­merkja­kóð­anum.“

Ekki misheppnað tilraunarverkefni

„Alls ekki, alls ekki,“ sagði María þegar hún var spurð hvort Verð­gátt­ar­verk­efnið hafi mis­heppn­ast. „Ég held að þetta hafi verið frá­bær byrjun í þess­ari veg­ferð og ASÍ tekur þetta síðan á næsta stig. Þetta gekk vel og við erum þakk­lát þeim búðum sem sendu gögn inn og voru með okkur í þessu.“

Leit að nýjum for­stöðu­manni RSV stendur nú yfir og aðstoðar Magnús stjórn­ina á meðan þeirri leit stendur yfir.

„Hann er að aðstoða okkur við það að fá nýjan mann inn og við þurfum að halda þessu áfram gang­andi. Hann er að aðstoða við það þó hann sé í sjálfu sér ekki að mæta á skrif­stof­una. Þannig að hann er með aðgang­inn að tölvu­póst­inum sínum ennþá. Við erum að vinna þetta með honum og hann er að vinna þetta með okkur. Við erum honum rosa­lega þakk­lát.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins