„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dregur Alþingi sundur og saman í háði: „Bein útsending úr Víti Dantes á Alþingisrásinni“

Dregur Alþingi sundur og saman í háði: „Bein útsending úr Víti Dantes á Alþingisrásinni“
Alþingi Íslend­inga

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir rífur Alþingi í ræmur með háði í nýrri Facebook-færslu. Kallar hún Alþingi „hyster­ískt heim­il­is­hald við Aust­ur­völl“ sem komi engu í verk.

Leik­konan ást­sæla og fyrrum for­seta­fram­bjóð­and­inn Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir er ekk­ert sér­stak­lega hrifin af Alþingi í augna­blik­inu. Nú standa yfir loka­dagar þings­ins fyrir sum­ar­frí en stjórn­ar­and­stæðan hefur lengt bið­ina eftir fríi aðeins, með ræðu­höldum.

Í færslu sem Steinunn birti á Facebook í gær og vitnar hún í gamla þjóð­vísu og segir að það eigi að strýkja strákaling en myndin sem fylgir færsl­unni er af Bjarna Bene­dikts­syni, for­sæt­is­ráð­herra.

„ÞAÐ Á AÐ STRÝKJA STRÁKALING

And­rúms­loftið á Alþingi hefur sjaldan verið furðu­legra enda er rík­is­stjórn Íslands nú í frjálsu falli. Alþingi Íslend­inga, eða hvað á að kalla þetta hyster­íska heim­il­is­hald við Aust­ur­völl sem kemur engu í verk, er í upp­lausn. Það sjá lands­menn allir þótt RÚV flytji af þing­inu engar fréttir eins og venju­lega.Í þing­sal má nú sjá íslenska emb­ætt­is­menn engj­ast um af valda­græðginni einni saman. Bein útsend­ing úr Víti Dantes á Alþing­is­rásinni.“

Þannig hefst færslan en því næst tekur Steinunn við að benda á ruglið sem þing­menn Íslands standa fyrir:

„Á meðan Katrín var við völd var yfir­borðið eilítið sett­legra en eftir að hún afhenti Bjarna lykla­völdin má segja að tjaldið hafi hrein­lega fokið ofan af sirku­snum og út velta nú apar, trúðar og töfra­menn sem rífa og tæta og saga fólk í tvennt, ekki af mis­gán­ingi heldur af hreinum ill­vilja.Hvað skal segja við hlátra­sköllum Diljár Mistar í þætt­inum Sprengisandi um síð­ustu helgi? Er of seint fyrir hana að hefja nám í Hjalla­stefn­unni? Tommi Tomm vill vera ber að ofan, eða vill hann bara vera í erma­lausu? Er það þing­mál? Hvað skal segja um hug­ar­víl Bjarkeyjar Ólsen sem þyk­ist hafa kvala­fulla sann­fær­ingu en kvelst þó ekki nægj­an­lega til að gefa kvölum hvala nokkra merk­ingu. En þau undur og stór­merki gerð­ust þó að hún virð­ist nú hafa lesið Lagar­eld­is­frum­varpið, sóða­leg­astu atlögu ,,nátt­úru­verndar- og mann­rétt­inda­sinn­anna“ í VG að nátt­úru, líf­ríki og sjálf­stæði lands­ins og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að um ,,vara­sama atvinnu­starf­semi“ sé að ræða. Þá þanka virð­ist hún samt ætla að geyma með sjálfri sér. Ég vona að hún vakni til þeirra þanka dag hvern héðan af.Ég hef bull­andi samúð með hvölum sem eru marg­fallt vitr­ari og lang­líf­ari skepnur en mann­fólkið, en reyndar á Kristján Loftsson líka mína samúð nú um stundir því popúl­ískar fim­leika­æf­ingar Svan­dísar áður og teygju­stökk Bjarkeyjar nú, eru langt frá því að búa yfir nokkrum þokka né reisn.Svandís, Svandís, Svandís hvað ertu að pæla, afhverju að voma yfir þessu rík­is­stjórn­ar­sam­starfi mikið lengur?Þor­gerður Katrín svona í alvöru, hvernig er að mæta í vinn­una?Vitiði stelpur, það er engum til fram­dráttar að láta eins og þetta sleif­ar­lag sé í lagi. Þið gerið þjóð­inni og kyn­systrum ykkar hreinan óleik og eruð ungum konum glat­aðar fyr­ir­myndir. – Ó, má ekki gagn­rýna konur? Það ekki bara má heldur á að gagn­rýna emb­ætt­is­menn af öllum kynjum ef nauð­syn krefur.Ég myndi segja að það sé aðkallandi.“

Því næst snýr Steinunn Ólína hinu beitta spjóti sínu að for­sæt­is­ráð­herr­anum sjálfum:

„GRALLARINN ÚR GARÐA­BÆN­UM­Hvað eigum við að gera við Bjarna? Gefa honum bara bank­ann og biðja hann svo lengstra orða að koma sér af landi brott? Ef við ætlum ekki að gefa honum bank­ann, bæinn og bit­hag­ann þá verðum við að koma honum frá sem fyrst, ekki með hornamali og sví­virð­ingum heldur ein­urð, sam­heldni og aðgerðum.Vill hann verða hers­höfð­ingi? Leyfum honum það, kaupum handa honum bún­ing og medal­íur en frek­ari vopna­kaup verður að stöðva. Sá samn­ingur sem er í vinnslu milli Bjarna og leik­ar­ans Zelenský verður að taka eðl­is­breyt­ingum, burt með vopna­kaup og vopna­flutn­inga úr ákvæðum hans, takk. Málið kemur okkur gríð­ar­lega mikið við og þarf auð­vitað að fá þing­lega með­ferð. Við höfum reynslu af því þegar ráða­menn taka af okkur völdin – ,,Viljugar þjóðir“ mun­iði? Við eigum ekki að bera skömm mis­vit­urra ráða­manna í svo alvar­legum málum. Íslend­inga hafa lít­inn áhuga á beinni þát­töku í hern­aði og þar með vax­andi hern­að­ar­æs­ingu sem breið­ist hrað­byri um álf­una alla. Við erum frið­elsk­andi þjóð.Fjórir millj­arðar árlega til Úkraínu næstu fjögur árin og 100 millj­ónir til Palest­ínu? Fyrrum fjár­mála­ráð­herra kann aug­ljós­lega ekki að reikna og þá síður eft­ir­maður hans Kolbrún Reyk­fjörð. Bjarni og Kolbrún þurfa stuðn­ing við útreikn­inga og þjóðin þarf aug­ljós­lega að vera þeirra sið­ferð­is­legi átta­viti.Þarf Svan­hildur Hólm nýskip­aður sendi­herra að flytja til Washington? Getur Bjarni ekki bara farið þangað strax? Örlætið við Pentagon í orði og borði mun von­andi veita honum aðgengi að þeim kreðsum sem hann sæk­ist eftir þegar við erum búin að losa okkur við hann.“

Steinunn Ólína tekur næst upp hansk­ann fyrir útlend­ingum, sem eiga undir högg að sækja á Íslandi um þessar mundir:

„HINIR RAUNVERULEGU ÓVINIROg í eitt skipti fyrir öll, það eru ekki útlend­ingar sem við eigum að hræð­ast heldur okkar eigið stjórn­mála­fólk! Það er ekki útlend­ingar sem setja hér lög sem heim­ila að hingað komi fólk til vinnu í gegnum vafa­samar þræla­leigur.Það er ekki útlend­ingum að kenna að fyr­ir­tækjum er hér heim­ilt að nýta sér starfs­lið til skamms tíma í senn án þess að það njóti rétt­inda á vinnu­mark­aði. Það er ekki útlend­ingum að kenna að brotið er á erlendu vinu­afli heldur því umhverfi sem stjórn­völd hafa skapað til að hámarka gróða fyr­ir­tækja á kostnað mann­rétt­inda vinn­andi fólks.Við komum fram við útlend­inga eins og ann­ars flokks mann­eskjur á Íslandi. Þessi örþjóð sem er með eilífan sleikju­skap við stór­þjóðir hagar sér engu skár en léns­herrar stór­þjóð­anna.Kannski ættum við ein­fald­lega að hætta að kvarta yfir því að erlent vinnu­afl sem sinnir þjón­ustu og versl­un­ar­störfum tali ekki íslensku. Fólk sem býr við lítil rétt­indi á skíta­launum og hýr­ist í mis­jöfnum húsa­kynnum og er hér bara stutta stund þarf ekk­ert að læra íslensku. Það er van­hugsuð frekja að ætl­ast til þess.

Ég ætla rétt að minn­ast á þann ,,vanda“ sem Íslend­ingum hefur verið talið trú um að koma flótta­fólks til Íslands skapi. Sú þvæla er alfarið á ábyrgð þeirra sem farið hafa með völd í land­inu síð­asta tæpa ára­tug. Stjórn­valda sem hafa haft mann­vonsk­una og henti­stefn­una að leið­ar­ljósi í útlend­inga­mál­unum eins og öllu öðru. Framkoma íslenskra stjórn­valda í garð flótta­fólks hefur skipað okkur í hóp þeirra sem ekki eru hæfir til að fylgja barni yfir götu án þess að henda því fyrir bíl stuttu síðar.“

Í loka­orðum sínum svarar Steinunn spurn­ingu sinni um það hvað skuli gera við Bjarna Ben og vitnar í gömlu þjóð­vís­una:

„Nú þarf þjóðin eins og ábyrgð­ar­fullir for­eldrar að taka í hönd Bjarna Bene­dikts­sonar, stinga honum oní kola­bing, loka hann útí land­synn­ing, láta hann hlaupa allt um kring.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins