„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jón vill láta rannsaka meinta glæpi sína: „Þetta er hálfgert örþrifaráð“

Jón vill láta rannsaka meinta glæpi sína: „Þetta er hálfgert örþrifaráð“
Jón Jónsson. Mynd: Reynir Traustason

Jón Jónsson þjóð­fræð­ingur á Hólmavík á Ströndum hefur nú beðið sveit­ar­stjórn Stranda­byggðar um leyfi til að hefja und­ir­skrift­ar­söfnun þar sem þess er kraf­ist að rann­sókn verði gerð á meintum glæpum Jóns, sem hann hefur verið sak­aður um af starfs­fólki Stranda­byggðar. Eig­in­kona hans hefur sagt upp starfi sínu og vill flytja úr bæj­ar­fé­lag­inu vegna máls­ins.

Jón Jónsson.

Þjóð­fræð­ing­ur­inn Jón Jónsson seg­ist hafa setið undir ásök­unum um stór­felldan þjófnað á fjár­munum úr sjóðum Stranda­byggðar, auk ann­arra glæpa, af hendi „lyk­il­starfs­manna“ sveit­ar­fé­lags­ins. Og nú vill hann að meintu glæpir hans verði rann­sak­aðir en meðal ásak­ana sem hann hefur fengið er stuldur upp á ríf­lega 61 millj­ónir króna. Jón skrif­aði um málið á Facebook í gær:

„ÍBÚAKOSNING UM RANNSÓKN Á MEINTUM GLÆPUM

Sveit­ar­stjórn Stranda­byggðar tók fyrir erindi frá mér á fundi sínum í vik­unni. Þar var ég að til­kynna að ég ætla að standa fyrir und­ir­skrifta­söfnun og fara fram á íbúa­kosn­ingu í sveit­ar­fé­lag­inu. Málið snýst um þær ásak­anir frá lyk­il­starfs­fólki Stranda­byggðar sem ég sjálfur hef þurft að sitja undir, m.a. um sjálftöku fjár­muna úr sjóðum sveit­ar­fé­lags­ins á meðan ég sat í hrepps­nefnd á síð­asta kjör­tíma­bili. Einungis er miðað við þær skrif­legu ásak­anir sem bornar hafa verið fram af starfs­fólki sveit­ar­fé­lags­ins á þessu kjör­tíma­bili. Ég vil sem­sagt að meintir glæpir mínir verði rann­sak­aðir af óháðum aðila og þessar ásak­anir um leið. Það er allra hagur að öll þessi mál séu upp­lýst og ef um sjálftöku úr sveit­ar­sjóði er að ræða á auð­vitað að krefj­ast end­ur­greiðslu.“

Þannig hefst færsla Jóns en hann seg­ist vera að þessu af því að hann sætti sig ekki við „þessa atlögu að mann­orði“ sínu og að um „hrein ósann­indi og róg­burð sé að ræða“.

„Hvers vegna ertu að þessu? kann það fólk að spyrja, sem finnst betra að allt sé í ró og spekt og engum bát sé ruggað. Það er vegna þess að staðan hefur ekk­ert breyst frá því að þessar ásak­anir voru bornar fram, síð­asta haust. Ég sætti mig ekki við þessa atlögu að mann­orði mínu og tel að um hrein ósann­indi og róg­burð sé að ræða.“

Jón seg­ist hafa árang­urs­laust reynt að kalla eftir rök­stuðn­ingi við ásök­unum en engin svör fengið.

„Ég hef árang­urs­laust kallað eftir rök­stuðn­ingi fyrir þessum ásök­unum. Engin svör eða sönn­un­ar­gögn hafa þó verið lögð fram, en sveit­ar­stjórn ýjar að því að slík gögn séu fyrir hendi – „sem til er hjá sveit­ar­fé­lag­inu“, segir í fund­ar­gerð frá des­em­ber á síð­asta ári. Ég óskaði skýr­inga á þessu orða­lagi, en fékk heldur engin svör við því. Í fram­hald­inu óskaði ég svo eftir að fá afhent öll gögn sem tengj­ast mér á til­teknu tíma­bili úr skjala­safni Stranda­byggðar, með til­vísun til upp­lýs­inga­laga (hver ein­stak­lingur á rétt á gögnum í skjala­söfnum stjórn­valda þar sem um hann er fjallað). Þetta sendi ég inn í jan­úar síð­ast­liðnum. Þar voru þó engin sönn­un­ar­gögn um mein­tan glæpa­feril minn.“

En ástæðan fyrir því að Jón vill gera eitt­hvað í mál­inu er líka önnur, eig­in­kona hans vill flytja úr Stranda­byggð vegna máls­ins.

„Það er satt best að segja líka annað sem er að ýta á mig að rekast í þessu, en ein­göngu eigin metn­aður fyrir því að mann­orð mitt sé í skikk­an­legu ástandi og orð­sporið sann­gjarnt. Ester konan mín tap­aði að nokkru leyti starfs­gleð­inni í tengslum við þessar ásak­anir og illt umtal sem varð áber­andi um fólk, félög og menn­ing­ar­stofn­anir hér í sveit. Hún er búin að segja upp sínu góða starfi á Sauð­fjár­setr­inu og ætlar að hætta í sum­ar­lok. Umræðan fær þannig meira á suma en aðra og ekk­ert við því að segja. Ester vill flytja suður á bóg­inn, segir að það sé ómögu­legt að búa í sam­fé­lagi þar sem for­svars­fólk sveit­ar­fé­lags­ins getur full­yrt hvað sem er um aðra, án þess svo að þurfa að bera ábyrgð á orðum sínum eða sanna ásak­anir. Mig langar að búa hér lengur og er í ansi skemmti­legu starfi. Það er kannski dálítið barna­legt af mér að halda að óháð rann­sókn á þessum ásök­unum geti breytt ein­hverju í þessum efnum, en ég held samt í von­ina og er viss um að hún myndi hreinsa and­rúms­loftið í sam­fé­lag­inu dálítið.“

Málið var tekið fyrir á fundi hjá sveit­ar­stjórn­inni á þriðju­dag en ætlar hún að taka sér tíma til að skoða það með lög­fræð­ingi. Einn með­limur stjórn­ar­innar þurfti að víkja af fund­inum á meðan mál þetta var rætt en það var Þorgeir Pálsson en Grettir Örn Ásmunds­son tók sæti hans á meðan. Þorgeir kom svo aftur á fund­inn þegar málið hafði verið tekið fyrir.

„Hrepps­nefnd­inni tókst ekki að afgreiða málið á fund­inum á þriðju­dag­inn, hún virt­ist ekki hafa und­ir­búið sig nógu vel. Þau ætla að taka sér tíma til að skoða málið með lög­fræð­ingi, en nið­ur­staðan hlýtur þó að verða sú að leyfa und­ir­skrifta­söfnun í sam­ræmi við lög og efna svo til íbúa­kosn­ingar um rann­sókn­ina í fram­hald­inu. Mér finnst aug­ljóst að öll geti kosið með rann­sókn, bæði þau sem trúa ásök­unum um afbrot og líka hin sem halda að þær séu yfir strikið.“

Segir Jón að sveita­stjórnin hafi frestað að taka afstöðu í mál­inu en verði að svara í síð­asta lagi 4. júlí en þangað til megi hann ekki hefja und­ir­skrift­ar­söfn­un­ina. „Ég skil ekki af hverju mál­inu var slegið á frest, í stað­inn fyrir að svara strax.“

Mannlíf ræddi stutt­lega við Jón í síma. „Þetta er ein leiðin sem fólk hefur til að fá mál tekin fyrir ef það gengur ekk­ert annað. Þetta er hálf­gert örþrifa­ráð,“ segir Jón í sam­tali við Mannlíf.

Hér fyrir neðan má lesa bréf Jóns til sveita­stjórn­ar­innar:

TILKYNNING UM UNDIRSKRIFTARSÖFNUN Í SVEITARFÉLAGINU

Berist sveit­ar­stjórn Stranda­byggðar

Ég til­kynni hér með, með vísun til sveit­ar­stjórn­ar­laga, um fyr­ir­hug­aða und­ir­skrifta­söfnun í sveit­ar­fé­lag­inu þar sem óskað verður eftir almennri atkvæða­greiðslu um til­tekið mál er varðar sveit­ar­fé­lagið. Ætlunin er safna und­ir­skriftum til að kosið verði um þá kröfu til sveit­ar­fé­lags­ins að það standi fyrir því að gerð verði óháð rann­sókn á ásök­unum lyk­il­starfs­manna sveit­ar­fé­lags­ins, sveit­ar­stjóra ann­ars vegar og íþrótta- og tóm­stunda­full­trúa hins vegar, í garð íbúa og fyrr­ver­andi sveit­ar­stjórn­ar­manns, Jóns Jóns­sonar kt. 050468-4969 þjóð­fræð­ings á Kirkju­bóli við Stein­gríms­fjörð.

Sér­stak­lega verði skoð­aðar ásak­anir um meinta sjálftöku Jóns á fjár­munum úr sveit­ar­sjóði í eigin þágu að upp­hæð kr. 61.423.961.- árin fyrir síð­ustu kosn­ingar, en einnig aðrar ávirð­ingar sem bornar hafa verið fram. Tekið skal skýrt fram að hér er ein­göngu um að ræða ásak­anir sem settar hafa verið fram skrif­lega af umræddu starfs­fólki Stranda­byggðar og á núver­andi kjör­tíma­bili, þannig að málið bein­línis hlýtur að eiga heima á borði núver­andi sveit­ar­stjórnar. Krafan snýr einnig að því að nið­ur­staða þess­arar óháðu rann­sóknar verði síðan birt opin­ber­lega.

Hagmunir sveit­ar­fé­lags­ins af því að málið sé upp­lýst er aug­ljós, enda er eðli­legt að gerð verði krafa um end­ur­greiðslu ef um slíka sjálftöku úr sveit­ar­sjóði er að ræða. Sama gildir um hags­muni þess sem fyrir þessum ásök­unum hefur orðið, það hlýtur að vera öllum ljóst að öll þátt­taka hans í sam­fé­lag­inu veltur á því að upp­lýst verði hvort ásak­anir byggi á raun­veru­leik­anum eða séu róg­burður og ósann­indi. Slíkt skiptir í senn veru­legu máli fyrir stöðu við­kom­andi á vinnu­mark­aði, í félags­störfum, dag­legu lífi og við ákvarð­ana­töku fjöl­skyld­unnar um áfram­hald­andi búsetu á svæð­inu.

Ábyrgð­ar­maður:

Jón Jónsson, kt. 050468-4969, Kirkju­bóli, 511 Hólmavík

Tvær aðrar und­ir­skriftir ein­stak­linga með lög­heim­ili í sveit­ar­fé­lag­inu (eins og vera ber):

Ester Sig­fús­dóttir, 230369-4299, Kirkju­bóli, 511 Hólmavík

Dagrún Ósk Jóns­dóttir, kt. 131293-2329, Kirkju­bóli, 511 Hólmavík

Með kveðju, Jón

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins