„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ragnheiður slasaðist illa fyrir sex árum: „Seinustu sex árin hafa vægast sagt verið hryllingur“

Ragnheiður slasaðist illa fyrir sex árum: „Seinustu sex árin hafa vægast sagt verið hryllingur“
Ragn­heiður Pét­urs­dóttir Mynd: Aðsend

Ragn­heiður Pét­urs­dóttir hefur haft það mjög erfitt síð­ustu sex árin en hún hefur verið búsett í Danmörku síðan 2004. Ragn­heiður slas­að­ist illa í vinn­unni árið 2018 en hefur síðan þurft að heyja bar­áttu við danska heil­brigð­is­kerfið.

„Seinustu sex árin hafa væg­ast sagt verið hryll­ingur. Ég slas­að­ist í vinn­unni í maí 2018. Ég hras­aði og afleið­ingar þess hafa verið ofboðs­lega erf­iðar. Í jan­úar fékk ég loks­ins end­an­lega grein­ingu eftir nær 6 ára bar­áttu við heil­brigð­is­kerfið hér í Danmörku,“ segir Ragn­heiður í við­tali við Mannlíf og útskýrir svo hvað hrjáir hana:

„Ég er með það sem heitir Cranio cervical insta­bility og atl­anto axial insta­bility CCI/AAI. Hægra axlar lið­bandið sem heldur efstu lið­unum á réttum stað er eyði­lagt ásamt fleiru. Grein­ing­una fékk ég hjá virtum tauga­skurð­lækni á Spáni.“

Ragn­heiður segir að kostn­að­ur­inn hafi verið gríð­ar­lega mik­ill en enga hjálp er að finna fyrir hana í danska heil­brigð­is­kerf­inu. „Bara á þessu ári er kostn­aður við skann­anir, lækna og sjúkra­þjálf­ara langt yfir 3 millj­ónum íslenskra króna. Ég fæ enga hjálp í danska heil­brigð­is­kerf­inu. Þrátt fyrir ótal margar skann­anir og skýrslur frá hátt metnum sér­fræð­ingum í Evrópu vill kerfið hérna ekki sam­þykkja að ég hafi slasast svona alvar­lega. Ég á það á hættu að lam­ast eða missa lífið vegna þess að lið­irnir er lausir. Þetta hefur áhrif á allt tauga­kerfið og heila­stofn­inn.“

Segir Ragn­heiður að bar­áttan við trygg­inga­kerfið hafi einnig verið afar erfið.

„Ég er mjög illa farin eftir ranga með­höndlun, vöntun á með­höndlun, vöntun á að við­ur­kenn­ingu á alvar­legum skaða. Þetta hefur verið hræði­lega erfið bar­átta við trygg­inga­kerfi, þrátt fyrir að þetta er vinnu­slys og èg var vel tryggð hef èg fengið sam­tals 0 krónur út úr þeim. Heil­brigð­is­kerfið hefur gjör­sam­lega brugð­ist mér. Ég hef staðið í ströngu við að ná því að kom­ast á örorku sem og að fá við­eig­andi hjálp hér heima sem og hjálp­ar­tæki.“

Vegna ástand­ins hefur hún að mestu haldið sig heima og það rúm­liggj­andi að mestu.

„Ég er mest megnis föst hér heima, oft­ast rúm­liggj­andi, á erfitt með að nota hend­urnar, er óstöðug á fótum. Tauga­trufl­anir, svimi, skert heila­starf­semi, sjónin er flökt­andi, yfir­lið, verkir, hjart­slátt­ar­trufl­anir og erf­ið­leikar með öndun. Þetta ástand er og hefur verið hreinn hryll­ingur að ganga í gegnum, ekki bara fyrir mig heldur líka mann­inn minn og son minn sem er í dag 12 ára. “

Segir Ragn­heiður að ótrú­legt sé að hún haldi enn geð­heilsu enda hafi hún verið beitt rosa­legu órétt­læti.

„Ég á auð­veld­ara með að tala enn að skrifa. Ég hef verið beitt því­líku órétt­læti og oft verið mikil gas­lýs­ing í gangi. Og það er með ólík­indum að èg hef haldið geð­heilsu í þessu ömur­lega og erf­iða ferli.“

Í dag stendur Ragn­heiður frammi fyrir erf­iðri ákvörðun en mögu­leiki er á ein­hvers konar bata fyrir hana en áhættan er mikil.

„Ég er í augna­blik­inu að búa mig undir að taka ákvörðun um hvort èg láti skera mig eða ekki. Erfið ákvörðun bæði vegna áhættu í aðgerð, afleið­ingum eftir aðgerð­ina og ekki minnst þarf ég sjálf að finna fjár­magnið sem verður langt yfir 100.00 evrum með ferða­kostn­aði, kostn­aði við aðstoð­ar­menn og síðar end­ur­hæf­ingu. Èg hef stiklað á mjög stóru hérna en væri alveg til í að fá að segja þér betur frá mínum aðstæðum. Það er svo órétt­látt að fara í vinn­una, hrasa um illa lagða gang­stétt­ar­hellu, örkuml­ast og fá enga hjálp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins