„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ályktun Solaris: „Við skorum á íslensk stjórnvöld að stöðva brottvísun Yazan án tafar!“

Ályktun Solaris: „Við skorum á íslensk stjórnvöld að stöðva brottvísun Yazan án tafar!“
Frá mót­mælum gegn brott­vísun drengs­ins Mynd: Björgvin Gunnarsson

Solaris for­dæmir fyr­ir­hug­aðri brott­vísun á ell­efu ára gömlum dreng frá Palest­ínu og hvetur stjórn­völd til að draga hana til baka.

Stjórn sam­tak­anna Solaris sendi frá sér ályktun í gær­kvöldi vegna fyr­ir­hug­aðrar brott­vís­unar á Yazan Tamimi, ell­efu ára palest­ínsks drengs með Duchenne-hrörn­un­ar­sjúk­dóm­inn. Í álykt­un­inni for­dæma sam­tökin brott­vís­un­ina og gera alvar­lega athuga­semd við máls­með­ferð­ina og ákvörð­un­ar­töku í henni og eru stjórn­völd hvött til að stöðva brott­vís­un­ina án tafar.

Álykt­un­ina má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

23.júní 2023

Stjórn Solaris, hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, for­dæma fyr­ir­hug­aða brott­vísun á Yazan Tamimi, ell­efu ára palest­ínsks drengs. 

Yazan er með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Duchenne, sem er hrörn­un­ar­sjúk­dómur þar sem allir megin vöðvar lík­am­ans rýrna smám saman, þar á meðal hjarta- og önd­un­ar­vöðvar. Lífslíkur þeirra sem eru með sjúk­dóm­inn eru veru­lega skertar en án þjón­ustu er með­al­aldur í kringum 19 ár. 

Yazan og for­eldrar hans flúðu heim­ili sitt í Palest­ínu í leit að skjóli og vernd á Íslandi fyrir ári síðan. Á leið sinni hingað komu þau við á Spáni og þangað hafa íslensk stjórn­völd ákveðið að senda fjöl­skyld­una, þrátt fyrir að þau hafi aldrei dvalið þar til lengri tíma, eru ekki með vernd þar í landi og njóta því tak­mark­aðra rétt­inda og þjón­ustu þar. Að brott­vísa Yazan þýðir í raun að hann verður sendur aftur á flótta um ókomna tíð.

Sjúk­dóm­ur­inn hans Yazans krefst stöðugrar umönn­unar og er aðgangur að sér­hæfðri lækn­is­þjón­ustu nauð­syn­legur til að lengja lífslíkur sem mest. Með því að senda Yazan til Spánar gæti orðið hlé á lífs­nauð­syn­legri lækn­is­þjón­ustu í allt að 18 mán­uði. Slík skerð­ing á með­ferð mun sam­kvæmt sér­fræð­ingum valda honum óaft­ur­kræfum skaða sem munu minnka lífs­gæði hans veru­lega og stytta líf hans. 

Það er ljóst að slík ráð­stöfun er Yazan alls ekki fyrir bestu, en eins og fram kemur í barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna eiga stjórn­völd ávallt að byggja ákvarð­anir sínar er snúa að börnum á þeirra hags­munum og hvað sé þeim fyrir bestu. 

Þá er með öllu óskilj­an­legt að íslensk stjórn­völd hafi ekki litið til sér­stakra aðstæðna í máli Yazan og honum veitt efn­is­leg með­ferð á umsókn sinni í stað þess að mis­nota dyfl­in­ar­reglu­gerð­ina enn einu sinni til þess að koma fólki með flótta­bak­grunn úr landi. 

Þá gerir stjórn Solaris alvar­lega athuga­semd við að ákvörðun kæru­nefndar útlend­inga­mála í máli Yazan hafi verið á höndum eins aðila. Slíkt vald yfir örlögum fólks á ein mann­eskja aldrei að hafa. Þegar slíkt vald hefur áhrif á fram­tíð barns, lífslíkur og lífaldur, er slíkt for­kast­an­leg stjórn­sýsla.

Við skorum á íslensk stjórn­völd að stöðva brott­vísun Yazan án tafar!

Fyrir hönd stjórnar,
Sema Erla Serdaroglu
for­maður stjórnar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins