„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íslensk yfirvöld hafa ekki í hyggju að viðurkenna sjálfstæði fleiri ríkja

Íslensk yfirvöld hafa ekki í hyggju að viðurkenna sjálfstæði fleiri ríkja
Utan­rík­is­ráðu­neytið

Ekki stendur til að íslenska ríkið við­ur­kenni sjálf­stæði og full­veldi þjóða á næst­unni.

Ísland hefur um ára­bil verið leið­andi í sam­fé­lagi þjóða, í að við­ur­kenna sjálf­stæði og full­veldi landa. Þannig var Ísland fyrst allra landa til að við­ur­kenna sjálf­stæði Eystra­salts­þjóð­anna, Eist­lands, Lett­lands og Litháens frá Sov­ét­ríkj­unum sál­ugu og einnig Svart­fjalla­lands og Kósóvó frá Serbíu. Einnig var landið fyrsta vest­ræna ríkið til að við­ur­kenna sjálf­stæði Palest­ínu en það var árið 2012.

Nokkrar þjóðir berj­ast enn fyrir sjálf­stæði sínu en þar ber helst að nefna Taívan, sem oft er kallað Lýð­veldið Kína, til að aðgreina það frá Alþýðu­lýð­veld­inu Kína á meg­in­land­inu, hefur lengi viljað sjálf­stæði og hafa að und­an­förnum árum minnt ræki­lega á sig. Banda­ríkin hafa sýnt stuðn­ing við Taívan, sem reitt hafa yfir­völd í Alþýðu­lýð­veld­inu Kína til reiði. Þá má einnig nefna Baska­land en ETA, aðskiln­að­ar­sam­tök Baska hafa lengi barist fyrir sjálf­stæði frá Spáni. Þá hafa Kata­lónar gert slíkt hið sama og kraf­ist sjálf­stæðis frá Spáni.

Mannlíf lagði fram nokkrar spurn­ingar fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið en þær eru eft­ir­far­andi:

  1. Hjá hvaða ríkjum hefur Ísland við­ur­kennt sjálf­stæði frá 2012 til dags­ins í dag?
  2. Hefur Ísland ein­hvern tím­ann dregið til baka við­ur­kenn­ingu um sjálf­stæði. Ef svo er: Hvenær?
  3. Eru ein­hver ríki til skoð­unar á hjá stjórn­völdum í því sam­hengi að við­ur­kenna sjálf­stæði þeirra. Ef svo er: Hvaða ríki?

Skrif­legt svar utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins barst í dag en þar kemur fram að ekki séu uppi áform um við­ur­kenn­ingu á sjálf­stæði fleiri ríkja:

„Ísland hefur ekki við­ur­kennt sjálf­stæði ríkis frá árinu 2012. Þá hafa íslensk stjórn­völd aldrei dregið til baka við­ur­kenn­ingu á sjálf­stæði eða full­veldi ríkis. Á þess­ari stundu eru ekki uppi áform um að við­ur­kenna sjálf­stæði og full­veldi fleiri ríkja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins