„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landsréttur staðfestir átta ára fangelsisdóm yfir Heiðari Erni: „Ákærði á sér engar málsbætur“

Landsréttur staðfestir átta ára fangelsisdóm yfir Heiðari Erni: „Ákærði á sér engar málsbætur“
Lands­réttur

Átta ára fang­els­is­dómur yfir Heiðari Erni Vil­hjálms­syni var í gær stað­festur af Lands­rétti en Heiðar var dæmdur fyrir nauðgun, stór­fellda lík­ams­árás og stór­fellt brot í nánu sam­bandi gegn eig­in­konu sinni. RÚV segir frá stað­fest­ing­unni.

Brotin framdi Heiðar Örn á heim­ili hjón­anna frá 2019 og fram til 2023.

Alls var ákærarn í þrettán liðum en þar voru til­tekin ein­stök til­felli ofbeldis auk and­legs ofbeldis yfir öll fjögur árin. Í sumum til­vikum voru áverk­arnir sem Heiðar veitti kon­unni lífs­hættu­legir. Neitaði hann sök í öllum ákæru­liðum.

Heiðar Örn var sýkn­aður afa sjö ákæru­liðum af Lands­rétti þar sem sann­anir þóttu ekki nægi­legar svo hægt væri að sak­fella hann, en hann var sak­felldur fyrir alvar­leg­ustu brotin.

Brotin voru mörg og gróf, að því er fram kemur í dómi Lands­réttar en þau feli í sér hrotta­legar og ofsa­fengnar atlögur þar sem konan hafi verið beitt gríð­ar­legu ofbeldi, þar á meðal kyn­ferð­is­of­beldi. Hlaut hún útbreidda og alvar­lega áverka en í einu til­vik­inu hefði hún lát­ist ef hún hefði ekki kom­ist á sjúkra­hús.

Í dóm­inum segir að ekki fari á milli mála að konan hafi á sam­búð­ar­tím­anum búið við alvar­legt ástand ógn­unar, ótta, þján­ingar og kúg­unar. Þá hafi Heiðar Örn mis­notað frek­lega yfir­burða­stöðu sína gagn­vart henni og beitt brota­þola ítrek­uðu ofbeldi sem hafði áhrif á heilsu, líðan og vel­ferð hennar. „Ákærði á sér engar máls­bætur,“ segir í dómnum.

Land­rétti þótti rétt að stað­festa dóm Hér­aðs­dóms Reykja­ness frá því í fyrra, um átta ár fang­elsi, þrátt fyrir sýknu í sjö ákæru­liðum, vegna alvar­leika ákæru­lið­anna sem hann var þó sak­felldur fyrir.

Auk fang­els­is­dóms­ins var Heiðar Örn dæmdur til að greiða kon­unni sex millj­ónir í miska­bætur, auk vaxta. Einnig er honum gert að greiða tæpar 20 millj­ónir í sak­ar­kostnað auk hluta áfrýj­un­ar­kostn­aðar sem eru tæpar fjórar millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins