„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sverrir var ellefu ára kallaður hinn íslenski Robertino: „Barnaverndarnefndin var komin í málið“

Sverrir var ellefu ára kallaður hinn íslenski Robertino: „Barnaverndarnefndin var komin í málið“
Sverrir Guð­jóns­son að afhenda Páli í Húsey plöt­una Rökk­ur­söngvar, sem er sam­starf Sverris við íslensk tón­skáld sem hafa samið fyrir radd­svið hans. Platan kom út fyrir nokkrum árum. Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur Mann­lífs­ins er kontra­ten­ór­inn og lífskúntsner­inn Sverrir Guð­jóns­son. Flestir Íslend­ingar þekkja Sverri en hann er eini kontra­tenór þjóð­ar­innar en hann var ekki nema átta ára gam­all þegar hann hóf söng­feril sinn.

Sverrir Guð­jóns­son að afhenda Páli í Húsa­felli plöt­una Rökk­ur­söngvar í síð­ustu viku, sem er sam­starf Sverris við íslensk tón­skáld sem hafa samið fyrir radd­svið hans. Platan kom út fyrir nokkrum árum. Aðsend.

Í við­tal­inu segir Sverrir frá barna­stjörnu­ár­unum, söng­ferl­inum, óvæntu ævin­týri sem Jakob Frímann Magn­ús­son kom honum í þegar hann bjó í Lundúnum og ýmis­legt fleira sem á daga hins bráð­skemmti­lega manns hefur drifið.

„Ég er fljótur að læra lög og texta og er far­inn að raula með,“ segir Sverrir við Reyni þegar hann rifjar upp fyrstu skref sín á söng­ferl­inum. Sverrir heldur áfram: „Þannig að það upp­götvast að ég er mús­íkalskur. Svo man ég eftir því að við fórum oft á Hell­issand að heim­sækja ömmu mína, Hans­borgu. Og ég er úti að leika mér þarna við lít­inn poll með lítil skip. Svo koma tveir krakkar, sem voru eldri en ég og vissu að ég gat sungið og spyrja mig; „Ertu til í að syngja á ball­inu í kvöld?“. Og ég var ekk­ert að hugsa um þetta, ég var bara að hugsa um bát­ana og sigla þeim. Ég man að ég hugs­aði; „Æ, ég nenni þessu ekki neitt“. En ég er til­tölu­lega vel upp alinn, þannig að ég sagði; „Allt í lagi, ég skal gera það“. En ég var bara sjö ára gam­all. Síðan var ég settur upp á svið um kvöldið, milli ell­efu og tólf. Og svo sendur heim áður en aðal ballið byrj­aði og áður en slags­málin nátt­úru­lega fóru í gang á milli Ólafs­víkur og Hell­issands.“

Reynir: „En hvað söngstu?“

Sverrir: „Ég söng bara ein­hver dægu­lög sem hljóm­sveitin kunni og ég kunni. Þannig að ég pikk­aði upp lög sem voru í útvarp­inu og sem pabbi var að æfa með sínu fólki. Hann fór í nám til að geta skrifað nótur því hann samdi músík. Og hann hlaut fyrstu verð­laun í danslaga­keppni S.K.T. árið 1956 held ég, fyrir Son­ar­kveðju, sem ég síðan syng inn á plötu, sem 12 ára gam­all krakki. Og svo önnur plata þegar ég var 13 ára, áður en ég fór í mútur.“

Reynir: „Var Son­ar­kveðja lagið sem kom þér á kortið og allir vissu hver þú værir?“

Sverrir: „Já, það var Son­ar­kveðja, af því að það hafði hlotið þessi verð­laun og af því ég syng það svo inn á plötu nokkrum árum síðar, og svo Pip­ar­sveina­polki sem var enda­laust í útvarp­inu og þótt mjög skemmti­legur. En til dæmis þegar ég var átta ára gam­all, þá var birt aug­lýs­ing í Mogganum um að ég kæmi fram á skemmtun á Silf­ur­tungl­inu, sem er Aust­ur­bær í dag eða Aust­ur­bæj­ar­bíó ef fólk man ekki því. Og það er mynd af mér og tekið fram að ég er átta ára gam­all en það voru fleiri að koma fram þarna. Og við tókum göngutúr frá Vitastíg og upp á Snorra­braut og ég mæti þarna tím­an­lega. Og þá eru tveir menn þarna við úti­dyrnar á Silf­ur­tungl­inu og banna okkur aðgang. Þannig að Barna­vernd­ar­nefndin var komin í málið. Þannig að við tókum bara göngutúr til baka. Þannig að ég er strax átta ára gam­all far­inn að syngja og er aug­lýstur.“

Sverrir fór svo í söng­nám til hins fræga ítalska söngv­ara, Sigurðar Demetz og var hjá honum í tvö ár, en eftir það var hann ell­efu ára gam­all feng­inn til að syngja á 17. júní og við það tæki­færi birt­ist við hann stórt við­tal í blöð­unum og hann var þar með opin­ber­lega orðin barna­stjarna. Plöt­urnar tvær komu svo í kjöl­farið. „af því að ég var að læra hjá Sigurði Demetz, þá kennir hann mér öll þessi fræg­ustu og skemmti­legu ítölsku lög. Og á þessum tíma verður Robertino þekktur og frægur og það verður svo til þess, eftir að ég kem fram á 17. júní, 1961, að ég er kall­aður hinn íslenski Robertino. Af því að ég söng O Sole Mio.“

Hlusta má á við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlífið

Sigríður notar hugvíkkandi efni til að vinna á áföllum: „Er búin að fara í gegnum allt snjóflóðið“
Innlent

Sigríður notar hug­víkk­andi efni til að vinna á áföllum: „Er búin að fara í gegnum allt snjó­flóðið“

Sigríður Rannveig Jóns­dóttir er nýjasti gestur hlað­varps­þátt­ar­ins Mann­lífið. Hún hefur gengið í gegnum ótrú­legar raunir á lífs­leið­inni en í jan­úar árið 1995 missti hún unga dóttur sína í snó­flóð­inu í Súðavík sem og tengda­for­eldra. Hér er brot úr seinni hluta við­tals­ins: Sigríður Rannveig hefur not­ast við allskyns aðferðir við að vinna úr áföllum sem hún hefur lent í á lífs­leið­inni...
Innlent

Hund­ur­inn Hnota fann eldri dóttur Sigríðar eftir snjó­flóðið í Súðavík: „Biðin var skelfi­lega löng“

Sigríður Rannveig Jóns­dóttir er nýjasti gestur hlað­varps­þátt­ar­ins Mann­lífið. Hún hefur gengið í gegnum ótrú­legar raunir á lífs­leið­inni en í jan­úar árið 1995 missti hún unga dóttur sína í snó­flóð­inu í Súðavík sem og tengda­for­eldra. Hér er brot úr fyrra hluta við­tals­ins: Þegar snjó­flóðið skall á þorpið í Súðavík snemma morg­uns 16. jan­úar 1995, kastað­ist Sigríður Rannveig út úr hús­inu og...
Guðni mismælti sig á kosningafundi: „Myndi aldrei gegna þessu embætti í meira en 12 kjörtímabil“
Innlent

Guðni mis­mælti sig á kosn­inga­fundi: „Myndi aldrei gegna þessu emb­ætti í meira en 12 kjör­tíma­bil“

Frá­far­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son er nýjastii gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varps­þætt­inum Mann­lífið. Þeir félagar spjöll­uðu saman í Árnes­hreppi á Ströndum en þar var Guðni í sinni síð­ustu opin­beru heim­sókn sinni sem for­seti Íslands en hann afhendir Höllu Tóm­as­dóttur lyk­il­inn að Bessa­stöðum í lok júlí. Reynir spyr Guðna hvort það hafi verið erfið ákvörðun að láta gott heita eftir...
Guðni fær sér aldrei meira en tvö ölglös: „Þarf að vera tilbúinn ef það fer að gjósa við Grindavík“
Innlent

Guðni fær sér aldrei meira en tvö ölglös: „Þarf að vera til­bú­inn ef það fer að gjósa við Grinda­vík“

Frá­far­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son er nýjastii gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varps­þætt­inum Mann­lífið. Þeir félagar spjöll­uðu saman í Árnes­hreppi á Ströndum en þar var Guðni í sinni síð­ustu opin­beru heim­sókn sinni sem for­seti Íslands en hann afhendir Höllu Tóm­as­dóttur lyk­il­inn að Bessa­stöðum í lok júlí. Reynir spyr Guðna hvað sé erf­ið­asta verk­efnið sem hann hefur innt af hendi í...
Foreldrar Ingva Hrafns skildu þegar hann var fimm ára: „Þetta var örugglega erfitt fyrir þá báða“
Innlent

For­eldrar Ingva Hrafns skildu þegar hann var fimm ára: „Þetta var örugg­lega erfitt fyrir þá báða“

Þann 5. maí síð­ast­lið­inn fékk Tómas Ingvason mat­reiðslu­mað­urþá harma­fregn að sonur hans, Ingvi Hrafn, hefði tekið líf sitt á Litla-Hrauni. Tveimur dögum áður hafði hann beðið um aðstoð vegna and­legra erf­ið­leika. Enginn tók marka á neið­ar­kalli hans. Sléttum sex árum áður lést annar sonur hans svip­lega á Spáni, aðeins þrí­tugur að aldri. Hann berst nú fyrir því að aðdrag­and­inn að...
„Tilhæfulausar ásakanir um nauðgun eru líka hryllilegur glæpur“
InnlentMannlífið

„Til­hæfu­lausar ásak­anir um nauðgun eru líka hrylli­legur glæpur“

„Nauðgun er einn alvar­leg­asti glæpur sem um getur. Hrylli­legur glæpur. Til­hæfu­lausar ásak­anir um nauðgun eru líka hrylli­legur glæpur,“ segir Frosti Logason í við­tali við Reyni Trausta­son. Þar ræða þeir um þá bar­áttu sem Frosti hefur mátt heyja eftir alvar­legar ásak­anir frá fyrr­ver­andi kær­ustu sinnar og fyrrum þátta­stjórn­anda og bar­áttu­kon­unni Eddu Falak. Í við­tal­inu gengst Frosti við því að hafa átt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins