„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Linda segir Íslendinga skaða hesta: „Eiga erfitt með að draga andann eðlilega“

Linda segir Íslendinga skaða hesta: „Eiga erfitt með að draga andann eðlilega“
Linda vill betri með­ferð á hrossum – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd: Landsmot.is

Landsmót hesta­manna hefst í dag og er við­burð­ur­inn stór dagur á hverju ári í lífi hesta­manna sem koma af öllu land­inu á hvert til að keppa í hesta­mennsku. Linda Karen Gunn­ars­dóttir hefur þó áhyggjur af hest­unum sem taka þátt í mót­inu og bendir á að rann­sóknir hafi sýnt að hestum á sem keppa á mótum hér á landi líði illa.

„Í nýlegri rann­sókn J.W. Christensen og fl. (2024) var hegðun hrossa í keppni hér á landi skoðuð með áherslu á merki um sárs­auka eða óþæg­indi. Rann­sak­endur not­uð­ust við mynd­bands­upp­tökur. Nið­ur­stöður sýndu að hegðun sem bendir til að hrossum líði illa sé þó nokkuð algeng í keppni, sér­stak­lega þegar riðið er tölt (T1) eða skeið. Dæmi um hegðun sem bendir til sárs­auka hjá hrossum eru m.a. tagl­sláttur, teygð efri vör, hrossið opnar munn­inn ítrekað svo sést í tennur, það hristir höf­uðið og hækkar eða lækkar höfuð í reið til að kom­ast undan taum­haldi knapa. Rann­sak­endur benda á að þetta þurfi að rann­saka frekar en nið­ur­stöður séu í sam­ræmi við aðrar sam­bæri­legar rann­sóknir sem gerðar hafa verið í öðrum hesta­í­þróttum erlendis,“ skrifar Linda í pistli sem birt­ist á Vísi en hún er for­maður Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands.

Vill sporna við þess­ari þróun

Linda telur að mik­il­vægt sé að þessi mál séu skoðuð og meiri áhersla verði lögð á líðan hesta. „Und­an­farin ár er t.d. orðið algeng­ara að sjá hross í keppni með höf­uðið þröngvað niður og að kverk­inni þannig þau eiga erfitt með að draga and­ann eðli­lega sem er óvið­un­andi. Það er nauð­syn­legt að spornað sé við þess­ari þróun. Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands vill benda á að sýn­ingar og keppni á hestum á aldrei að vera á kostnað vel­ferðar og heilsu þeirra.“

Þá nefnir Linda einnig að mótum í eins og Lands­mót­inu sé tón­list spiluð hátt og slíkt skapi streitu fyrir hesta. „Sumir þulir hvetja jafn­vel áhorf­endur til að fagna á meðan hrossin eru í braut, eins og að þenja bílflautur, klappa eða hrópa. Hross eru flótta­dýr sem í eðli sínu forð­ast hávaða og hafa mun næm­ari heyrn en mann­eskjur. Hross upp­lifa því almennt streitu í slíkum aðstæðum en geta yfir­leitt afborið þær séu þau und­ir­búin fyrir það. Hross geta hins vegar brugð­ist við t.d. með því að fæl­ast, flýta sér eða missa ein­beit­ingu sem þá leiðir til þess að knapar þurfa að taka fastar í taum­inn en ann­ars hefði þurft.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins