Leikkonan Shelley Duvall er látin, 75 ára að aldri, eftir erfiða baráttu við sykursýki.
Dan Gilroy, lífsförunautur Shelley sagði TMZ-slúðurfréttasíðunni að hann hafi fundið Shelley meðvitundarlausa á heimili þeirra í Texas klukkan sjö í morgun. Hann segir að Shelley hafi verið með heimahjúkrun og rúmliggjandi síðustu mánuði á meðan hún glímdi við fylgikvilla sykursýki. Hann segir að hún hafi dáið í svefni.Shelley er hvað þekktust fyrir ógleymanlegt hlutverk hennar sem Wendy Torrance í einu af meistaraverki Stanley Kubrik, The Shining, sem gerð var eftir skáldsögu Stephen King en þar lék hún á móti Jack Nickolson.

Það var leikstjórinn Robert Altman sem uppgötvaði Shelley snemma á áttunda áratugnum í heimaríki hennar, Texas og brátt hafði hún leikið í sjö kvikmyndum, meðal annars Brewster McCloud, Nashville og Thieves Like Us. Árið 1977 lék hún í kvikmynd Altmans, 3 women en hlutverkið færði henni tilnefningu sem besta leikkonan á Cannes kvikmyndahátíðinn.
Þá lék Shelley einnig í aukahlutverki árið 1977, í mynd Woody Allen, Annie Hall og svo í Stjána Bláa (e. Popeye) árið 1980 þar sem hún lék Olive Oyl, á móti Robin Williams heitnum.Seint á níunda áratugnum var hún meira í sjónvarpinu en á kvikmyndatjaldinu en hún sá til að mynda um barnaþáttinn Faerie Tale Theatre.
Síðasta kvikmyndahlutverk hennar áður en hún hætti kvikmyndaleik árið 2002 var í myndinni Manna from Heaven.
Árið 2016 birtist hún svo í sjónvarpsþætti Dr. Phil McGraw þar sem hún sagðist vera að glíma við andlega heilsu og að hún þyrfti hjálp. Dr. Phil var gagnrýndur mjög fyrir þáttinn en töldu margir hann vera að nýta sér andlega vanheilsu leikkonunnar sér til framdráttar.


























Athugasemdir