Banatilræðismaður Donalds Trump, Thomas Matthew Crooks, var neitað um inngöngu í riffilklúbb menntaskólans síns, að hluta til vegna þess að hann þótti léleg skytta.
Hinn tvítugi Crooks, sem skotinn var til bana af leyniskyttu á laugardaginn, eftir að hann hóf skothríð á kosningafund Donalds Trump í Pennsylvaníu, reyndi að komast inn í riffilklúbb menntaskólans síns, samkvæmt Frederick Mach, sem nú er formaður klúbbsins en hann ræddi við NY Post.
Annar meðlimur í klúbbnum, Jonathan Myers, sagði miðlinum að eitthvað hafi verið í „ólagi“ með hann, eitthvað sem var bara ekki rétt. Sagt er að hann hafi átt í undarlegum samskiptum við nemendur og þjálfara.
Eins og margsinnis hefur áður komið fram, klifraði Crooks upp á lága byggingu rétt utan við kosningafundinn og byrjaði að skjóta með AR-15 byssu, 119 metrum frá Donald Trump.
Einn af fyrrum samnemanda Crooks sagði að hann hefði verið lagður í einelti af öðrum nemendum og hafi verið lýst sem „útskúfuðum“.
Hér má sjá myndskeið af Crooks sem náðist rétt áður en hann hóf skothríðina.


























Athugasemdir