„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mál Páls verði tekið af Akureyrarlögreglu: „Bendir til algers viljaleysis til að upplýsa málið“

Mál Páls verði tekið af Akureyrarlögreglu: „Bendir til algers viljaleysis til að upplýsa málið“
Páll Stein­gríms­son.

Rétt­ar­gæslu­maður Páls Stein­gríms­sonar krefst þess að rann­sókn á byrl­un­ar­mál­inu svo­kall­aða verði tekið af lög­regl­unni á Norð­ur­landi eystra og flutt milli lög­reglu­um­dæma en rann­sókn hefur nú staðið yfir í ríf­lega þrjú ár. Sak­sókn­ari telur hins vegar ekki ástæðu til að færa málið yfir á annað lög­reglu­um­dæmi en hefur beðið lög­regl­una á Norð­ur­landi eystra að hraða rann­sókn­inni eins og hægt er.

Mannlíf er með undir höndum bréf sem Eva Hauks­dóttir, rétt­ar­gæslu­maður Páls Stein­gríms­sonar, sendi rík­is­sak­sókn­ara þann 9. júlí síð­ast­lið­inn. Þar krefst Eva þess að rann­sókn á máli skjól­stæð­ings síns verði flutt milli lög­reglu­emb­ætta, sem sagt frá lög­regl­unni á Norð­ur­landi eystra yfir á annað lög­reglu­emb­ætti. „Erindið varðar rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra á atvikum sem áttu sér stað á Akureyri í maí 2021 og leiddu til þess að skjól­stæð­ingur minn Páll Stein­gríms­son, fékk stöðu brota­þola í saka­máli,“ segir meðal ann­ars í upp­hafi bréfs­ins.

Atvikið sem um er rætt er eitrun fyrr­ver­andi eig­in­konu Páls, en hún hefur við­ur­kennt verkn­að­inn, stuld á síma hans á meðan hann lá með­vit­und­ar­laus á sjúkra­hús­inu á Akureyri og brot gegn frið­helgi einka­lífs­ins en rök­studdur grunur er um að sím­inn hafi verið opn­aður af tækni­manni á RÚV og efni úr honum klón­aður yfir í annan síma en þeim gögnum svo dreift á blaða­menn ann­arra miðla.

Eva segir rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eysta hafa verið „í skötu­líki“ og að það virð­ist sem „lög­regl­una á Norð­ur­landi eystra skorti vilja eða getu til að upp­lýsa málið“.

„Rannsókn hefur nú staðið yfir í meira en þrjú ár. Hún hefur að mínu mati verið í skötu­líki og virð­ist lög­regl­una á Norð­ur­landi eystra skorta vilja eða getu til að upp­lýsa málið. Lítið virð­ist miða og er það haft eftir sak­sókn­ara að vonir standi til þess að rann­sókn ljúki bráð­lega. Auðvitað ætti rann­sókn að vera lokið en þessu er lýst yfir enda þótt helsti sak­born­ingur í mál­inu hafi ekki verið spurður út í mik­il­væg­ustu atriði máls­ins og þrátt fyrir að sá sem tók við síma brota­þola hafi ekki verið boð­aður til yfir­heyrslu.“ 

Þá seg­ist Eva hafa gert alvar­legar athuga­semdir við rann­sókn lög­regl­unnar á mál­inu 26. sept­em­ber 2022 og kraf­ist úrbóta með ýtar­legum lýs­ingum á því hvað þyrfti að rann­saka sér­stak­lega en að þeim kröfum hafi lítið verið sinnt.

„Jafn­framt hefur Rík­is­út­varpið það eftir lög­reglu að óvíst sé að gögn frá erlendum sam­skipta­veitum (þar er átt við Google) muni nokk­urn­tíma ber­ast. Þá hefur helsta sak­born­ingi í mál­inu verið synjað um að fá að tjá sig við lög­reglu og leggja fram gögn. Telur und­ir­rituð útséð um að lög­reglan á Norð­ur­landi eystra muni sinna rann­sókn máls­ins af fag­mennsku og er því farið fram á að öðru lög­reglu­emb­ætti verði falin rann­sókn þess.“

Málsatvik

Eva lýsir síðan máls­at­vikum í hnot­skurn í bréfi sínu til rík­is­sak­sókn­ara:

„Skjól­stæð­ingur minn, og brota­þoli í mál­inu, Páll Stein­gríms­son, starf­aði sem skip­stjóri hjá Samherja um langt ára­bil og skrif­aði hann nokkrar greinar þar sem hann gagn­rýndi umfjöllun fjöl­miðla um það fyr­ir­tæki. Þann 3. maí 2021 var Páll fluttur á gjör­gæslu með heift­ar­leg eitr­un­ar­ein­kenni. Töldu læknar ein­kennin stafa af sljóvg­andi lyfi, en hann kann­að­ist ekki við að hafa tekið nein lyf af sjálfs­dáðum. Senni­leg­ast var talið að ein­kennin hefðu komið fram vegna svefn­lyfs­ins Imovane, sem er lyf­seð­ils­skylt. Virka efnið í því er zopiclone sem getur valdið miklum skaða og jafn­vel dauða, sé það tekið í óhóf­legu magni, eins og nýlegar rann­sóknir stað­festa. Imovane var til á heim­ili Páls og upp­lýsti hann síðar lög­reglu um að þáver­andi eig­in­kona hans, hefði skömmu áður beðið sig að útvega sér Imovane og hefði hann fengið það upp­á­skrifað fyrir hana í eigin nafni. Sömu­leiðis var til á heim­il­inu lyfið Tradolan sem einnig getur valdið eitrun. Á meðan skjól­stæð­ingur minn lá nær dauða en lífi á gjör­gæslu var sími hans tek­inn frá honum og skilað aftur til hans. Þegar hann rank­aði við sér aftur mörgum dögum síðar, sá hann að átt hafði verið við sím­ann og voru greini­leg merki um að sím­inn hefði verið „klón­aður“, þ.e. að nákvæmt afrit af öllum gögnum sem á sím­anum voru hefðu verið vistuð og þau gerð öðrum aðgengi­leg. “

Þá segir Eva að eig­in­konan fyrr­ver­andi hafi tjáð lög­reglu að hún hafi tekið sím­ann og komið honum í hendur starfs­manns Rík­is­út­varps­ins. Hún sé haldin alvar­legum geð­sjúk­dómi og hafi talið að menn á vegum Samherja vildu sér illt og „að eina leiðin til að forða sér frá hættu væri að koma til fjöl­miðla upp­lýs­ingum“ sem skjól­stæð­ingur Evu byggi yfir. Segir Eva að það sé „hafið yfir skyn­sam­legan vafa“ um að eig­in­konan fyrr­ver­andi hafi tekið síma Páls og komið í hendur blaða­manna. „Bendir margt til þess að verkn­að­ur­inn hafi verið fyr­ir­fram skipu­lagður og ein­hverjir fjöl­miðla­menn verið með í ráðum.“

Í bréf­inu útlistar Eva allt það sem rann­sókn lög­reglu ætti að snúa að, sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem fyrir liggi en það er eft­ir­far­andi:

    1. hvort skjól­stæð­ingi mínum hafi verið vís­vit­andi byrlað sljóvg­andi lyf
    2. ef svo er, hver sé ábyrgur og hvort ein­hverjir aðrir hafi átt hlut að máli eða vitað af því
    3. hvort tengsl séu milli skyndi­legra veik­inda Páls og þess að sími hans var tek­inn
    4. hver tók við sím­anum og í hvaða til­gangi
    5. hvort aðrir, og þá hverjir, hafi á ein­hverjum tíma haft aðgang að gögnum úr sím­anum
    6. hvort sím­inn var afrit­aður í heilu lagi og ef svo er, hvað varð um afritið
    7. ef sím­inn var afrit­aður, hver gerði það og í hvaða til­gangi
    8. hvort gögnin eru ennþá öðrum aðgengi­leg og þá hverjum

„Rannsókn lög­reglu virð­ist aðeins að litlu leyti hafa beinst að ofan­greindu og bera gögn máls­ins ekki með sér hvað er í raun til rann­sóknar. Þá hefur lög­reglan á Norð­ur­landi eystra ekki gripið til aug­ljósra ráða til að upp­lýsa um þessi atriði,“ segir Eva í bréf­inu eftir þessa útlistun.

Eldri athugasemdir

Aukreitis telur Eva upp þær athuga­semdir sem hún bar fram við lög­reglu vegna rann­sókn­ar­innar árið 2022.

Fyrsta athuga­semdin snýr að skýrsla­tökum sem hófust að mati Evu allt of seint. Eig­in­konan fyrr­ver­andi, sem grunur er um að hafa byrlað skjól­stæð­ingi hennar lyf, hafi ekki verið yfir­heyrð fyrr en fimm mán­uðum eftir að kæra var lögð fram.

Aðrar athuga­semdir eru eft­ir­far­andi:

„Þótt kærða ját­aði að eigin frum­kvæði að hafa byrlað skjól­stæð­ingi mínum lyf var hún ekki spurð út í teg­und, magn eða neitt annað sem máli skipti, heldur komst verj­andi upp með að stöðva yfir­heyrslu í miðri játn­ingu.

Rök­studdur grunur um lyfja­byrlun var hunds­aður þar til var orðið of seint að fá lyfja­byrlun stað­festa með líf­sýni. 

Merki um að til­ræðið hafi verið fyr­ir­fram skipu­lagt og með vit­und ann­arra sak­born­inga hafa lítt verið rann­sökuð. Blaða­menn sem grun­aðir eru um að hafa tekið við síma skjól­stæð­ings míns og dreift upp­lýs­ingum úr honum voru yfir­heyrðir um frétta­skrif sín um svo­kall­aða „skæru­liða­deild Samherja“ en ekki um aðkomu sína að mál­inu.

Ekki er að sjá að lög­reglan hafi á nokkurn hátt reynt að kom­ast að því hvað varð um síma brota­þola og þar með um við­kvæm gögn um einka­líf hans og fjöl­skyldu hans eða reynt að koma í veg fyrir frek­ari brot.“ 

Segir Eva í bréf­inu að ofand­greindum athuga­semdum og kröfu um almenni­lega rann­sókn hafi ekki veirð sinnt. „M.a. var farið fram á dóm­kvaðn­ingu mats­manns til að meta hvort ástand brota­þola frá 3.-9. maí skýrist að ein­hverju eða öllu leyti af lyfjum sem hann kann­ast ekki við að hafa tekið af eigin frum­kvæði,“ segir Eva og heldur áfram: „Grein­ar­gerðir rétt­ar­meina­fræð­inga og Rann­sókn­ar­stofu í lyfja- og eit­ur­efna­fræði hafa engu ljósi varpað á veik­indi Páls og verður ekki séð að frek­ari rann­sókn hafi verið gerð á til­drögum veik­ind­anna þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir þar um og þrátt fyrir að lög­reglan hafi tekið undir þá skoðun að ástæða væri til að fá álit lyfja­fræð­ings.“

Nýjar athugsemdir

Þá útli­staði Eva einnig nýjar athuga­semdir við rann­sókn lög­reglu

Meðal nýrra athuga­semda er sú að vegna þess hve seint lög­reglan hóf rann­sókn eða mörgum vikum eftir að kæra var lögð fram, hafi verið oft seint að greina eitrun í blóði eða þvagi. „Það hefði þó verið hægt að greina eit­ur­efni í hári mörgum vikum eftir það. Það var ekki gert og því borið við að það þjón­aði ekki til­gangi þar sem brota­þoli hefði látið snögg­klippa á sér hárið. Að sjálf­sögðu hefði þó mátt rann­saka lík­ams­hár en það var ekki gert. “

Þá liggi fyrir gögn að sögn Evu „sem benda ein­dregið til þess að starfs­maður Rík­is­út­varps­ins hafi vitað af því“ að fyrr­ver­andi eig­in­kona Páls hygð­ist stela síma hans. „Skömmu fyrir atvikið tók Rík­is­út­varpið í notkun óskráð síma­númer sem er svo líkt síma­núm­eri skjól­stæð­ings míns að ótrú­legt er að það sé til­viljun. Telur skjól­stæð­ingur minn ein­sýnt að síma­núm­erið hafi verið keypt sér­stak­lega til að afrita síma hans. Lög­reglan hefur, mér vit­an­lega, ekki gert neinn reka að því að yfir­heyra útvarps­stjóra um það í hvaða til­gangi Rík­is­út­varpið lét starfs­manni sínum í té óskráð síma­númer eða hvort hann og/eða annað starfs­fólk RUV hafði ein­hverja vit­neskju um sam­skipti blaða­manna RÚV við Þórunni Hall­dórs­dóttur í aðdrag­anda veik­inda Páls eða eftir að hann veikt­ist. Útvarps­stjór­inn hafði alla­vega ekki verið boð­aður til skýrslu­töku þann 22. febr­úar sl. og má helst skilja á lög­reglu að það standi ekki til.“

Enn ein athuga­semdin snýr að stað­hæf­ingu lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra að rann­sóknin strandi á því að ekki hafi feng­ist gögn frá Google sem varpað gæti ljósi á málið. „Fyrir liggja gögn sem virð­ast sýna að lög­reglan hafi ekki kallað eftir gögnum frá google fyrr en í jan­úar 2023. Þrátt fyrir ítrekuð til­mæli hefur lög­reglan ekki feng­ist til að afhenda rétt­ar­gæslu­manni afrit af þeim sam­skiptum sínum við Google sem áttu sér stað eftir 2. febr­úar 2023.“ Segist Eva margoft hafa leitað til Google vegna lög­manns­starfa sinna og alltaf hafi henni verið svarað greið­lega og að sam­kvæmt upp­lýs­ingum á net­inu taki það venju­lega Google um tvo mán­uði að afhenda gögn.

Eva ritar: „Ótrú­verð­ugt er að Google hundsi beiðni frá lög­reglu, hvað þá í meira en ár, og telur und­ir­rituð mögu­legt að lög­reglan hafi ekki verið í reglu­legum sam­skiptum við Google vegna þess­arar gagna­öfl­unar. Að auki er lík­legt að lög­reglan hafi ekki óskað eftir gögnum fyrr en það var orðið um seinan en erfitt er að sjá að ástæða hafi verið til að draga það í 20 mán­uði að óska eftir þessum gögnum.“

Þá segir Eva að eig­in­konan fyrr­ver­andi hafi marg­sinni haft sam­band við Pál að eigin frum­kvæði og gefið honum upp­lýs­ingar um aðkomu blaða­manna að mál­inu. Þrátt fyrir að lög­reglan viti af því, hafi hún ekki verið boðuð til ský­slu­töku og „spurð út í þau atriði sem hún hefur rætt við brota­þol­ann og hefur heldur ekki feng­ist stað­fest að það standi til.“

Þá snýr ein athuga­semdin að því að Eva hafi bent lög­regl­unni á að skjól­stæð­ingur hennar hefði kom­ist að því hvaða maður hefði tekið við síma hans úr höndum fyrr­ver­andi eig­in­konu Páls en hún hafði sjálf sagt honum hver það væri. „Lög­reglan hafði ekki meiri áhuga á mál­inu en svo að farið var fram á að skjól­stæð­ingur minn hefði sam­band við lög­reglu sjálfur, sem hann gerði.“ Í kjöl­farið hafi lög­reglu verið afhent sím­tal þar sem eig­in­konan fyrr­ver­andi nafn­greinir mann­inn sem hún seg­ist hafa afhent sím­ann. „Hefur sá maður mér vit­an­lega ekki komið við sögu í rann­sókn lög­reglu. Þrátt fyrir að skjól­stæð­ingur minn hafi gengið eftir því hefur lög­reglan ekki gefið honum neinn ádrátt um að mað­ur­inn verði yfir­heyrður.“

Eva bendir einnig á að vitni hafi sagt Páli að 11. júní síð­ast­lið­inn hafi vitnið hitt fyrr­ver­andi eig­in­konu Páls á lög­reglu­stöð­inni á Akureyri en þar hafi hún verið með „þykkan bunka af gögnum“ og hafi beðið um að fá að tala við ákveð­inn lög­reglu­mann. Henni hafi hins vegar verið synjað um að fá að hitta lög­reglu­mann­inn og ekki boðið að hitta neinn annan og „að þrátt fyrir að hún ítrek­aði þá beiðni hafi hún ekki fengið nein svör um það hvenær hægt yrði að taka á móti henni.“

Síðasta athuga­semdin snýr að ummælum vara­sak­sókn­ara um málið.

„Að lokum má það undrum sæta að í máli þar sem fyrir liggur rök­studdur grunur um til­raun til lyfja­byrl­unar sem hefði getað leitt til dauða brota­þola, skuli vara­sak­sókn­ari lýsa því yfir við fjöl­miðla að málið sé ekki í for­gangi þar sem „stærri mál“ sitji fyrir. Auk þess sem slík ummæli eru til þess fallin að valda brota­þola miska, benda þau ein­dregið til þess að lög­reglan á Norð­ur­landi eystra taki rann­sókn máls­ins ekki alvar­lega og var þó fyrir gnótt vís­bend­inga þar um. Und­ir­rituð telur með öllu óásætt­an­legt að rann­sókn á mögu­legu bana­til­ræði sé á höndum lög­reglu­emb­ættis sem setur málið í flokk með óknyttum á borð við reið­hjóla­stuld eða ölvun á almanna­færi.“

Að lokum segir Eva að „hand­ar­bak­a­vinnu­brögð lög­reglu“ í mál­inu séu „með öllu óvið­un­andi og ósæm­andi í landi sem nýtur við­ur­kenn­ingar sem rétt­ar­ríki.“ Bætir hún við: „Ekki er nóg með að lög­reglan hafi allt of lítið gert til að rann­saka málið heldur er einnig erfitt að fá rann­sak­endur til að taka til greina gögn sem aðrir bein­línis leggja upp í hend­urnar á þeim. Umfram allt er það með ólík­indum að sak­born­ingi, sem grun­aður er um lífsógn­andi lyfja­byrlun og gefur sig fram á lög­reglu­stöð, sé neitað um við­tal. Bendir það til algers vilja­leysis lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra til að upp­lýsa málið.“

Í loka­orðum sínum krefst Eva að rík­is­sak­sókn­ari kalli eftir gögnum um sam­skipti lög­regl­unnar og Google og að málið verði flutt til ann­ars lög­reglu­emb­ættis.

Fjöldi fylgi­skjala fylgdu bréf­inu, mál­inu til stuðn­ings en verða ekki tíunduð hér.

Svar ríkissaksóknara

Rík­is­sak­sókn­ari svar­aði bréfi Evu 12. júlí síð­ast­lið­inn en þar seg­ist hann hafa haft sam­band við lög­reglu­stjórj­ann á Norð­ur­landi eystra og óskað upp­lýs­inga um fram­gang rann­sókn­ar­innar og fengið þau svör að rann­sóknin sé enn í gangi og til með­ferðar hjá rann­sókn­ar­deild emb­ætt­is­ins. Þá hafi lög­reglu­stjór­inn sent ítrekun vegna óska sinna um afhend­ingu gagna frá erlendum sam­skipta­veitum. Því telji rík­is­sak­sókn­ari ekki „efni til frek­ari aðgerða af sinni hálfu að svo stöddu“ en hafi óskað eftir því að lög­reglan hraði rann­sókn sinni.

Hér má lesa bréfið í heild sinni:

„Rík­is­sak­sókn­ara barst bréf þitt dags. 9. júlí 2024 þar sem gerðar athuga­semdir við rann­sókn ofan­greinds máls hjá lög­reglu og gerð er krafa um að rann­sókn máls­ins verði flutt milli lög­reglu­um­dæma. Und­ir­rituð hafði sam­band við emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra og óskaði eftir upp­lýs­ingum um fram­gang rann­sóknar í ofan­greindu máli og fékk m.a. þær upp­lýs­ingar að rann­sókn máls­ins væri ekki lokið og væri til með­ferðar hjá rann­sókn­ar­deild emb­ætt­is­ins. Þá hafi lög­reglu­stjóri sent ítrekun vegna rétt­ar­beiðna sem tengj­ast ósk lög­reglu­stjóra um afhend­ingu gagna frá erlendum sam­skipta­veitum þann 27. maí sl. og þar áður þann 13. febr­úar sl. 

Rík­is­sak­sókn­ari telur ekki efni til frek­ari aðgerða af sinni hálfu að svo stöddu en hefur fram­sent lög­reglu­stjóra athuga­semdir þínar við rann­sókn máls­ins og einnig hefur rík­is­sak­sókn­ari óskað eftir því við lög­reglu­stjór­ann á Norð­ur­landi eystra að hraða rann­sókn eins og hægt er. Sé óskað eftir frek­ari upp­lýs­inga um stöðu máls­ins eða eftir afhend­ingu gagna í mál­inu er hægt að hafa sam­band við emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra. 

Hulda María Stef­áns­dóttir 

sak­sókn­ari“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins