„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Flóttinn frá móðurmálinu svo æðisgenginn að það má ekkert vera skrifað á ylhýrri mállýskunni“

„Flóttinn frá móðurmálinu svo æðisgenginn að það má ekkert vera skrifað á ylhýrri mállýskunni“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn skel­eggi, Sig­mundur Ernir Rún­ars­son,mundar penn­ann af sinni alkunnu snilld.

Segir:

„Tvennt er í boði þegar tekið er á móti ferða­mönnum utan út heimi. Það er hægt að aðhæfa menn­ingu og þjón­ustu að erlenda gest­inum, ellegar að láta hann laga sig að sér­stöðu lands­ins. Íslend­ingar hafa í auknum mæli – og víða alger­lega – valið fyrri kost­inn,“ ritar Sig­mundur Ernir í grein sem birt­ist á DV.

Hann bætir þessu við:

„Í reynd má ganga svo langt og segja að ferða­þjón­ustan hér á landi fari ekki lengur fram á íslensku. Og þeim túristum sem halda að enska sé þjóð­tunga heima­manna er vita­skuld vor­kunn. Það fer allt fram á útlensku. Jafnt í orði og á borði. Og flótt­inn frá móð­ur­mál­inu er raunar svo æðis­geng­inn að það má helst ekk­ert lengur vera skrifað á ylhýrri mál­lýsk­unni. Hvorki skilti né skila­boð. Það er nefni­lega lík­ast því sem ferða­þjón­ustu­bændur haldi að túristar muni ekki skilja nokkuð ein­asta í sinn haus ef þeir ráfi um íslenskan veru­leika – á máli inn­fæddra – og endi hér að lokum sem stranda­glópar fyrir vikið. Þess þá heldur að leið­segja þeim í einu og öllu á erlendri tungu.“

Sig­mundur Ernir segir einnig:

„Að ein­hverju leyti er þetta óvið­ráð­an­legt, svo allrar sann­girni sé gætt, því svo fálið­aðir eru heima­menn á móti stríðum straumi ferða­manna að þeir þurfa lið­sinni. Starfs­menn íslenskrar ferða­þjón­ustu eru að stærstum hluta útlend­ingar sem ætla sér að dvelja hér um skamma hríð. Þeim er ekki nokkur akkur í því að læra tungu­mál heima­manna – og svo virð­ist þar að auki sem íslenskir vinnu­veit­endur þeirra hafi lít­inn sem engan áhuga á því að kenna þeim ein­föld­ustu orðin í mál­inu. Og hafa senni­lega ekki tíma til þess í önnum dags­ins. Svo sem að kaffi merki coffee. Og bjór þýði beer. Fyrir vikið er upp­lifunin af Íslandi helst til útlensk.“

Hann nefnir líka að „í hljóði og fyrir sjónum þeirra, sem sækja landið heim, blasir við inn­fluttur orða­sveimur. Aðflutt menn­ing. Alls staðar. Alltaf. Coffee í stað kaffis. Og þetta er þeim mun snaut­legra þegar fyrir liggur að flestir erlendu ferða­menn­irnir sem sækja norður á hjara ver­aldar eru hingað komnir til að sjá ein­staka menn­ingu á endi­mörkum jarðar.

Þeim hefur verið sagt að hér hafi fámenn þjóð hafst við í rífar tíu aldir við svo mót­drægar aðstæður af völdum ein­angr­unar, far­sótta, kulda, móðu­harð­inda og ann­arra nátt­úru­ham­fara að hún hafi verið við það að deyja út þegar verst lét. Samt hafi hún varð­veitt tungu sína, menn­ingu og sögu betur en langtum fjöl­menn­ari þjóðir – og lært að laga sig svo vel að ein­stöku og ólýs­an­legu nátt­úru­fari að hún hafi að lokum náð að beisla hana og nýta sér til fram­fara og heilla.

En svo lendir sá hinn sami og fréttir af þessu landi inni í plebba­legri leik­mynd ein­hverrar bjána­legrar B-myndar þegar hann ráfar upp Lauga­veg­inn í Reykja­vík sum­arið 2024. Hann hittir fyrir þjóð sem hefur tapað sjálfs­mynd sinni – og heldur ekki lengur þræði í tóskap ald­anna. Til sölu er aðal­lega inn­flutt drasl af fljót­ustu og for­smáð­ustu færi­böndum heim­skap­ít­al­ism­ans. Og sölu­mað­ur­inn talar lélega ensku – og hefur að lokum ekki hug­mynd um hvað kaup­and­inn á við í lok við­skipt­anna, þegar hann spyr til vegar, því hann langar að ganga upp að Hall­gríms­kirkju.“

Hann segir að það sama eigi líka við um „elsku­lega en inn­flutta leið­sögu­menn sem standa á gati upp í öræfum, af því að þeir þekkja ekki umhverfið. En kunna þó lík­lega eitt­hvað í ensku. Og geta gúglað sitt­hvað um landa­merkin og sög­una. Einmitt að Laxness hafi unnið Óskarinn. En Björk Nóbelinn.

Íslenskir ferða­langar sem hafa verið á vappi á meg­in­landi Evrópu í sumar – og þar á meðal í mörgum helstu stór­borgum álf­unnar – segj­ast taka eftir því heima­menn­ingin hafi ekki tapað fyrir erlendum áhrifum. París sé enn þá frönsk. Barcelóna katólónsk. Og Róm sé ítölsk. Engum heil­vita manni í þessum borgum detti til hugar að ávarpa gesti sína á ensk­unni einni saman, þá hina sömu föru­menn og dásama heima­skiltin – og finnst eins og þeir séu einmitt komnir til útlanda. Líkt og að var stefnt.

Á meðan þorir íslensk ferða­þjón­usta ekki að koma fram í eigin nafni. Og hún mis­skilur alger­lega ein­staka sér­stöðu sína. Hún velur að vera önnur en inni­haldið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins