„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dóri í Fjallakofanum heldur afmæli: „Gjaldþrotið hjálpaði mér“

Dóri í Fjallakofanum heldur afmæli: „Gjaldþrotið hjálpaði mér“
Halldór Hreins­son. Mynd úr einka­safni.

„Fjalla­kof­inn var stofn­aður árið 2004, af Jóni Inga Sig­valda­syni og Halldór Hreins­syni tæpum tveimur árum eftir gjald­þrot Nanoq, sem var á þeim tíma ein stærsta lífstíls og úti­vist­ar­verslun lands­ins. En eig­endur Nanoq keyptu á sínum tíma rekstur Skáta­búð­ar­innar, og inn­lim­uðu inn í versl­un­ina, en eftir tæp þrjú ár varð Nanoq gjald­þrota með til­heyr­andi umhleyp­ingum á mark­aðnum.

„Við sáum mikil tæki­færi á mark­aðnum sem var opinn og leit­andi eftir gjald­þrot NANOQ. Það má því með sanni segja að gjald­þrotið hjálp­aði mér, “ segir Halldór Hreins­son, kaup­maður í Fjalla­kof­anum, sem hann rekur í dag með fjöl­skyldu sinni og sam­starfs­fé­lögum, Hilmari Má Aðal­steins­syni og Jóni Heiðari Andr­és­syni.

Það er ekki ofsögum sagt að stigið hafi verið gæfu­spor með stofnun Fjalla­kof­ans því 20 árum síðar er versl­unin komin með firna­sterka stöðu á mark­aðnum, en Fjalla­kof­inn byrj­aði starf­semi í 17 fer­metra rými í Bæj­ar­hrauni í Hafn­ar­firði, en er nú á tæp­lega 1700 fer­metrum í Hall­ar­múla 2.

talan sautján er nokk­urs konar happa­tala

„Það má því með sanni segja að talan sautján er nokk­urs konar happa­tala hjá okkur,“ segir Halldór sem gjarnan er kall­aður Dóri í Fjalla­kof­anum.

Halldór má segja að hafi alist upp í versl­un­ar­rekstri, þar sem hann tók fyrstu sporin í mat­vöru­versl­un­inni Mela­búðin sem for­eldrar hans áttu og ráku með mjög góðum árangri, en eftir að hafa klárað við­skipta­fræð­ina í Háskóla Íslands, tók hann að sér versl­un­ar­stjóra­stöðu í Verslun Sigurðar Pálma­sonar á Hvamms­tanga. En fljót­lega kom til­boð um að taka við rekstri Skáta­búð­ar­innar sem hann sam­þykkti.
„Ég  tók við rekstri Skáta­búð­ar­innar, sem þá var í eigu Hjálp­ar­sveitar Skáta í Reykja­vik, í árs­byrjun 1987 til árs­ins 1998. Ég sat í stjórn Hjálp­ar­sveit­ar­innar og hafði lengi verið félagi HSSR og er enn,“  segir Halldór.

Fjalla­kof­inn í Hall­ar­múla.

Eftir þann tíma lá leiðin inn í  Fálkann, sem þá var sterkur á þessu sviði, sér­stak­lega með reið­hjól á sumrin og skíði að vetri til. Þaðan fór Halldór til Útilífs sem á þessum tíma var komið í eigu Baugs. Hann stýrði Útilífi fram í lok árs 2021. Eftir að hafa farið í gegnum allar þessar versl­anir í úti­vist­ar­geir­anum þá vildi Halldór fara eigin leið með eigið fyr­ir­tæki og þar kom eins og áður segir gjald­þrot Nanoq til hjálpar við að fá í hend­urnar vöru­merki sem sköp­uðu grund­völl til þess að stofna og hefja rekstur á  úti­vist­ar­versl­un­inni  Fjalla­kof­anum sem nú 20 árum síðar er með mikið úrval af vönd­uðum úti­vist­ar­vörum frá heims­þekktum fram­leið­endum s.s. Scarpa, Pata­gonia, Arcteryx,  Smartwool, Völkl, Dalbello, Gregory, Leatherman og fleirum.

„Skáta­upp­eldið er oft van­metið af þeim sem það ekki þekkja,”  segir Halldór sem er nýkom­inn af Lands­móti Skáta þar sem hátt í 3000 skátar skemmtu sér og sýndu enn og aftur hversu sterkir þeir eru bæði and­lega, og í bún­aði þegar að veð­urguð­irnir sendu á þá eitt versta veður sum­ars­ins, sem þeir stóðu af sér og fóru glaðir og end­ur­nærðir heim til síns heima, en þarna voru rúm­lega 1500 erlendir skátar sem komu víða að.   

Það verður mikið um dýrðir og gleði á þessum tíma­mótum Fjalla­kof­ans þ.e. þegar að starfs­fólk og eig­endur fagna 20 ára afmæli hans núna síð­ustu daga júlí­mán­aðar. Það er klár­lega afmæli sem eftir verður tekið og því fær það að standa alveg fram að versl­un­ar­manna­helg­inni. Á þessu 20 ára afmæli verða ekki bara veg­leg til­boð heldu einnig  við­burðir sem verða kynnt eins vel og hægt er á hverjum degi, og því er það hvati að fylgj­ast vel með á sam­fé­lags­miðl­unum og ekki síst fyrir það  að það verður skemmti­legur leikur síð­ustu vik­una sem allir verða að taka þátt í til þess að eiga mögu­leika á að vinna glæsi­leg verð­laun.

Hér má finna ítar­legt podcast-við­tal Mannlífs við Halldór sem tekið var á sínum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins