„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gunnar er æfur yfir afborgunum af húsnæðisláninu: „Það er einhver að taka mig í ósmurt …“

Gunnar er æfur yfir afborgunum af húsnæðisláninu: „Það er einhver að taka mig í ósmurt …“
Gunnar Dan Wiium

„Í lok fyrsta árs­fjórð­ungs á þessu ári hækk­uðu afborg­anir mínar af hús­næð­is­lán­inu um 70% pró­sent. Lánið hafði verið á læstum vöxtum í nokkur ár og svo bara sísona opn­ast hurðin inn í aðeins bitr­ari veru­leika. Þessi hækkun hafði ekk­ert gríð­ar­leg áhrif á okkur hjónin þar sem við erum bæði tvö með stöðugar tekjur og lánið þannig séð ekki hátt en maður spyr sig hvert pen­ing­ur­inn, mis­mun­ur­inn fari?“ Þannig hefst færsla Gunnars Dan Wiium, þátta­stjórn­anda hlað­varpsveit­unnar Þvotta­húsið, versl­un­ar­stjóra og umboðs­manns­ins sem birt­ist á Facebook í morgun.

Í færsl­unni fer Gunnar mik­inn gagn­vart kerf­inu sem virð­ist vera hannað til þess að halda almenn­ingi niðri. Í næstu orðum sínum seg­ist Gunnar vera ein­faldur maður en að hann viti að eitt­hvað er ekki að ganga upp í hús­næð­is­málum á Íslandi.

„Málið er að ég er bara svona ein­faldur maður sem mætir með nest­i­s­pakka í vinn­una og skoða aldrei launa­seðla en eitt veit ég og það er að ég er að borga það sem ég hélt að væru yfir­drátt­ar­vextir af hús­næð­is­lán­unum mínum. En eins og svo oft áður þá hef ég rangt fyrir mér því dag eru yfir­drátt­ar­vextir það sem fyrr og síðar voru og eru hand­rukk­ara­vextir.

Það er ein­hver að taka mig í ósmurt í rass­gatið en ég veit bara ekki hver eða hverjir eru að því. Líklega er um hópefli að ræða, mögu­legt sam­særi gegn lág­launa­fólki og milli­stéttin má blæða þó svo að útrým­ing hennar má taka tíma, allt til 2030, en sam­kvæmt því sem álhatt­arnir segja þá mun ég ekki eiga neitt árið 2030, ekki þurfa að eiga neitt árið 2030 en ég mun vera ham­ingju­samur.“

Því næst talar Gunnar um bank­ana:
„Á meðan ég og mínir glíma við “vina­lega” hand­rukk­ara­vexti og 8 hund­ruð krónu tann­kremstúbur les ég um tveggja stafa hagn­að­ar­tölur í millj­örðum bank­ana. Banka­stýran stillir sér upp fyrir mynda­töku í nýjum höf­uð­stöðvum sem byggður er úr stuðla­bergi og kristal og hún brosir sínu breið­asta yfir árangri í starfi. Það er sem hún og hennar líkir séu ofbeld­is­menn­irnir í mínu lífi og yfir vel­gengni sinni brosir hún í dragt­inni sinni, bláu dragt­inni sinni.“

Segist Gunnar þó ekki vera að ráð­asta á eina ákveðna mann­eskju, heldur hug­mynda­fræði.

„Ég er ekki að ráð­ast neinn ein­stak­ling heldur hug­mynd­ar­fræð­inni sem ein­stak­ling­ur­inn þjónar því fyrir ekki svo mörgum árum síðan var þetta ekki svona. Það er ekk­ert eðli­legt að á tíu árum er húsið mitt búið að þre­fald­ast í verði og fyrir mér er það alls ekk­ert gleði­efni.

Þegar ég tví­tugur keypti ég mér ein­býl­is­hús á Grett­is­götu fyrir 6.5 millj­ónir og ég var á þeim tíma nemi í húsa­smíði og á nema­launum og ég var einn. Ég réð við afborg­anir af lánum þó svo að ég þurfti að vera spar­samur.“

Gunnar segir að á þeim 28 árum sem liðið hafa, hafi fast­eigna­verð tutt­ugu­fald­ast.

„Síðan þá, á 28 árum hefur fast­eigna­verð tutt­ugu fald­ast og vextir nán­ast þre­fald­ast. Launin hins vegar hafa ekki tutt­ugu­fald­ast, ef svo, væri nemi í húsa­smíði með 30 þús­und í tíma­laun en ég get lofað ykkur því að svo er alls ekki. Í þá daga gat ungt fólk hent í útborgun á íbúð með því að leggja fyrir í nokkra mán­uði eða ár. Í dag hins vegar er staðan allt önnur. Í dag tæki það ein­stak­ling ca 10 – 15 ár að leggja fyrir útborgun í 3-4 her­bergja íbúð ef hann myndi setja 70 þús­und til hliðar á hverjum mán­uði.“

Að lokum segir hann að kerfið sé „holótt og gallað“ og að það haldi „stétt­ar­skiptum þræl­dóm“.

„Svo er það Sigga skúr­ing­ar­kona sem á ekki fyrir útborgun í íbúð og kemst ekki í gegnum greiðslu­mat fyrir hús­næð­is­láni en samt má hún sitja í 350 þús­und króna leigu ein­hver­staðar í Njarðvík undir járn­hæl fast­eigna mafí­unar. Og talandi um greiðslu­mat, ég fór í greiðslu­mat þegar ég end­ur­nýj­aði mín lán fyrir nokkrum árum og fór í óverð­tryggt en það var aldrei tekið inn í jöfn­una að afborg­anir myndu hækka um 70% nokkrum árum seinna á meðan launin mín hafa ekki gert það. Ef það hefði verið tekið í jöfn­una hefði ég ég aldrei farið þar í gegn svo þetta er holótt og gallað kerfi sem heldur okkur í þræl­dóm, stétt­ar­skiptum þræl­dóm og þræla­sal­inn, ofbeld­is­mað­ur­inn eða konan er á for­síð­unni umkringd stuðla­bergi og kristal og á hlað­borði hennar í dag er naut í bernes og ætli Mc Gauti skemmti ekki á fre­dags­barnum með sína kúlu fyrir gigg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins