Lögregla í Kaliforníuríki rannsakar nú gróft brot sem átti sér stað í körfuboltaleik unglinga í bænum Alameda en þar stappaði 13 ára körfuboltamaður á höfði andstæðings síns í miðjum leik um síðustu helgi.
Atvikið gerðist í viðureign liðanna Payton’s Place og Tumakbo United sem fram fór í háskólanum í Alameda í Kaliforníu á sunnudaginn, þegar leikmennirnir börðust um boltann. Í atganginum féll 13 ára leikmaður Tumakbo United til jarðar er hann reyndi að halda boltanum frá varnarmanni. Upp úr engu blandaði annar leikmaður Payton’s Place sér í málið og traðkaði á höfði andstæðingsins. Dómari leiksins var fljótur að bregðast við og tók utan um árásarmanninn og þjálfari stökk einnig til og hjálpaði við að ýta leikmanninum út á hliðarlínuna.
Móðir leikmannsins sem stappað var á sagði að sonur hennar hafi fengið heilahristing í kjölfarið og sagði við ABC 7: „Maður sá greinilega stærð skósins á andliti hans.“Fjölskylda drengsins sem réðist á fórnarlambið sagði að hann hafi einfaldlega verið að hjálpa liðsfélaga sínum sem hann taldi hafa verið kýldur og sparkað í baráttunni um boltann áður en hann blandaði sér í málið.
Tumakbo United er filippseyskt-amerískt lið sem samanstendur af leikmönnum sem koma alls staðar af af landinu. Þjálfarar hafi þó sagt fjölmiðlum að þeir telji ekki að málið tengist kynþáttahatri.
Fjölskylda piltsins sem sparkað var í hefur nú tilkynnt málið til lögreglu og er rannsókn á málinu komin í gang.
Payton’s Place sendi frá sér afsökunarbeiðni vegna málsins þar sem sagði: „Hegðunin sem leikmaðurinn okkar sýndi er ekki ásættanleg og hún er tekin alvarlega. Við sættum okkur ekki við ofbeldi. Það er ætlast til að leikmenn okkar hegði sér af heilindum innan vallar sem utan. Á þessari stundu vinna bæði lið saman að því að leysa þetta mál.“
Liðið tilkynnti í gær að leikmaðurinn væri ekki lengur með liðinu.
Hér má sjá atvikið:


























Athugasemdir