„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sala Kerecis færir Vestfirðingum stórgróða – Guðni framkvæmdastjóri fær 200 milljónir króna í arð

Sala Kerecis færir Vestfirðingum stórgróða – Guðni framkvæmdastjóri fær 200 milljónir króna í arð
Suð­ur­eyri við Súg­anda­fjörð Mynd: afangar.is

Salan á ísfirska fyr­ir­tæk­inu Kerecis hefur gefið mörgum af sér gríð­ar­legan hagnað. Meðal þeirra sem njóta góðs af söl­unni er fisk­vinnslu­fyr­ir­tækið Klofn­ingur ehf. á Suð­ur­eyri sem fæst við að þurrka hausa í fjórum starfs­stöðvum á Vest­fjörðum. Klofn­ings­menn áttu stóran hlut í Kerecis og hagn­að­ist um tæp­lega 2,5 millj­arða króna á söl­unni.

Kerecis varð að stór­veldi eftir að hafa fundið leið til að breyta roði í lækn­inga­vöru. Fjöl­mið­ill­inn Bæjarins besta á Ísafirði fjallar um söl­una og reiknar út hve mikið níu hlut­hafar Klofn­ings fái í sinn hlut. Á aðal­fundi Klofn­ings var sam­þykkt að greiða tæp­lega 1,4 millj­arð króna í arð til hlut­hafa.

Stærsti eig­and­inn er Hrað­frysti­húsið Gunnvör hf. á Ísafirði með rúm­lega þriðj­ung hluta­fjár. Félagið fær með söl­unni tæpar 500 millj­ónir króna. Jakob Valgeir ehf. í Bol­ung­ar­vík á um 27 pró­senta hlut  og fær 369 millj­ónir króna.

Sigurmar ehf , sem er í eigu Guðna A. Ein­ars­sonar, fram­kvæmda­stjóra Klofn­ings, og Sigrúnar Sig­ur­geirs­dóttur Suð­ur­eyri, á tæp 15 pró­sent og fær 200 millj­ónir króna í arð­greiðslu.

Guðni Albert Ein­ars­son fram­kvæmda­stjóri.

Rekstur Klofn­ings ehf. hefur verið erf­iður und­an­farin  ár og er salan á Kerecis sann­nkölluð himna­send­ing fyrir fyr­ir­tækið srem nú er með rúman millj­arð króna í eigið fé. Í Bæjarins besta segir að grunn­rekstur félags­ins hafi verið erf­iður á árinu 2023 og nam tap af grunn­rekstinum fyrir afskriftir og vexti 18 millj­ónum króna. Gert er ráð fyrir að grunn­rekstur félags­ins verði erf­iður á árinu 2024, einkum vegna slæmra mark­aðs­að­stæðna í Nígeríu og kostn­að­ar­hækk­ana á Íslandi. Stjórn­endur félags­ins hafa að sögn hafið vinnu við að beina fram­leiðslu félags­ins á aðra mark­aði til að minnka mark­aðs­á­hættu félags­ins.

Í stjórn Klofn­ings sitja Einar Valur Krist­jáns­son, for­maður, Óðinn Gestsson og Jakob Valgeir Flosason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins