„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jörundur Áki segir átak KSÍ hafa vakið athygli: „Þarf örugglega að fara í svona verkefni reglulega“

Jörundur Áki segir átak KSÍ hafa vakið athygli: „Þarf örugglega að fara í svona verkefni reglulega“
Jörundur Áki Sveins­son, starf­andi fram­kvæmda­stjóri KSÍ – Mynd: KSÍ

Jörundur Áki Sveins­son, starf­andi fram­kvæmda­stjóri KSÍ, segir að hegð­unar­á­tak sem KSÍ fór með í fyrra hafi vakið athygli en átakið snérist um að leik­menn, þjálf­arar og áhorf­endur komi betur fram við dóm­ara. Slík mál hafa verið í lama­sessi í íslenskri knatt­spyrnu und­an­farin ár og hafa íslenskir knatt­spyrnu­dóm­arar fengið morð­hót­anir frá áhorf­endum.

Átakið hófst í maí í fyrr en töldu margir það hafa fallið um sjálft sig eftir að Arnar Gunn­laugs­son, þjálf­ari Víkings, missti stjórn á skapi sínu við­tali eftir leik á sein­asta tíma­bili og lét mjög ósæmi­leg orð falla í garð íslenskra dóm­ara. Arnar baðst ekki afsök­unar á hegðun sinni og dæmdi KSÍ ekki þjálf­ar­ann í leik­bann. Reynslu­mik­ill knatt­spyrnu­dóm­ari sem Mannlíf ræddi við sagði að málið og við­brögð KSÍ hafi svert ímynd knatt­spyrnu á Íslandi.

Twitterlið fer í taugarnar á Arnari

Í gær fékk svo Arnar Gunn­laugs­son rautt spjald í leik Víkings við Vestra og vand­aði hann dóm­urum Íslands ekki kveðj­urnar í við­tölum eftir leik­inn. „Menn eru bara blindir. Plís ekki fara að láta eitt­hvað Twitterlið fara að væla að við eigum að sýna for­dæmi gagn­vart dóm­urum í meist­ara­flokki karla. Það á að sýna for­dæmi gagn­vart dóm­urum í 6.-8. flokki og ekki rífa kjaft þar en þetta er elítu fót­bolti. Þannig menn verða gjöra svo vel að standa sig og þola gagn­rýni frá þjálf­urum í efstu deild í stað þess að vera eins og litlir menn uppum hvipp­inn og hvapp­inn,“ sagði Arnar meðal ann­ars eftir leik­inn.

„Það er óhætt að segja að verk­efnið hafi vakið athygli og alls konar við­brögð frá ýmsum aðilum – knatt­spyrnu­á­huga­fólki og -sér­fræð­ingum, fjöl­miðlum, dóm­ur­unum sjálfum og öðrum, t.d. for­eldrum og varð til þess að mál­efni og starfs­um­hverfi knatt­spyrnu­dóm­ara fékk umræðu og umfjöllun, sem er gott þegar um árvekn­isá­tak er að ræða. Það þarf örugg­lega að fara í svona verk­efni reglu­lega, og það á ekk­ert bara við um fót­bolt­ann heldur aðrar greinar líka,“ sagði Jörundur Áki við fyr­ir­spurn Mannlífs um þann árangur sem þessi her­ferð skil­aði en sam­kvæmt heima­síðu KSÍ var ætlun þess að hvetja fólk til jákvæðrar hegð­unar í garð dóm­ara og þá var hlið­ar­mark­mið að fjölga dóm­urum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins