„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gréta María leggur upp í verðstríð með Prís – Stofnandi Bónuss er með í ráðum

Gréta María leggur upp í verðstríð með Prís – Stofnandi Bónuss er með í ráðum
Mynd / Aðsend -Íris Dögg Ein­ars­dóttir

Lág­vöru­versl­unin Prís mun opna seinna í þessum mán­uði á Smára­torgi. Mark­miðið er að vera með lægsta verðið á mark­aði og skáka þannig Bónus og Krónunni sem hafa verið á mark­aðnum í góðu sam­komu­lagi sem felur í sér að Krónan er jafnan aðeins krónu hærri í verði. Keðj­urnar tvær eru með um 60 pró­sent af mark­aðnum. Fákeppnin er talin hafa í för með sér gríð­ar­legan kostnað fyrir neyt­endur.

Gréta María Grét­ars­dóttir er fram­kvæmda­stjóri Prís. Hún gat sér gott orð sem fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar sem hún þró­aði sem helsta sam­keppn­is­að­ila Bónuss.  Prís er í eigu sömu aðila og Heimkaup, Lyfja­kaup og olíu­fé­lagið Skelj­ungur. Meðal eig­enda og hug­mynda­fræð­inga að baki versl­un­inni nýju er Jón Ásgeir Jóhann­es­son, stofn­andi Bónuss, og helsti hug­mynda­fræð­ing­ur­inn að baki lág­vöru­keðj­unni.

Jón Ásgeir er helsti hug­mynda­fræð­ing­ur­inn að baki Bónus.

Gréta María segir í sam­tali við Vísi að mark­miðið sé fyrst og fremst að lækka mat­vöru­verð í land­inu. Meðal ann­ars með því að leggja áherslu á inn­fluttar vörur.

„Ég held að það finni það allir á eigin skinni að mat­vöru­verð hefur hækkað gríð­ar­lega mikið og í þannig umhverfi skap­ast að sjálf­sögðu aðstæður fyrir nýja aðila til að koma inn á markað og brjóta upp mynstur sem hefur verið í fákeppni,“ segir Gréta María við Vísi.

Í upp­hafi verður aðeins ein verslun á vegum Prís. Það ræðst síðan af við­tökum á mark­aðnum hvort þeim fjölgar á næst­unni. Þetta er sama upp­skrift og var þegar Jón Ásgeir og faðir hns, Jóhannes Jónsson stofn­uðu Bónus á sínum tíma. Ævin­týrið hófst með lít­illi verslun sem blómstr­aði. Nú eru Bón­usversl­anir á fjórða tug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins