„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ganga gegn þjóðarmorði Ísrael á morgun: „Ekki eitt lík var í heilu lagi“

Ganga gegn þjóðarmorði Ísrael á morgun: „Ekki eitt lík var í heilu lagi“
Frá fyrri mót­mæl­unum – Mynd: Björgvin Gunnarsson

Á morgun klukkan 14:00 verður gengin mót­mæla­ganga frá Hall­gríms­kirkju niður á Aust­ur­völl en til­gangur göng­unnar er að mót­mæla þjóð­ar­morði á Palest­ínu­búum en greint hefur frá því að í kringum 40 þús­und Palest­ínu­búar hafi verið drepnir á Gaza af Ísra­els­her.

Þegar á Aust­ur­völl er komið mun Kristín Sveins­dóttir ávarpa fund­inn og Kristín Eiríks­dóttir les ljóð eftir Mosab Abu Toha en sam­tökin Ísland-Palest­ína stenda fyrir göng­unni.

Hægt er að lesa til­kynn­ingu sam­tak­anna hér fyrir neðan:

„Á laug­ar­dag göngum við gegn þjóð­ar­morði, stríðs­glæpum, barna­morðum, eyði­legg­ingu og ofbeldi Ísra­els­hers.Nú þegar meira en 300 dagar eru liðnir frá því árásir Ísraels hófust á Gaza líður varla sá dagur án þess að frétt­ist af öðru fjöldamorði. Nú um helg­ina var sprengju varpað á skóla, þar sem flótta­fólk hafði leitað skjóls og var við morg­un­bæn í skól­anum, og yfir 100 lét­ust, aðal­lega konur og börn. “Ekki eitt lík var í heilu lagi” sagði hjálp­ar­starfs­fólk sem kom að staðnum. Faðir sem missti 6 ára son sinn í spreng­ing­unni lýsti því að fá úthlutað 18 kíló af lík­ams­leifum til greftr­unar, þar sem eng­inn mögu­leiki var að bera kennsl á sund­ur­tættar lík­ams­leifar fólks­ins. Ástandið er óbæri­legt, og hefur verið óbæri­legt í meira en 10 mán­uði. Það er mik­il­vægt að við sýnum sam­stöðu og gerum allt sem í okkar valdi stendur að stöðva hann.Í göng­unni langar okkur að búa til breiða sam­stöðu meðal fólks með starfs­stéttum skóla­starfs­fólks, heil­brigð­is­starfs­fólks, blaða­manna og ann­arra hópa sem við erum sam­mála um að ættu að vera sér­stak­lega vernduð, en hafa verið gerð að skot­mörkum síð­ustu 10 mán­uði á Gaza – sem eru stríðs­glæpir.

Okkur langar því að hvetja fólk sem til­heyrir þessum stéttum til að búa til skilti heima eða í skilta­gerð­inni með “Hjúkr­un­ar­fræð­ingar fyrir Palest­ínu“ eða “Kennarar gegn þjóð­ar­morði”, og vekja þannig athygli á breiðri sam­stöðu almenn­ings á Íslandi!Félagið stendur fyrir skilta­gerð í Andrými á Berg­þóru­götu 20, rétt hjá Hall­gríms­kirkju, frá klukkan 12 á laug­ar­dag – þið eruð öll vel­komin þangað að búa til skilti eða borða.Sjáumst í Göngu gegn þjóð­ar­morði!

Við þurfum á okkur öllum að halda í bar­átt­unni fyrir taf­ar­lausu vopna­hlé og stöðvun þjóð­ar­morðs­ins á Gaza.Takið dag­inn frá, deilið með fjöl­skyldu og vinum, sýnum stjórn­völdum að íslenskur almenn­ingur vill að Ísland eigi frum­kvæði að alvöru diplómat­ískum aðgerðum!

Við­skipta­þving­anir á Ísrael og slit á stjórn­mála­sam­bandi STRAX!

Frjáls Palest­ína!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins