„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Risasveppur vex við Sigurgerði í Fellum: „Ég hélt fyrst að þetta væri dautt lamb“

Risasveppur vex við Sigurgerði í Fellum: „Ég hélt fyrst að þetta væri dautt lamb“
Jöt­ungíman í Fellum. Mynd: Brynjólfur Rúnar Gunnarsson

Við aflögð úti­hús við Sig­ur­gerði í Fellum á Héraði, hefur glæsi­leg jöt­ungíma, sem talin er vera stærsta sveppa­teg­und heims, dúkkað upp. Þar hefur jöt­ungíman skotið upp koll­inum af og til síð­ustu 15 árin.

„Svepp­ur­inn kemur ekki fram á hverju ári. Það eru 2-3 ár síðan hún sást hér síð­ast,“ segir Brynjólfur Rúnar Gunn­ars­son, bóndi á Hafra­felli í sam­tali við Aust­ur­frétt.

Fram kemur í Sveppa­bók­inni eftir Helga Hall­gríms­son, nátt­úru­fræð­ing á Egils­stöðum, að Jöt­ungíma hafi fyrst fund­ist hér á landi árið 1988 en það var í Árnes­sýslu og Eyja­firði, nán­ast sam­tímis. Á Aust­ur­landi fund­ust fyrstu jöt­ungím­urnar árið 2009 en það var við Hafursá á Völlum og Sig­urð­ar­gerði í landi Áss í Fellum.

Í bók­inni kemur fram að hinir risa­vöxnu sveppir hafi yfir­leitt fund­ist nærri aflögðum íbúðar- eða gripa­húsum en jöt­ungíman við Sig­urð­ar­gerði vex á gró­inni fjár­húsa­tótt sem árið 1990 var rutt yfir. Telur Brynjólfur að fjár­húsi hafi ekki verið notuð síðan um 1950.

Brynjólfur rifjar einnig upp þegar hann sá svepp­inn þar fyrst. „Ég hélt fyrst að þetta væri dautt lamb. Úr fjar­lægð var þetta stór hvítur blettur. Mig minnir líka að fyrstu svepp­irnir hafi verið þrír og miklu stærri en þessi,“ segir hann og bætir við að jöt­ungíman hafi komið fram 3-4 sinnum á þessum tíma.

Svepp­ur­inn hefur einnig fund­ist víðs­vegar á land­inu en árið 2020 spratt hann upp við Bragða­velli í Ham­ars­firði og 2022 við Hjarð­ar­haga á Jökuldal.

Fram kemur í umfjöllun Aust­ur­fréttar að fræði­heiti svepps­ins sé „calvatia (Langer­mannia) gig­an­tea“ og að aldin hennar sé belg- eða kúlu­laga, yfir­leitt flat­vaxið og ílangt. Hér á landi sé það 20 til 60 senti­metrar en allt að 150 senti­metrar erlendis.

Þar kemur aukreitis fram að af ljós­mynd Brynj­ólfs af svepp­inum megi áætla að hann sé um 30 senti­metrar á hæð og hátt í 50 senti­metrar á lengd.

Jöt­ungíman er eins og aðrir físi­sveppir æt, meðan hún er ung að því er fram kemur í Sveppa­bók­inni, og „einn slíkur stór­sveppur sé góður máls­verður handa stór­fjöl­skyldu.“ Brynjólfur seg­ist aðspurður ekki hafa prófað að elda jötun­tímu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveppir

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Landið

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Landið

Karlmaður ákærður fyrir að birta nektarmyndir af barnsmóður sinni á Facebook

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Landið

Helga Vala stuðar landsbyggðarfólk: „Það er verið að bjóða uppá rússneska rúllettu með mannslíf“

Landið

Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir