„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stýrivextir áfram 9,25 prósent – Lakari horfur í ferðaþjónustu ein af ástæðunum

Stýrivextir áfram 9,25 prósent – Lakari horfur í ferðaþjónustu ein af ástæðunum
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd: Seðlabanki Íslands

Stýri­vöxtum Seðla­banka Íslands verður haldið óbreyttum í 9,25 pró­sentum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri til­kynnti í morgun að Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hafi ákveðið að halda stýri­vöxtum áfram í 9,25 pró­sentum.

Fram kemur í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar að verð­bólga hafi auk­ist eilítið frá síð­asta fundi hennar eftir að hafa minnkað fram eftir ári. „Und­ir­liggj­andi verð­bólga er enn mikil og verð­hækk­anir eru á breiðum grunni þótt hús­næð­islið­ur­inn vegi enn þungt. Verð­bólgu­vænt­ingar hafa einnig lítið breyst og hald­ist yfir mark­miði.“ Segir einnig í yfir­lýs­ing­unni að nokkurn tíma geti tekið að ná fram ásætt­an­legri hjöðnun verð­bólgu.

Þá kemur einnig fram í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar að talið sé að hag­vöxtur í ár verði aðeins hálf pró­sent en í maí spáði Seðla­bank­inn að hag­vöxtur yrði 1,1 pró­sent. Aðal­á­stæðan á frá­vikin uer sögð vera lak­ari horfur í ferða­þjón­ustu.

Spáir bank­inn því að um 2,2 millj­ónir ferða­manna sæki Ísland heim í ár, sama­borið við 2,3 millj­ónir í spánni frá í maí. Þá kemur fram í pen­inga­málum að á öðrum árs­fjórð­ungi hafi umsvif í ferða­þjón­ustu deg­ist saman á milli ára en fimm pró­sent færri ferða­menn komu til lands­ins þrátt fyrir aukið flug­fram­boð.

„Á móti hélt skiptifar­þegum áfram að fjölga tölu­vert. Þá fækk­aði gistin­óttum enn meira en komum ferða­manna eða um 10% frá fyrra ári og virð­ist dval­ar­tími þeirra því hafa styst.“

Þá bendi aftur á móti nýjar og end­ur­nýj­aðar tölur um korta­veltu til þess að með­al­út­gjöld ferða­manna hafi hækkað milli ára.

RÚV sagði frá ákvörð­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins