„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þórunn rýnir í íslenska fyndni í nýrri bók: „Sögurnar eru lyklar að horfnum hugsunarhætti“

Þórunn rýnir í íslenska fyndni í nýrri bók: „Sögurnar eru lyklar að horfnum hugsunarhætti“
Þórunn Jarla Valdi­mars­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson.

Þórunn Valdi­mars­dóttir stendur fyrir tvö­földu útgáfu­teiti í Iðnó á morgun, sunnu­dag.

Einn fjöl­hæf­asti rit­höf­undur Íslands, Þórunn Valdi­mars­dóttir gaf út á dög­unum hvorki meira né minna en tvær bækur og það af sitt­hvoru tag­inu. Um er að ræða ann­ars vegar ljóða­bók­ina Fag­ur­boðar og hins vegar bókin Spegill íslenskrar fyndni – glettnin greind og skoðuð en í þeirri bók skoðar hún rit Gunnars Sig­urðs­sonar frá Selalæk, Íslenzk fyndi sem hann gaf út á fyrri hluta síð­ustu aldar, við miklar vin­sældir. Mannlíf ræddi stutt­lega við hinn dug­lega rit­höf­und.

Þú varst að gefa út bók ekki satt? Hvað get­urðu sagt mér um hana?

Þórunn: „Já, hún heitir „Spegill íslenskrar fyndni – glettnin greind og skoðuð“. Kjarni máls­ins er sá að mér leidd­ist að sjá eina fín­ustu grein íslenskrar menn­ingar liggja óbætta hjá garði.“

Hvernig datt þér í hug að fjalla um þetta efni?

„Þannig var að ég erfði öll bindi „Íslenskrar fyndni“ í útgáfu Gunnars frá Selalæk eftir eig­in­mann minn, Eggert Þór Bern­harðs­son sagn­fræð­ing. Þau voru nær lesin upp til agna, sem segir sitt um það hví­líkt nammi þetta þótti á sinni tíð. Ég var svo heppin að hljóta styrk frá Hagþenki og vatt mér þá í það að flokka og greina fyrstu tvö bindin, og vinna til end­ur­út­gáfu, með skýr­ingum. Hef sjaldan skemmt mér betur. Sögurnar eru lyklar að horfnum hugs­un­ar­hætti.“

Eru Íslend­ingar fyndin þjóð? Var hún það í gamla daga?

„Hverjum þykir sinn fugl fynd­inn. Sögurnar urðu geysi­lega vin­sælar, sem segir sitt um hve fyndnar þær þóttu. Svo gufaði gamla sveita­sam­fé­lagið upp og menn skömm­uð­ust sín eilítið fyrir hve frum­stætt það hefði verið. Það orð komst á að þessar bækur væru svo leið­in­legar að það væri í sjálfu sér fyndið. Ég skelli­hlæ af sumum sög­unum, kannski vegna þess að ég á sterkan kven­legg í Reykja­vík og gamla sam­fé­lagið heillar mig. Mér finnst sveita­lykt góð.“

En þetta er ekki eina bókin sem þú varst að gefa út, hvað get­urðu sagt mér um ljóða­bók­ina?

„Já ég er í skýj­unum yfir því að „Fag­ur­boðar“ hafa verið efstir á met­sölu­lista Eymunds­son yfir ljóð. Vonandi ekki bara af því að ég hef verið dug­leg að kaupa og gefa í kringum mig, hehe. Það var alls ekki hugsað þannig, sko … Ég hóa til útgáfu­teitis í Iðnó á morgun, sunnu­dag­inn 25. ágúst klukkan þrjú. Bækurnar verða þar til sölu á góðu verði. Öll inni­lega vel­komin sem nenna. Hljóm­sveitin Stálfaxi leikur fyrir dansi. Annars munu bæk­urnar fást í öllum helstu bóka­búðum lands­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Bókaútgáfa

Hundrað börn gefa út Spírur, ungar raddir í umhverfismálum: „Markmiðið að opna umræðurnar“
Menning

Hundrað börn gefa út Spírur, ungar raddir í umhverf­is­málum: „Mark­miðið að opna umræð­urnar“

Fullt var út úr dyrum í hátíð­ar­sal Safna­húss­ins við Hverf­is­götu um helg­ina, þar sem Ungir umhverf­is­sinnar verð­laun­uðu rit­höf­unda fram­tíð­ar­innar með útgáfu bók­ar­innar Spírur, ungar raddir í umhverf­is­málum. Bókin hefur að geyma 30 sögur af þeim 100 sem bár­ust í keppn­ina „Ungir rit­höf­undar fyrir umhverfið“ sem UU héldu á haust­mán­uðum. Krakkar, for­eldrar, frænd­fólk og kenn­arar komu alls staðar að af land­inu...
Þóra kemur sterk inn með sína fyrstu skáldsögu: „Fannst eins og ég væri að berskjalda mig“
Menning

Þóra kemur sterk inn með sína fyrstu skáld­sögu: „Fannst eins og ég væri að ber­skjalda mig“

Þóra Sveins­dóttir steig fram á rit­völl­inn fyrir þessi jól með sína fyrstu skáld­sögu en það er bókin Sjúk. Mannlíf ræddi við hana um bók­ina og sitt­hvað fleira. Hver er Þóra Sveins­dóttir? Þóra: „Þóra er hug­mynda­ríkur húmoristi með mikla rétt­læt­is­kennd. Hef skrifað tvæ greinar er varða jafn­rétti kynj­anna því til sönn­unar. Ég hef sterkar skoð­anir á hvað þurfi að gera svo...
Viðbrögðin við nýjustu bók Elísabetar frábær: „Fólk segir að hún hitti beint í hjartastað“
Menning

Við­brögðin við nýj­ustu bók Elísa­betar frá­bær: „Fólk segir að hún hitti beint í hjarta­stað“

Jóla­bóka­flóðið stendur nú sem hæst á Íslandi og kepp­ast nú sölu­að­ilar við að selja les­þyrstum kaup­endum bækur. Eins og oft áður er úrvalið ansi fjöl­breytt. Hægt er að finna fjöldan allan af spennu­sögum, ljóða­bókum og ævi­sögum en ein af bók­unum sem standa svo­lítið upp úr í flóð­inu er bókin Límonaði frá Díafani eftir þjóð­ar­ger­sem­ina Elísa­beti Jök­uls­dóttur. „Mig lang­aði að segja...
Valur Gunnarsson hélt útgáfuteiti í bókabúð Sölku með þýsku þema: LJÓSMYNDIR
Menning

Valur Gunn­ars­son hélt útgáfu­teiti í bóka­búð Sölku með þýsku þema: LJÓSMYNDIR

Valur Gunn­ars­son hélt útgáfu­teiti í bóka­búð Sölku á Hverf­is­göt­unni á föstu­dag­inn en smekk­fullt var út að dyrum. Hófið var með þýskt þema enda heitir bókin Berlín­ar­bjarmar – Langamma, David Bowie og ég. Mannlíf mætti á svæðið með lélega mynda­vél úr ann­ars ágætum Samsung-síma. Valur les úr bók sinni.Mynd: Björgvin Gunn­ars­son Margt var um mann­inn í bráð­skemmti­legri bóka­búð útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins Sölku á...
Elísabet Jökuls blæs til veislu í dag – Fagnar útgáfu nýrrar bókar
Menning

Elísabet Jökuls blæs til veislu í dag – Fagnar útgáfu nýrrar bókar

Elísabet Jök­uls­dóttir heldur heldur útgáfu­teiti í Eymunds­son í Aust­ur­stræti í dag, til að fagna nýj­ustu bók sinni, Límonaði frá Díafani. Þjóð­ar­ger­semin Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir gaf út á dög­unum bók­ina Límonaði frá Díafani en hún hefur verið að fá glimmr­andi dóma gagn­rýnenda og er sjálf­sagt eng­inn eft­ir­bátur bókanna hennar Sakn­að­arilmur og Apr­ílsól­ar­kuldi sem slógu ræki­lega í gegn fyrir fáeinum árum. Í...
Gefur út fimmtu bókina fyrir fólk af erlendum uppruna: „Þeim hefur verið tekið vel“
Menning

Gefur út fimmtu bók­ina fyrir fólk af erlendum upp­runa: „Þeim hefur verið tekið vel“

Þann 25. júlí klukkan 15:15 mun Kristín Guð­munds­dóttir, höf­undur bók­ar­innar Tólf lyklar, vera með bóka­kynn­ingu á Háskóla­setri Vest­fjarða. Bókin er fyrir fólk af erlendum upp­runa sem er búið með grunn­inn í íslensku. Þetta er fimmta bók Krist­ínar fyrir fólk af erlendum upp­runa. Þær bækur sem hún hefur gefið út eru: Nýjar slóðir 2020, Óvænt ferða­lag 2021, Leiðin að nýjum heimi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza