„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Myndband sýnir leiðsögumenn slást fyrir utan íshellinn sem hrundi:„Þetta er mjög gráðugt fyrirtæki“

Myndband sýnir leiðsögumenn slást fyrir utan íshellinn sem hrundi:„Þetta er mjög gráðugt fyrirtæki“
Frá slags­mál­unum Mynd: Youtube-skjáskot

Í mynd­skeiði sem birt­ist á Nútím­anum í gær­kvöldi sjást starfs­menn tveggja ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja í áflogum og hnakk­ríf­ast en mynd­skeiðið er tekið á Breiða­merk­ur­jökli, við gangna­munn­ann að íshell­inum sem hrundi í fyrra­dag.

Samkvæmt Nútím­anum hafa átök á milli starfs­manna ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja á Breiða­merk­ur­jökli og í Vatna­jök­uls­þjóð­garði verið nærri dag­leg síð­ustu vikur og mán­uði en rif­ist er um „einka­leyfi“ á notkun íshell­is­ins en það var fyr­ir­tækið Nifl­heimar ehf eða Glacier Mice sem bjó hell­inn til.

Fram kemur í umfjöllun Nútímans að íshellir­inn sem hrundi á sunnu­dag­inn með þeim afleið­ingum að banda­rískur karl­maður lét lífið og unnusta hans slas­að­ist, hafi verið mikið bit­bein hjá stærstu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum lands­ins eins og sjá má í mynd­skeiði sem mið­ill­inn birti en þar sjást starfs­menn tveggja fyr­ir­tækja slást við hell­is­munn­ann. Þar sem hellir­inn er innan Vatna­jök­uls­þjóð­garðs er hann í eigu almenn­ings en svo virð­ist sem starfs­menn fyr­ir­tækj­anna sem sjást í mynd­skeið­inu, slái til skiptis eign sinni á hell­inn.

Í mynd­skeið­inu sést starfs­maður ónafn­greins fyr­ir­tækis, en hann kallar sig í mynd­skeið­inu Friðrik the Caveman, banna hópi ferða­fólks sem var þar á vegum Ice Pic Journeys, að fara inn í hell­inn. Ensku­mæl­andi leið­sögu­maður Ice Pic Journey svar­aði þá, í íslenskri þýð­ingu: „Þetta er hópur sem er með Ice Pic Journey, þannig að þeir eru okkar við­skipta­vinir og hafa því leyfi til að fara þarna inn.“ Þessu svarar sjálf­skip­aði dyra­vörður íshell­is­ins: „Hvar keyptu þau miða?“ „Það kemur þér ekk­ert við! Við erum hér lög­lega.“ svarar þá leið­sögu­maður Ice Pic Journeys. Friðrik fer síðan að segja ferða­fólk­inu að það sé trygg­ing­ar­laust, ef eitt­hvað færi úrskeiðis en því mót­mælir leið­sögu­maður Ice Pic Journeys. „Hver ert þú? Ertu lög­reglu­maður?“ spyr ferða­lang­ur­inn en mað­ur­inn svarar glott­andi: „Nei, ég er Friðrik, the Caveman“ og bætti við að fyr­ir­tæki hans hafi verið með ferðir í íshell­inn um langt skeið. Aðspurður hvort hann sé eig­andi hell­is­ins svarar hann: „Já, næstum því“. Því mót­mælir leið­sögu­maður Ice Pic Journeys harð­lega og bendir á að þetta sé innan þjóð­garðs­ins og því í eigu almenn­ings. Téður Friðrik segir svo við við­skipta­vini Ice Pic Journeys að því fyr­ir­tæki sé sama um þau. „Þetta er mjög gráð­ugt fyr­ir­tæki sem hugsar bara um pen­inga“. Stuttu síðar brut­ust út slags­mál milli mann­anna.

Það var fyr­ir­tækið Ice Pic Journeys sem var með hóp ferða­manna í íshell­inum á sunnu­dag­inn þegar hann hrundi með ofan­greindum afleið­ingum. Mannlíf hefur reynt að hafa uppi á eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins án árang­urs.

Hér má sjá umrædd mynd­skeið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins