„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leiðsögumaður segir ferðasölufyrirtæki bera ábyrgðina: „Það á alltaf að hengja bakara fyrir smið“

Leiðsögumaður segir ferðasölufyrirtæki bera ábyrgðina: „Það á alltaf að hengja bakara fyrir smið“
Einn lést eftir að ísveggur féll í íshelli – Mynd: Landsbjörg

Borgar Ant­ons­son, eða Boggi Tona, leið­sögu­maður, segir þau fyr­ir­tæki sem selji íshella­ferðir að sumri til, bera mestu ábyrgð­ina þegar eitt­hvað fer úrskeiðis, eins og á Breiða­merk­ur­jökli um síð­ustu helgi, þar sem banda­rískur ferða­maður lét lífið og kona hans slas­að­ist er ísveggur féll á þau.

Hengja bakara fyrir smið

Boggi Tona, sem unnið hefur sem íshella­leið­sögu­maður á vet­urna síð­ustu átta árin segir í sam­tali við Mannlíf skýrt hvar ábyrgðin liggi þegar slys verða þegar farið er í íshella­ferðir að sumri til. „Ef þú vilt fá mína skoðun á því sem gerð­ist og hver er ábyrgur, þá eru það fyr­ir­tæki sem selja mið­ana. Ég held ég hafi lesið það í gær að það eigi ekki að end­ur­nýja leyfið hjá Ice Pic Journeys, fyr­ir­tækið sem lenti í slys­inu en það er ekk­ert minnst á hin fyr­ir­tækin sem voru að selja mið­ana í þessar ferðir. Í þessu til­felli var til dæmis Ice Pic Journey und­ir­verk­taki Guide to Iceland. Það á alltaf að hengja bak­ara fyrir smið þegar eitt­hvað svona kemur upp á.“ Boggi segir að Lilja Alfreðs­dóttir ferða­mála­ráð­herra hafi til að byrja með viljað kenna Vatna­jök­uls­þjóð­garði um slysið, „en þjóð­garð­ur­inn hefur ekk­ert þurft að banna þessar ferðir á sumrin vegna þess að það vita öll fyr­ir­tækin hvað þetta er hættu­legt og hafa ekki komið nálægt þessu. Þar til bara í sumar en vissu­lega var það þetta fyr­ir­tæki, Ice Pic Journeys sem byrj­aði en um leið og það frétt­ist að það væri verið að selja ferðir þá fóru þrjú stærstu fyr­ir­tækin að ræsa út sitt lið. Drífa sig á jökul, það er verið að selja íshella­ferðir.“ Boggi sagði að eitt fyr­ir­tækj­anna hafi haft sam­band við góð­vin sinn sem er leið­sögu­maður og sagt honum að fara að græja sig fyrir íshella­ferðir en hann hafi  harð­neitað því, enda stór­hættu­legt að fara í slíkar ferðir að sumri til og að hann færi ekki í ferðir þar sem hann gæti ekki tryggt öryggi við­skipta­vin­anna. „Og hann þurfti að marg­segja þeim þetta. Þá höfðu þeir sam­band við fyr­ir­tækin sem eru í þessu mynd­bandi [sem Mannlíf og Nútíminn birtu um dag­inn. Innskot blaða­manns.], og þau eru til í allt.“

Vita upp á sig skömmina

Þá segir Boggi að um 200 til 300 þús­und manns hafi farið í íshella­ferð­irnar síð­ustu árin að vetri til og aldrei nein slys á fólki „en um leið og byrjað er að fara að sum­ar­lagi, sem allir voru búnir að vara við, Magnús Tumi og fleiri og við, fyr­ir­tækin heima, hvað ger­ist? Það verður slys,“ segir Boggi og heldur áfram: „Og þessi fyr­ir­tæki vissu upp á sig skömm­ina þegar þau byrj­uðu að selja sum­ar­ferð­irnar, „Þetta er hættu­legt, við ætlum bara að taka sjens­inn, það kemur aðeins meira í kass­ann hjá okkur“.“

Mannlíf hefur sent fyr­ir­spurnir á stærstu ferða­sölu­fyr­ir­tæki Íslands og bíður svara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins