„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Már grét eftir að hafa slegið Íslandsmetið: „Mér líður ógeðslega vel“

Már grét eftir að hafa slegið Íslandsmetið: „Mér líður ógeðslega vel“
Már Gunn­ars­son Mynd: RÚV-skjáskot

Már Gunn­ars­son gerði sér lítið fyrir og sló Íslands­metið og varð í sjö­unda sæti í 100 metra baksundi á Ólymp­íu­móti fatl­aðra í París síð­degis í dag.

Már, sem keppi í S11, flokki blindra og sjón­skertra, kom í mark á sjötta besta tím­anum í und­an­rás­unum í morgun, 1:11,38 mín­útum og var öruggur í úrslitin. Í úrslit­unum bætti hann tíma sinn frá því í morgun og synti á 1:10.21 mín­útum og bætti þannig Íslands­metið um 15 hund­ruð­ustu úr sek­úndu. Það var úkra­ínu­mað­ur­inn Myhailo Serbin sem sigr­aði á nýju heims­meti, 1:05,84 mín.

Árangur Más er sér­stak­lega góður í ljósi þess að hann var hættur sund­iðkun en snéri aftur þremur árum síðar.

„Mér líður ógeðs­lega vel. Þetta er nátt­úru­lega eitt­hvað sem ég búinn að vera að vinna svo mikið og lengi að. Það er svo skrýtið að það er svo margt búið að ger­ast síð­ustu þrjú ár. Ég flutti utan og var ógeðs­lega mikið einn meðan ég var úti. Samt tekst mér að koma aftur og gera þetta. „Þú hlýtur að vera stoltur af sjálfum þér?“ spurði frétta­maður RÚV.  „Ég er það og líka af fólk­inu mínu. Þeim sem hafa hjálpað mér í gegnum þetta því ég er ekki einn í þessu og ég fann það svo rosa­lega mikið,“ segir Már í sam­tali við RÚV eftir sundið en hann var að keppa á sínu öðru Ólymp­íu­móti en hann náði fimmta sæti í Tókýó fyrir þremur árum.

Már átti erfitt með til­finn­ing­arnar eftir sundið en hann seg­ist vera orð­inn bæði betri sund­maður og tón­list­ar­maður eftir pás­una. Segist hann þakk­látur hvað allir séu hjálp­samir við hann á báðum sviðum. „Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við sjálfan mig núna sko,“ sagði Már og barð­ist við tárin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins