Skálmöld er ríkjandi þar sem hnífum er beitt í samfélaginu. Um helgina komu upp þrjú tilvik þar sem fólk var stungið með hnífum eða gerð að því atlaga. Annað tilvikið varð á bæjarhátíðinni Í túnínu heima þar sem hnífur kom við sögu í líkamsárás. Fórnarlambið slapp ómeitt frá atlögunni.
Tveir urðu fyrir árás í gistiheimili á Granda. Áverkar voru ekki alvarlegir. Þetta gerist á sama tíma og 17 ára stúlka, Bryndís Klara Birgisdóttir, lét lífið af völdum árásar á Skúlagötu í miðborg Reyjavíkur á Menningarnótt. Morðinginn, 18 ára piltur, stakk tvö aðra sem lifðu af árásina. Hann er í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði. Bryndís barðist fyrir lífi sínu í tæpa viku áður en hún dó af völdum áverkanna. Mikil sorg er vegna andláts stúlkunnar sem á einu andartaki var svipt lífi sínu og framtíð. Ekki er vitað hvað morðingjanum gekk til með árásinni en lögregla rannsakar málið með það fyrir augum að upplýsa um ásetning piltsins sem enn hefur ekki verið nafngreindur opinberlega í tengslum við málið.
„Nú þarf að hafa hátt og tryggja með skipulegum og úthugsuðum hætti, að þessi martröð, missir okkar og líf Bryndísar minnar muni leiða til betri veruleika fyrir íslenskt samfélag!Þessi dýra og óbærilega fórn hennar, skal og verður að bjarga mannslífum,“ skrifaði Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar Klöru á Facebook, eftir lát hennar.Ólína Þorvarðardóttir, doktor í þjóðfræði, vitnar til orða hins syrgjandi föður og tekur undir kröfuna um aðgerðir.„Þá hrikalegu hatursmenningu sem er undirrót vopnaburðar ungmenna og árása sem kostað hafa mannslíf á undanförnum misserum og árum verður að uppræta. Ég sé samhengi við vaxandi fátækt, versnandi félagslega stöðu tiktekinna hópa, skertan lesskilning ungmenna, vaxandi útlendingahatur, markaleysi í samskiptum almennt og ekki síst samfélagslega meðvirkni og afneitun,“ skrifar Ólína. Fjöldi manns tekur undir með henni í athugasemdum.
Þekkt er að fjöldi fólks gengur með hnífa, sumpart undr því yfirskyni að um sé að ræða varnarvopn. Málið var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar og fjöldi manns hefur miklar áhyggjur af þeirri skálmöld sem ríkir þar sem hnífar koma viö sögu. Rætt er um að herða lög sem banna vopnaburð í margmenni og reyna þannig að stemma stigu við því ástandi sem ríkir á landinu.




















Athugasemdir