„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Brynjar telur kristin gildi vera lausnina við ofbeldi ungmenna: „Þurfum að líta í eigin barm“

Brynjar telur kristin gildi vera lausnina við ofbeldi ungmenna: „Þurfum að líta í eigin barm“
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson telur að kristi­leg gildi, ást og hæfi­legur agi vera lausn­ina gegn auknu ofbeldi meðal ung­menna á Íslandi.

„Sá hörmu­legi atburður gerð­ist að ung stúlka hlaut bana af hnífs­s­tungu á Menn­ing­arnótt. Alvar­legt ofbeldi ung­menna virð­ist alltaf koma okkur á óvart, rétt eins og sífellt lak­ari náms­ár­angur grunn­skóla­barna í lestri og reikn­ingi. Þegar við erum í upp­námi mynd­ast kjör­lendi fyrir tæki­fær­is­sinna og pop­u­lista til að láta ljós sitt skína.“ Þannig hefst færsla Brynjars Níels­sonar en eftir hinn hræði­lega atburð þegar 17 ára stúlka var myrt og tvö 16 ára ung­menni voru særð á Menn­ing­arnótt, auk ann­arra frétta af ofbeldi ung­menna und­an­farið, hefur hver máls­hefj­andi mann­eskja tjáð sig á sam­fé­lags­miðl­unum á fætur annarri um það hvað sé best að gera til að upp­ræta ofbeldið í sam­fé­lag­inu enda afar verð­ugt umræðu­efni. Og sitt sýn­ist hverjum, eði­lega. Brynjar, heldur áfram þeim upp­tekna hætti í nýju færslu sinni að skjóta á póli­tíska and­stæð­inga og segir:

„Eins og við vitum er eng­inn skortur á tæki­fær­issinnum í póli­tík. Nú ætla þeir að stöðva ofbeldið eins og þeir ætl­uðu að gera Ísland fíkni­efna­laust á sínum tíma. Tæki­fær­is­sinnar líta aldrei svo a að við berum sjálf ábyrgð á hegðun okkar og for­eldrar beri ein­hverja ábyrgð á börnum sínum, heldur að skól­arnir og „kerfið“ hafi brugð­ist. Því þurfi meiri fjár­muni í „kerfið“ til að koma í veg fyrir ofbeldi.“

Neitar Brynjar að „ein­hver óskil­greind kerfi“ hafi brugð­ist ung­mennum á Íslandi:

„Það er ekki ein­hver óskil­greind kerfi sem hafa brugð­ist. Úrræði og aðstoð við þá sem glíma við erf­ið­leika í líf­inu hefur auk­ist jafnt og þétt síð­ustu ár og ára­tugi. Hvert og eitt okkar verður að líta meira í eigin barm og taka meiri ábyrgð í stað þess að skella alltaf skuld­inni á aðra eða „kerfið“. Þá fyrst næst ein­hver árangur í bar­átt­unni.“

En hver er lausnin að mati Brynjars? Jú, kristi­leg gildi, ást og agi.

„Lengi hefur verið vitað að mað­ur­inn er ófull­kom­inn og átt í bölv­uðu basli með að búa í sam­fé­lagi. Áhersla á kristi­leg gildi í upp­eld­inu ásamt ást, umhyggju og hæfi­legum aga er örugg­lega far­sælt vega­nesti fyrir hvern ein­stak­ling út í lífið og fyrir sam­fé­lagið í heild.
Fyrir þá sem er alvar­lega mis­boðið yfir þess­ari færslu er bent á að opið er fyrir athuga­semdir og sví­virð­ingar á vegg mínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins