„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Séra Bjarni Karlsson flutti minningarorð um Þorvald Halldórsson: „Hvar sem hann kom fylgdi sómi“

Séra Bjarni Karlsson flutti minningarorð um Þorvald Halldórsson: „Hvar sem hann kom fylgdi sómi“
Þor­valdur Hall­dórs­son er fall­inn frá. Mynd: Facebook.

Þor­valdur Hall­dórs­son, söngv­ari var jarð­settur í dag en jarð­ar­förin fór fram í Hall­gríms­kirkju.

Séra Bjarni Karlsson flutti minn­ing­ar­orð um Þorvald Hall­dórs­son en jarð­ar­för hans fór fram í dag í Hall­gríms­kirkju. Hægt er að lesa minn­ing­ar­orðin í heild sinni hér fyrir neðan:

Vinur okkar allra, Þor­valdur Hall­dórs­son, var kvaddur hinstu kveðju frá Hall­gríms­kirkju í dag að við­stöddu fjöl­menni. Hér eru minn­ing­ar­orðin sem ég flutti:

Þor­valdur Hall­dórs­son var fæddur á sjúkra­húsi Siglu­fjarðar þann 29. októ­ber árið 1944. Hann var fyrsta barn hjón­anna Ásu Jón­as­dóttur og Halldórs Jóns Þor­leifs­sonar. Fyrir átti Halldór son­inn Gest Heiðar sem fæddur var árið ´37. Þor­valdur var á fimmta ári þegar fjöl­skyldan flutti í eigið hús­næði að Kirkju­stíg 5 á Siglu­firði, en þá höfðu bæst í systk­ina­hóp­inn þau Sigríður, Val­gerður og Leifur. Í því húsi átti Þor­valdur upp­vöxt sinn á ást­ríku heim­ili þar sem enn áttu eftir að líta dags­ins ljós systk­inin Jónas, Þor­leifur og Pétur.

Þor­valdur þótti nat­inn og góður stóri bróðir, ekki síst við Sigríði og Valgerði sem hann tók með í barna­messur og á stúku­fundi þegar aldur leyfði. Snemma kom tón­list­ar­á­hug­inn í ljós því strax á sjö­unda ári var Valdi far­inn að standa uppi á stúku­fundum og leika á munn­hörpu sem hann hafði eign­ast og náð tökum á. Ungur fékk hann til­sögn í píanó­leik í tón­list­ar­skól­anum í pláss­inu, en þar sem ekk­ert píanó var til að æfa sig á milli tíma beið frekara nám uns Sig­ur­sveinn D. Krist­ins­son stofn­aði tón­skóla sinn á Siglu­firði og bauð aðgang að hljóð­færum. Hóf Þor­valdur þá jafn­framt að leika á klar­inett með lúðra­sveit­inni. Þegar bræð­urnir Leifur og Jónas fóru líka að læra á hljóð­færi færð­ist mikið líf í litla húsið við Kirkju­stíg og muna syst­urnar mömmu sína vinn­andi sín verk í eld­hús­inu en með hug­ann við tón­list­ina. Væri hún hún ekki fylli­lega sátt við útkom­una þegar ein­hverju lagi lauk kall­aði hún: End­ur­taka!

Þor­valdur óx úr grasi á síld­ar­ár­unum og þegar sum­arið gekk í garð á Sigló breytt­ist til­veran heldur betur. Voru börn þá gjarnan send í sveit og þar var Þor­valdur engin und­an­tekn­ing.

Móð­ur­ættin var öll á Húsavík en föð­ur­ættin heima á Sigló. Sigríði systur hans far­ast svo orð: „Við systk­inin nutum þess að eiga gott frænd­fólk í nágrenni og áttum þar umhyggju og elsku, til við­bótar við það sem okkur var veitt heima. Þar var lagður grunnur að þeirri umhyggju og elsku sem við systk­inin höfum alltaf sýnt hvert öðru. Gestur ólst ekki upp með okkur, en á full­orð­ins­árum var hann orð­inn einn af okkur.“ Að Þorvaldi gengnum eru hin systk­inin öll enn á meðal okkar að hálf­bróð­urnum Gesti Heiðari frá­töldum sem lést í apríl 2018. Blessum við minn­ingu hans einnig á þessum degi.

Úr Barna­skól­anum hafði leiðin legið í Gagn­fræða­skóla Siglu­fjarðar. Átti Þor­valdur strax gott með nám og ástundun. Að áeggjan skóla­stjór­ans tók hann lands­próf og fór í Mennta­skól­ann á Akureyri. Tón­listin tók þó alltaf yfir og eftir fyrsta náms­vetur þar sem Sigl­firska hljóm­sveitin Fjórir fjörugir var á blússandi sigl­ingu og líka hið svo­nefnda Busaband í MA var ljóst að hljóm­sveita­lífið var það sem hreif ungan hæfi­leika­mann.

Fyrsta stóra tæki­færið fékk Þor­valdur er hann var feng­inn til liðs við hljóm­sveit Hauks Heiðars Ing­ólfs­sonar sem á þeim árum hélt uppi stuð­inu á Hótel KEA. Tvítugur er hann kom­inn til liðs við Hljóm­sveit Ingimars Eydal í Sjall­anum. Á sama tíma var Vil­hjálmur Vil­hjálms­son að bæt­ast í hóp­inn. Síðar átti Helena Eyj­ólfs­dóttir eftir að standa þar á svið­inu eins og við munum. Á þessum gull­ald­ar­árum, þegar enn var síld í sjó og óska­lög sjúk­linga og sjó­manna ómuðu á Gufunni ásamt lögum unga fólks­ins, var hljóm­sveit Ingimars Eydal einmitt orðin að stór­veldi ekki bara norðan heiða heldur í þjóð­arsál­inni. Smell­ur­inn Á sjó réði mestum straum­hvörfum á lands­vísu og kom út á algjörri met­sölu­plötu hjá SG Hljóm­plötum. Síðar kom lag Þor­valdar við texta Ómars Ragn­ars­sonar; Ó, hún er svo sæt sem líka seld­ist í bíl­förmum á vínyl-plötu. Með Helenu söng Þor­valdur síðar margt eins og allir muna.

Á þessum anna­sömu árum lágu leiðir Þor­valdar saman við Gunn­hildi Hjör­leifs­dóttur, sem ættuð er frá Hrísey dóttir hjón­anna Láru Bald­vins­dóttur og Hjör­leifs Jóhanns­sonar. Þau eign­uð­ust saman fjögur börn, Leif árið ´63, Halldór Baldur árið ´67 og Ásu Láru ´73. Árið ´62 höfðu þau eign­ast stúlku­barn sem lést við fæð­ingu.

Árið sem Ása Lára fæð­ist var skiln­aður orð­inn með Þorvaldi og Gunn­hildi. Um tíma kom þá Þor­valdur fram með hljóm­sveit­inni Pónik hér sunnan heiða og einnig með hljóm­sveit Ólafs Gauks.

Er leiðir hans og Mar­grétar Scheving lágu saman var hún ein­stæð móðir með þrjú börn. For­eldrar hennar voru Jón­heiður Scheving Stein­gríms­dóttir og Páll Sveins­son Scheving sem bjuggu í hús­inu Hjalla í Vest­manna­eyjum og þar hafði hún átt upp­eldi ásamt eldri systk­inum sínum, Helgu Rósu og Sig­ur­geir Scheving.

Margrét og Þor­valdur hófu sína sam­leið 1973 og fóru fljótt að búa í íbúð Mar­grétar að Skúla­skeiði 36 í Hafn­ar­firði. Börn hennar af fyrra hjóna­bandi eru Páll fæddur árið ´63, Viktor fæddur ´64 og Heiðrún árið ´66. Voru þau því öll á grunn­skóla­aldri þegar Þor­valdur kom inn í þeirra til­veru. Valdi var þannig inn­rétt­aður að hann tók virkan þátt í öllu heim­il­is­haldi; mat­ar­gerð, þrifum og öðru slíku. Þegar fjöl­skyldan flutti til Eyja eftir gos 1974, þar sem þau bjuggu um ára­bil, þurfti að byggja upp heim­ili að nýju og minn­ist Heiðrún þess þegar Valdi tók sig til og saum­aði gard­ínur í sauma­vél. Þekkti hún engan karl­mann annan sem kunni á sauma­vél og ekki gleymir hún því er hann saum­aði handa henni rúm­föt fyrir ein jólin. Já ,Valdi var jafn­rétt­is­sinn­aður og flokk­aði verk­efni hvers­dags­ins­at­hafnir dag­legs lífs ekki eftir kyn­ferði. Á sól­ríkum sum­ar­degi, þann 6. júlí 1975, gengu þau Margrét í hjóna­band hér í þessu Guðshúsi og var það Karl Sig­ur­björns­son, síðar biskup, sem gaf þau saman.

Er gott að mega geta þess að í minn­ingu Ásu Láru, yngstu dóttur Þor­valdar sem með árunum eign­að­ist gott sam­band við föður sinn, var heim­ili Pabba og Grétu alltaf einkar kær­leiks­ríkt og öllum opið sem þurftu.

Annað sem alltaf ein­kenndi sam­skipti Valda og Grétu í minn­ingu ungu kyn­slóð­ar­innar var það hvað hann var alltaf bál­skot­inn í henni. Sonurinn Þor­valdur er fæddur árið 1979 og líka hann sam­sinnir því að á köflum hafi þetta getað verið smá vand­ræða­legt einkum á ung­lings­árum, en samt alltaf svo gott. Við sem umgeng­umst Þorvald og Margréti munum vel hvernig Þor­valdur umbreytt­ist jafnan þegar hún kom í sal­inn: Drottn­ingin var mætt, fal­leg­asta konan í hús­inu og hún fékk fók­us­inn.

Árið 1977 höfðu þau umskipti orðið að Þor­valdur og Margrét eign­uð­ust sterka trú­ar­reynslu sem breytti hug­ar­fari þeirra var­an­lega. Á all löngu tíma­bili lagði Þor­valdur allan dæg­ur­laga­flutn­ing til hliðar en helg­aði sig þjón­ust­unni við fagn­að­ar­er­indið. Auk þess var hann fag­mennt­aður jafnt sem raf­virki og smiður svo hann gat alltaf unnið fyrir sér á meðan slit­gigtin, sem síðar átti eftir að plaga hann, lét ekki á sér kræla. Eign­uð­ust þau marga góða vini í kristi­lega starf­inu á þessum árum, m.a. sr. Jónas Gíslason og hjónin Gísla Frið­geirs­son og Lilju Sig­urð­ar­dóttur sem störf­uðu á vegum KFUM&K, einnig Halldór Lárusson og Árnýju Björgu Blandon, sem um skeið störf­uðu í Vest­manna­eyjum á vegum sam­tak­anna Ungs fólks með hlut­verk ásamt fleira góðu fólki.

Minnast börn Mar­grétar frá þessum árum að reglu­lega fyllt­ist stofan á heim­il­inu, Hjalla við Vest­manna­braut 57, af alls konar fólki sem komið var saman í söng og bæn með til­heyr­andi gleði og ánægju þannig að ómaði út á götu. Þetta var börn­unum, sem voru að stíga inn í ung­lings­árin, ný upp­lifun sem oft á tíðum gat verið spenn­andi en um leið krefj­andi. Með þessum breytta lífs­stíl for­eldr­anna fylgdu nýjar venjur, upp­lif­anir og reynsla sem litað hafa líf þeirra allra.

Er ótal margs að minn­ast frá þessum tíma í huga fjöl­skyld­unnar og þegar ég sjálfur kom til prests­starfa í Eyjum tíu árum eftir að þau fluttu upp á land, ilm­aði enn í lífi sam­fé­lags­ins sagan góða um góðu frétt­irnar sem Þor­valdur og Margrét höfðu flutt í tali og tónum svo eftir var tekið.

Árið ´81 var fjöl­skyldan komin í Kópa­vog­inn. Margrét var við störf sem klinka á tann­lækna­stofu en Þor­valdur fór til ýmissa starfa, afgreiddi í íþrótta­vöru­verslun eða vann við smíðar og raf­virkjun eftir því sem hent­aði með­fram guð­fræði­námi við HÍ. Sem fyrr voru mörg járn í eld­inum því með­fram brauð­striti, upp­eldi og háskóla­námi tóku þau hjónin virkan þátt í starfi sam­tak­anna Ungs fólks með hlut­verk sem þá var vax­andi þáttur í starfi Grens­ás­kirkju með stuðn­ingi sr. Halldórs Gröndal. Voru þetta miklir grósku­tímar í trú­ar­lífi þjóð­ar­innar líkt og mörg okkar muna, æsku­lýðs­starf var í örum vexti vítt um land, sunnu­daga­skólar blómstr­uðu og gildi krist­innar trúar ekki véfengt sem gildur þáttur í upp­eldi og almennri far­sæld.

Á þessum árum hófst hið gef­andi sam­starf Valda og Grétu við hjónin Pál Magn­ús­son og Elvu Dröfn Ing­ólfs­dóttur. Mynduðu þau hljóm­sveit­ina Án skil­yrða sem náði eyrum ótal margra með krist­inni boðun, græð­andi og styrkj­andi textum og um fram allt ein­lægum vilja til að segja frá Jesú. Við brúð­kaup þess­ara góðu vina ómaði í fyrsta sinn opin­ber­lega lag Mar­grétar við 23. Dav­íðs­sálm: „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekk­ert bresta.“ Sem orðið hefur að lif­andi blessun fyrir íslenska þjóð.

Á góðu tíma­bili voru Þor­valdur og Gréta í sam­vinnu við sr. Solveigu Láru Guð­munds­dóttur í Sel­tjarn­ar­nes­kirkju. Þar var líka Eirný Ásgeirs­dóttir, vin­kona þeirra og sannur stólpi í kirkju­starfi.

Þegar þessi ár eru rædd rifj­ast upp að Þor­valdur yngri var ekki nema 8 ára þegar hann hóf sinn feril syngj­andi uppi á sviði með for­eldrum sínum, en í dag starfar hann meðal ann­ars sem söngv­ari í Þýska­landi.

Um all langt skeið vann Þor­valdur hjá Þýsk/íslenska þar sem vinur þeirra Ómar Krist­jáns­son var með sína starf­semi. Margrét starf­aði þá um tíma á Reykja­lundi, líka sem með­ferð­ar­full­trúi á BUGL, síðar var hún sál­gæslu­þjónn í Laug­ar­nes­kirkju og í kjöl­farið nam hún félags­ráð­gjöf við HÍ. Allan tím­ann var hugur og hjarta þó bundið þjón­ust­unni við kirkju Krists í land­inu. Ógleym­an­legur er í sjóði minn­ing­anna sá tími er hjóna-sveitin Án skil­yrða fór túr­andi um landið hald­andi sam­komur í kirkjum vítt og breitt í sam­vinnu við sókn­ar­presta. Jón Þór Ólafsson og Ólöf Högna­dóttir lán­uðu sendi­ferða­bíl­inn sinn og það var stemmn­ing og gleði.

Er Þor­valdur og Gréta komu til Laug­ar­nes­kirkju tók húsið að ilma af þekk­ingu þeirra á Drottni. Ógleym­an­legar eru kvöld­stund­irnar Þriðju­dagur með Þorvaldi þar sem Gunnar Gunn­ars­son sat við flygil­inn. Á löngu tíma­bili var starf Vina í Bata sem Margrét stóð að í sam­vinnu við Margréti Egg­erts­dóttur og Helgu Hró­bjarts­dóttur, rekið í beinu fram­haldi af söng­stund Þor­valdar. Þannig tvinn­að­ist til­boð um per­sónu­legan vöxt og þroska saman við þátt­töku í ynd­is­legri lof­gjörð og bæn, svo að á köflum var eig­in­lega of margt fólk í hús­inu.

Um þetta leiti var ég kom­inn til starfa sem sókn­ar­prestur í Laug­ar­nes­kirkju og naut þess ómælt að eiga styrk í þeim hjónum á svo mörgum sviðum sem allt mið­aði að því einu að lyfta upp nafni Jesú. Þá voru líka Kola­ports­messur að hefja göngu sína í sam­vinnu Jónu Hrannar Bolla­dóttur og þeirra hjóna. Hefur Jóna margoft látið þess getið að engar kirkju­klukkur hafi ómað skærar og laðað betur að en Þor­valdur að syngja dæg­ur­lög áður en messa skyldi í Kola­port­inu. Það sama gilti er kom að hinum mán­að­ar­legu gospel­kvöldum í Hátúni 10 sem þar fóru fram árum saman. Þor­valdur var ein­fald­lega gild ástæða fyrir góða Íslend­inga til þess að mæta á svæðið og láta sjá sig, því um leið og hann birt­ist birti yfir öllu sama hvernig fólki ann­ars leið. Og þegar hann svo fór aftur að sjást og heyr­ast í danslaga­brans­anum á Broadway og víðar var honum fagnað eins og týndum syni.

– Tónlist: „Ó, hún er svo sæt“ – Flutn­ingur: Þor­valdur yngri

Þjóðin elskaði Þorvald Hall­dórs­son vegna þess að hann gladdi fólk! Gleðin sem vakn­aði í hug og hjarta átti rætur í þeim ein­læga áhuga og virð­ingu sem Þor­valdur sýndi öllu fólki skil­yrð­is­laust. Hvar sem hann kom fylgdi Þorvaldi sómi, ekki bara sá per­sónu­legi sómi og frægð­ar­ljómi sem um hann lék, heldur miklu fremur sóm­inn sem hann bar með sér ómælt handa öllum hinum. Hann horfði á þig og gladd­ist ein­læg­lega yfir því að einmitt þú værir hér kom­inn til að vera með. Þess vegna naut hann sín líka vel í kór­a­starfi og marg­vís­legum öðrum félags­skap. Þor­valdur sótt­ist ekki eftir því að vera aðal, hann bara komst ekki hjá því að verða það. Gamlir kór­fé­lagar úr Laug­ar­nes­kirkju minn­ast hans með þakk­læti og stolti og muna svo vel þessa þætti í fari hans. Og einu gilti hvar Þor­valdur og Gréta fóru um sína daga, hvar­vetna skyldi nafn Jesú fá að heyr­ast og til­boð hans um nýja lífs­mögu­leika standa opið. Í þessu sam­bandi nefnir Þorri þátt í lífi föður síns sem hann iðu­lega varð vitni að hvernig sá gamli átti alltaf afgang handa ungum tón­list­ar­mönnum. Veit ég að þeir eru margir í brans­anum sem ungir fengu heið­ar­legt pepp frá Þorvaldi Hall­dórs­syni og hvatn­ingu til að láta ekki sitt ljós undir mæli­ker heldur leyfa því að skína.

Enn á eftir að nefna tvo þætti í þjón­ustu þeirra Valda og Grétu sem ekki má gleyma: Lúth­erskar hjóna­helgar og hinar svo nefndu Tómasar­messur í Breið­holts­kirkju. Á Lúth­ersku hjóna­helg­unum áttu þau sam­starf við sr. Magnús Björns­son og Guðrúnu Dóru Guð­manns­dóttir og sr. Örn Bárð Jónsson, Ólaf Jóhanns­son og Þóru Harð­ar­dóttur og marga fleiri góða vini. Enn lifir það magn­aða starf að ógleymdum öllum kær­leiks­hóp­unum sem sprottið hafa upp vítt um landið. Árum saman voru Tómasar­mess­urnar líka fastur liður í kristni­lífi höf­uð­borg­ar­innar. Dásam­legt til­boð um helgi­hald þar sem góðu frétt­irnar fengu að njóta vafans í anda Tómasar læri­sveins sem ekki gat trúað nema fá að spyrja spurn­inga fyrst. Þar áttu þau sam­starf við sr. Gísla Jónasson, Árnýju Alberts­dóttur konu hans og ýmsa sem fyrr hafa verið nefndir auk margra ann­ara Krists vina.

Er þau fluttu heim­ili sitt úr Mos­fellsbæ og sett­ust að austur á Selfossi var þess skammt að bíða að til­kynnt væri um nýtt útibú fyrir Vini í bata í bæj­ar­fé­lag­inu. Renna mörg þakk­ar­hug til þeirra hjóna fyrir það frum­kvæði. Á þessum árum bjó Leifur sonur Þorvalds ásamt Sigríði konu sinni og þremur börnum á Selfossi og naut fjöl­skyldan þess nábýlis sann­ar­lega.

Loks skal nefna eina hefð sem Margrét og Þor­valdur varð­veittu um sína daga segir hell­ing um þau sjálf. Þau héldu ætíð stóra veislu fyrir sitt fólk á jóla­dag, og eftir því sem barna­börn­unum fjölg­aði var borðið bara stækkað og meira sett í pott­inn. Borið var fram hangi­ket með öllu til­heyr­andi auk sviða­sultu og rófu­stöppu að fornum sið – en líka kjúklingur og franskar sem Þor­valdur steikti í for­láta djúp­steik­ing­ar­potti sem hann alltaf átti. Gamla hefðin var fín og góð en það sem gerði úts­lagið var þessi dýr­legi kjúlli, frönsk­urnar hans afa og kok­teilsósan sem skil­yrð­is­laust fylgdi með. Minnast öll sem nutu þess­arar árlegu veislu hve vel allt fór saman á einu stóru borði; hangi­kjöt, kjúklingur og sviða­sulta með til­heyr­andi rófu­stöppu, upp­stúf, frönskum, hrásal­ati, kok­teilsósu og öllu hinu. – Og ef við hugsum út í það þá voru það nákvæm­lega þessir þættir sem gerðu það að verkum að fólk elskaði og treysti Þorvaldi Hall­dórs­syni. – Hann unni hefð­inni og virti hana mik­ils en skildi jafn­framt hvernig fólki leið. Hann vissi hvað það þurfti og lang­aði að fá að heyra. Þor­valdur var popp­ari af Guðs náð. – Á næsta ári komum við á nátt­buxum! Sögðu systk­inin hvert við annað er þau kvödd­ust og rúll­uðu pakksödd og sæl til síns heima.

Og ekki gleym­ist að í jóla­dags­veisl­unni bar Margrét fram heima­lag­aða vanillu­ís­inn handa fólk­inu sínu sem allir elsk­uðu – rétt eins og hún alltaf stóð við hlið Þorvaldi á sviði mann­lífs­ins, miðlandi fús­lega þeim ríku gæðum sem hún átti og breytt hafa lífi svo margra til hins betra. Á sviði kirkju og kristni birtu Valdi og Gréta þá kirkju sem hvorki treystir skrúða né skrúð­mælgi heldur miðlar ást Jesú á öllu fólki án skil­yrða.

Árið 1986 hafði mikið reið­ar­slag skollið á Þorvaldi og fólki hans öllu er son­ur­inn Halldór Baldur tók sitt eigið líf rétt tví­tugur að aldri. Hafði Þor­valdur þá tekið þá afstöðu sem ekki var enn orðin algeng að fela ekki sann­leik­ann heldur ræða heið­ar­lega um sjálfs­víg í tengslum við sorg. Vitum við sem til þekktum að er Leifur sonur Þor­valdar tók líf sitt frá konu og börnum árið 2016 var sem brysti sál­ar­strengur í hjarta hans. Áfram var hann ljúfur og góður í allri fram­göngu, en félags­þrekið var ekki samt sem áður og ald­ur­inn far­inn að segja til sín. Festu þau Margrét sér brátt hent­ugt hús­næði í Tor­revi­eja á Spáni þangað sem þau fluttu árið 2019. Þar átti Viktor sonur Mar­grétar þá lög­heim­ili sitt ásamt Eydnu konu sinni og dótt­ur­inni Maríu. Nutu þau hjónin nábýlis við ást­vini í mild­ara lofts­lagi sem gerði heilsu þeirra beggja gott. Þá fundu þau gott og græð­andi kirkju­sam­fé­lag sem þeim var kært.

Heilsu Þor­valdar hrak­aði hin síð­ari ár uns hann greind­ist með krabba­mein skömmu fyrir and­lát sitt þann 5. ágúst sl.

Nú er kveðju­stund.

Þor­valdur, far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Amen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins