„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vill láta laga sögufræga styttu: „Hvers eiga Þorfinnur, Einar og við Íslendingar að gjalda?“

Vill láta laga sögufræga styttu: „Hvers eiga Þorfinnur, Einar og við Íslendingar að gjalda?“

„Mikið var þetta aumt svar frá menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.Ég taldi að meg­in­hlut­verk slíks ráðu­neytis hlyti að vera að vernda íslenskan menn­ing­ar­arf og efla tengsl við aðra menn­ing­ar­heima.

Í Fíla­delfíu var þekktri styttu Einars Jóns­sonar af Þorfinni karls­efni steypt af stóli og hún afhöfðuð.“ Þannig hefst Facebook-færsla Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar en þar á hann við svar menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins að aðhaf­ast ekk­ert varð­andi styttu Einars Jóns­sonar af Þorfinni karls­efni sem var afhöfðuð í Fíla­delfíu nýlega en þar hefur hún staðið í yfir 100 ár. Styttan ku dúsa í geymslu þar ytra en Sig­mundur Davíð vill að hún verði löguð og sett upp aftur. Hann hélt áfram færslu sinni:

„Skýr­ingin sem fylgdi var sú að vafa­samur félags­skapur nefndur „Keyestone State Skinheads” hefði fundað í grennd við stytt­una.Nafn þess­ara sam­taka er svo fárán­legt að aðeins fábjánum eða ein­hverjum sem eru að þykj­ast vera fábjánar gæti dottið það í hug.Þetta er eins og ef öfga­menn í Flórída hefðu kosið að kalla sig The Sunshine State Idiots.

En látum það liggja á milli hluta.“

Segir for­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi að þarna sé verið að vega að menn­ing­ar­tengslum Íslands og Banda­ríkj­anna.

„Þarna er greini­lega verið að reyna að búa til það sem útlend­ingar kalla „guilt by association” (sekt vegna nálægðar) og vega um leið að menn­ing­ar­tengslum Íslands og Banda­ríkj­anna. Þótt ráðu­neytið kalli þetta inn­an­rík­is­mál þeirra Kana.

Hvers eiga Þor­finnur, Einar og við Íslend­ingar að gjalda?“

Rifjar Sig­mundur Davíð upp það þegar Einar var beð­inn um að gera stytt­una og að Þor­finnur karls­efni hefði birst á frí­merkjum og í sögu­bókum en nú liggi hann höf­uð­laus í geymslu:

„Nú liggur hann höf­uð­laus í geymslu, lík­lega innan um umferð­ar­keilur og hálf­kláraðar máln­ing­ar­dollur.Þúsund árum áður átti Þor­finnur konu, kven­skör­ung, Guðríði Þor­bjarn­ar­dóttur að nafni og saman eign­uð­ust þau son­inn Snorra, fyrsta nýbú­ann sem fædd­ist í Ameríku.

Ásmundur Sveins­son gerði minn­is­varða um þau Guðríði og Snorra. Nýverið unnu tvær konur skemmd­ar­verk á minn­is­varð­anum og rændu þeim mæðginum. Það mun hafa verið gert vegna þess að nýbúar hefðu ekki átt rétt á sér í Ameríku.“

Segir hann enn­fremur að hugs­an­lega telji ráðu­neytið meti skemmd­ar­verk á minn­is­vörðum meira en varð­veisla þeirra.

„E.t.v. telur menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið skemmd­ar­verk á minn­is­vörðum um sögu Íslands mik­ils­verð­ari en varð­veislu þeirra.

Vill ráðu­neytið e.t.v. að við fjar­lægjum stytt­una af Leifi Eiríks­syni á Skóla­vörðu­holti og geymum hana við hlið­ina á séra Friðriki?“

Að lokum segir Sig­mundur Davíð að betra hefði verið fyrir ráðu­neytið að svara Banda­ríkja­mönnum í bundnu máli:

„Hún var reyndar gjöf frá Banda­ríkja­mönnum í til­efni af 1000 ára afmæli Alþingis en menn­ing­ar­ráðu­neytið getur eflaust útskýrt að þetta sé bara inn­an­rík­is­mál.Betra hefði verið að ráðu­neytið sendi Banda­ríkja­mönnum svar í bundnu máli á íslensku og ensku, „Höf­uð­lausn Þorfinns karls­efnis Þórð­ar­sonar”.

Sú var tíðin að Íslend­ingar hefðu brugð­ist þannig við.“

Og viti menn, séra Hjálmar Jónsson snar­aði saman vísu um leið og birti í athuga­semdum enda hag­mæltur mjög. Hér má lesa vís­una:

Sjálfur bar hann sverð og skjöld,sýndi kjark og festu,en nú eru íslensk yfir­völdafskipta­laus að mestu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins