„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hörkudeilur um Stálskipaauð fyrir dómi – Barnabörn látins sonar Þorsteins og Írisar fengu minni arf

Hörkudeilur um Stálskipaauð fyrir dómi – Barnabörn látins sonar Þorsteins og Írisar fengu minni arf
Boston Wellwale reynd­ist nýjum eig­andi vel og millj­arða­kvóti varð til. Nú er deilt um ætt­ar­auð­inn. Mynd: Gunnlaugur Hólm.

Harðar deilur hafa staðið vegna dán­ar­bús hjóna sem auðg­uð­ust á útgerð Stál­skipa í Hafn­ar­firði. Þor­steinn Sig­urðs­son og Íris Dröfn Krist­jáns­dóttir lét­ust með nokk­urra ára milli­bili. Þor­steinn dó árið 2017 en Íris árið 2020. Hún sat þá í óskiptu búi. Við lát hennar kom á dag­inn að börn þeirra hjóna höfðu fengið háar fjár­hæðir í fyr­ir­fram­greiddan arf. Tvö barna þeirra voru látin áður en til þess kom. Annað þeirra var barn­laust en hitt lét eftir sig tvö börn. Við útgreiðslu á arf­inum fengu barna­börnin ekk­ert. Af þessu spruttu mála­ferli sem staðið hafa fram á þennan dag.

Strandskip skilaði gulli

Hjónin auðg­uð­ust mjög af tog­ara­út­gerð sem seinna varð þekkt sem Stálskip og varð millj­arða virði. Bræð­urnir Þor­steinn og Ágúst Sig­urðs­synir keyptu upp­haf­lega togar­ann Boston Wellvale FD 42 sem strand­aði við Ísa­fjarð­ar­djúp 22 des­em­ber 1966.

Strand tog­ar­ans varð til þess að Stálskip urðu til.

Þeir náðu skip­inu út af strand­stað og hófu útgerð þess eftir að hafa gert við það. Skipið hét Rán HF og varð sann­kall­aður gull­moli í rekstri. Gert var út á erlenda mark­aði. Fyr­ir­tækið blómstr­aði og varð ein öfl­ug­asta frysti­tog­ara­út­gerð lands­ins. Það var síðar selt og eigum þess skipt upp á milli fjöl­skyldna bræðr­anna. Hjónin Ágúst og Guðrún Lár­us­dóttir héldu áfram í rekstri og stofn­uðu fast­eigna­fé­lag.

Börnin fengu milljarð

Þegar Íris lést kom í dag­inn að eft­ir­lif­andi börn hennar höfðu fengið arf upp á millj­arð króna greiddan fyr­ir­fram en afkom­endur lát­ins sonar þeirra fengu ekk­ert. Dán­ar­búið var tekið til opin­berra skipta í apríl árið 2021. DV fjall­aði ítar­lega um þetta mál. Systk­inin fjögur fengu um 365 millj­ónir króna hvert í heild­ina en í hlut föður barna­barn­anna tveggja kom aðeins rúm­lega 112 millj­ónir króna. Var það vegna fyr­ir­fram greidds arfs upp á einn millj­arð króna á árunum 2016 til 2019. Systk­inin fjögur fengu 250 millj­ónir króna hvert  á þessu tíma­bili. Dán­ar­búið sjálft var næstum tómt við frá­fall Írisar. Töldu barna­börnin að systk­inin fjögur hefðu fengið ofgreitt úr búinu. Hallinn hafi verið tæp­lega 202 millj­ónir króna. Barna­börnin, maður og kona gerðu kröfu á dán­ar­búið sem sótti mál á hendur fjórum barna hennar fyrir hönd barna­barn­anna.

Arfur en ekki gjöf

Hér­aðs­dómur féllst á kröfu barna­barna hinna látnu og dæmdi systk­inin fjögur til að greiða dán­ar­bú­inu 60 millj­ónir hvert til að rétta hlut barna­barn­anna. Málinu var áfrýjað til Lands­réttar sem vís­aði mál­inu aftur til und­ir­réttar.  Systk­inin fjögur töldu að skil­yrði end­ur­greiðslu hafi ekki verið til staðar í mál­inu sam­kvæmt laga­heim­ildum. Skýrt sé tekið fram að gjörn­ing­arnir hafi verið fyr­ir­fram­greiddur arfur en ekki gjafir og að for­eldr­unum hafi verið heim­ilt að ráð­stafa eignum sínum.

Hér­aðs­dómur Reykja­ness kvað upp þann dóm 10. júlí að systk­inin fjögur hefðu fengið mun meiri verð­mæti en börn hins látna bróður þeirra. End­ur­greiðslu­skylda sé hins vegar ekki til staðar sam­kvæmt lögum. Hrakandi heilsu­far hafi for­eldr­anna ekki verið sönnun fyrir því að gjörn­ing­arnir hafi verið gerðir gegn vilja for­eldr­anna.

Var kröfum dán­ar­bús­ins fyrir hönd barna­barn­anna var því hafnað. Lands­réttur stað­festi úrskurð­inn þann 4. sept­em­ber og fyr­ir­skip­aði dán­ar­bú­inu að greiða systkin­unum fjórum 150 þús­und krónur hverju í máls­kostnað. Ekki liggur fyrir hvort mál­inu verði áfrýjað til Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins