„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skýrsla Þórhildar Sunnu verður borin upp til atkvæða í Evrópuráðsþinginu: „Ég er gríðarlega stolt“

Skýrsla Þórhildar Sunnu verður borin upp til atkvæða í Evrópuráðsþinginu: „Ég er gríðarlega stolt“
Vladimir og Þór­hildur Sunna. Mynd: Facebook

Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur náði þeim merka áfanga í gær að koma skýrslu sinni um varð­haldið á Julian Assange í umræður og kosn­ingu á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í París.

„Sumir dagar eru ein­fald­lega betri en flestir í alþjóða­starf­inu! Í dag náði skýrsla mín um varð­haldið á Julian Assange fram að ganga á fundi laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins í París.“ Þannig hefst færsla Píratans Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur enda ærin ástæða til að benda á þennan merka árangur. Og hún heldur áfram:

„Skýrslan stað­hæfir að Julian Assange hafi verið póli­tískur fangi þar til hann var leystur úr haldi í sumar og að með­ferðin á honum hafi haft kælandi áhrif á tján­ing­ar­frelsi og sér­stak­lega fjöl­miðla­frelsi um heim allan. Þetta var alls ekki sjálf­gefin nið­ur­staða enda mál hans umdeilt og hápóli­tískt hér í Evr­ópu­ráð­inu sem og ann­ars staðar. Ég er því gríð­ar­lega stolt af því að þessi áfangi sé í höfn.“

En hvað þýðir þetta nákvæm­lega?

„Skýrslan er nú form­lega orðin að skýrslu laga- og mann­rétt­inda­nefnd­ar­innar og hún verður rædd og borin upp til atkvæða í Evr­ópu­ráðs­þing­inu í byrjun októ­ber næst­kom­andi og ég er bjart­sýn á að það tak­ist miðað við stuðn­ing­inn í nefnd­inni í morgun,“ skrifar Þór­hildur Sunna í færsl­unni í gær.

Í færsl­unni talar Pírata­þing­konan einnig um vin sinn sem hún fékk að hitta eftir fund­inn en það er fyrrum póli­tíski fang­inn Vladimir Kara-Murza sem nýlega var sleppt úr fanga­búðum Síberíu.

„Eftir sam­þykkt skýrsl­unnar minnar fékk ég síðan bestu gjöf dags­ins, að hitta vin minn og fyrrum póli­tíska fang­ann Vladimir Kara-Murza og Evgeniu konu hans sem ég hef unnið náið með á meðan hann var í rúss­nesku fang­elsi. Nú er Vladimir frjáls maður og ávarp­aði nefnd­ina okkar, rétt eins og hann gerði fyrir 2 árum, aðeins örfáum dögum áður en hann var hand­tek­inn í Moskvu og síðar dæmdur til 25 ára vistar í harð­neskju­legum fanga­búðum í Síberíu. Vladimir var meðal þeirra fanga sem fengu frelsi sitt í gegnum fanga­skipti milli Rúss­lands og Banda­ríkj­anna, Þýska­lands og fleiri ríkja.“

Hér fyrir neðan má sjá færsl­una í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins