„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Styrktarsjóður í nafni Violetu Mitul stofnaður – Fjölmennt á minningarathöfnina á Vopnafirði

Styrktarsjóður í nafni Violetu Mitul stofnaður – Fjölmennt á minningarathöfnina á Vopnafirði
Fjöl­mennt var á minn­ing­ar­at­höfn­inni. Mynd: Urður Steinnunn Önnudóttir Sahr en hún gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til birtingar.

Fjöl­menni var á minn­ing­ar­at­höfn um mold­óvsku knatt­spyrnu­kon­una Violetu Mitul á Vopna­firði fyrir viku en hún lést af slys­förum í fyrra. Ung­menna­fé­lagið Einherji hefur nú stofnað styrkt­ar­sjóð í hennar nafni.

Blessuð sé minn­ing Violetu

Sjóðnum er ætlað að styrkja efna­minni fjöl­skyldur á Vopna­firði svo hægt sé að tryggja að börn þeirra geti stundað íþróttir. Und­an­farið hafa stuðn­ings­menn Einherja gefið stofn­fram­lag í sjóð­inn en einnig er verið að spá í að halda knatt­spyrnu­mót í minn­ingu Violetu.

„Hennar fjöl­skylda þurfti að færa fórnir þannig að Violeta gæti stundað knatt­spyrnu. Stuðn­ings­menn hafa gefið í sjóð­inn og það er enn tekið við fram­lögum,“ segir Víglundur Páll Ein­ars­son, for­maður Einherja og þjálf­ari meist­ara­flokks kvenna í sam­tali við Aust­ur­frétt.

Þann 4. sept­em­ber í fyrra lést Violeta eftir að hún hrap­aði fram af kletti á Vopna­firði, aðeins 26 ára gömul. Á bjarg­brún­inni er búið að koma upp litlum minn­ing­ar­reit en í vor hjarta úr blómum gróð­ur­sett og við minn­ing­ar­at­höfn þar fyrir viku var bekk komið upp þar einnig. Nafn Violetu er letrað á bekk­inn og minn­ing­ar­orð á móð­ur­máli hennar og á íslensku, að því er fram kemur í umfjöllun Aust­ur­fréttar. Þar kemur einnig fram að örygg­is­mál við klettana hafi verið löguð, strax eftir banaslysið.

Athöfnin í síð­ustu viku hófst á minn­ing­ar­orðum og tón­list­ar­flutn­ingi. Þá var kveikt á kertum sem mynd­uðu núm­erið á knatt­spyrnu­treyju Violetu hjá Einherja, 11. Aukreitis hanga treyjur með nafni hennar og núm­eri, bæði í vall­ar­húsi knatt­spyrnu­vall­ar­ins og bún­ings­klefa Einherja en liðið not­aði ekki núm­erið hennar í sumar.

Bekkur til að minn­ast Violetu.

Við íþrótta­völl­inn hélt minn­ing­ar­at­höfnin áfram þar sem fjöl­skylda Violetu, sem kom sér­stak­lega til Íslands til að taka þátt, gróð­ur­setti tré til minn­ingar um Violetu. Var athöfnin fjöl­sótt en á sjö­unda tug fólks skrif­aði nöfn sín í gesta­bók.

Fallegur minn­ing­ar­reitur.

Segir Víglundur Páll það skipta máli fyrir bæði fjöl­skyld­una og Vopn­firð­inga að minn­ingu Violetu sé haldið á lofti. „Við reynum að gera okkar besta til að minn­ast hennar. Við vitum að það skiptir fjöl­skyldu hennar miklu máli. Við erum líka með nán­ast sama leik­manna­hóp og í fyrra þannig að minn­ingin um hana er sterk.“

Frá minn­ing­ar­at­höfn­inni.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

minningarathöfn

Vopnfirðingar minnast Violetu Mitul í kvöld – Ár liðið frá andláti knattspyrnukonunnar
Landið

Vopn­firð­ingar minn­ast Violetu Mitul í kvöld – Ár liðið frá and­láti knatt­spyrnu­kon­unnar

Minn­ing­ar­at­höfn verður haldin á Vopna­firði í kvöld í til­efni þess að ár er liðið frá því að mold­óvska knatt­spyrnu­konan Violeta Mitul lést af slys­förum í bænum. Aust­ur­frétt segir frá því að Vopn­firð­ingar séu boð­aðir til athafnar í kvöld við setu­bekk yst á Hafn­ar­byggð­inni klukkan 18:00, þar sem minn­ing­ar­orð verða flutt sem og tón­list en til­efnið er að nú er ár...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins