„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Albert mættur fyrir dóm – Ákærður fyrir nauðgun

Albert mættur fyrir dóm – Ákærður fyrir nauðgun
Albert Guð­munds­son var sýkn­aður í gær Mynd: Alessandro Sabattini / Getty Images

Rétt­ar­höld í nauðg­un­ar­máli Albert Guð­munds­sonar hefj­ast í dag og er knatt­spyrnu­mað­ur­inn mættur í Hér­aðs­dóm Reykja­víkur. Hann er ákærður fyrir nauðgun með því að hafa haft önnur kyn­ferð­is­mök en sam­ræði við konu án hennar sam­þykkis.

Í fyrra var Albert kærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn konu en lög­reglan rann­sak­aði málið og sendi það til hér­aðs­sak­sókn­ara. Sá felldi málið niður í vor þar sem hann taldi að það væri ekki lík­legt til sak­fell­ingar. Kærði kona þá ákvörðun til rík­is­sak­sókn­ara sem í maí sneri henni við.

Líkt og venjan er í kyn­ferð­is­brota­málum er þing­hald í mál­inu lokað en þann 3. júlí var Albert við­staddur þing­fest­ingu máls­ins í gegnum fjar­fund­ar­búnað. Þegar Albert var kærður mátti hann ekki leika með lands­lið­inu en fékk síðan að spila nokkra leiki með lið­inu þegar frá­vís­unin var í áfrýj­un­ar­ferli. Frá því að nið­ur­fell­ing­unni var snúið við hefur Albert aftur verið á bann­lista KSÍ.

Albert hefur frá upp­hafi neitað sök í mál­inu.

Skipti um lið

Albert gekk nýlega til liðs við ítalska liðið Fior­ent­ina en liðið end­aði í 8. sæti í efstu deild Ítalíu á sein­asta tíma­bili en liðið hefur endað í kringum miðja deild und­an­farin ára­tug en náð ágætis árangri í Evr­ópu­keppnum. Sumir töldu að Albert myndi ekki færa sig um set þar til eftir nið­ur­staða úr nauðg­un­ar­máli hans væri ljós en það reynd­ist rangt.

Albert er án efa besti knatt­spyrnu­maður Íslands um þessar mundir og skor­aði hann 16 mörk í 37 leikjum fyrir Genoa á síð­asta tíma­bili en hann hefur leikið 37 lands­leiki fyrir Íslands og skorað í þeim tíu mörk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins