„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Alrún Ösp fræðir Wiium bræður um „kink“: „BDSM getur verið ógeðslega fallegt og mjúkt og náið“

Alrún Ösp fræðir Wiium bræður um „kink“: „BDSM getur verið ógeðslega fallegt og mjúkt og náið“
Vargynja mundar svip­una. Mynd: YouTube-skjáskot

Nýjasti gestur Alkasts Þvotta­húss­ins er engin önnur en BDSM-drottn­ingin og bind­ar­inn Alrún Ösp. 

Alrún Ösp, sem gengur undir nafn­inu Vargynja, segir frá því í við­tal­inu hvernig hún fór að finna fyrir hvötum sem snúa að sárs­auka og vald­beit­ingu þegar hún var ung­lingur. 

Til fróð­leiks má nefna að BDSM er skamm­stöfun sem stendur fyrir bind­ingar, drottnun og und­ir­gefni; síðan er sadó og masókismi í lokin.

Vargynja segir að finna megi mis­mun­andi ásetn­ing eða for­sendur þeirra sem leiti inn í BDSM. Sumir fara þar inn í leit af smá spennu og eru svo kannski að daðra við BDSM í mörg ár þó án þess að vera haldin þess­ari djúpu „kink“ hneigð sem svo ein­kennir aðra.

BDSM er fyrir mörgum bara eitt­hvað skítugt og asna­legt þar sem fólk virð­ist bara vera að meiða hvort annað í ein­hverju stjórn­leysi og rugli; það er fjarri svo. Vargynja fór vel yfir hvernig BDSM gengur í raun út á kær­leik, virð­ingu og traust sem er grunn­ur­inn í þeim tengslum sem eiga sér stað í hinum ótelj­andi útgáfum BDSM. Hvort sem verið að binda, flengja, klípa og klóra, þá snýst leik­ur­inn um að þekkja sjálfan sig og meta sitt eigið ferli heið­ar­lega. 

Fordómar fólks gagn­vart BDSM segir Vargynja stafi hrein­lega af fáfræði. Ímynd BDSM er að stórum hluta mörkuð af tak­mark­aðri staðalí­mynd sem fengin er úr klámi þar sem röng mynd er klár­lega gefin og í engu sam­ræmi við hvað BDSM raun­veru­lega snýst um. „Flest fólk er bara með ein­hverja eina ákveðna mynd í hausnum á sér um það hvað BDSM er því það sér bara það sem það er í klám­inu eða bíó­mynd­unum. BDSM er svo miklu meira en þessi mynd sem fólk er með,“ segir Vargynja og bætir við: „BDSM getur verið ógeðs­lega fal­legt og mjúkt og náið. Það er ekki alltaf sárs­auki og eitt­hvað rough brjál­æði“.

Gunnar rifj­aði upp við­tal við Boff nokkurn Konkers sem kom í Þvotta­húsið fyrir nokkrum árum. Þar tal­aði hann um BDSM dýflisur í London sem hann heim­sótti reglu­lega þar sem veggir voru nán­ast blóði drifnir og fólk hengt upp á krókum og alls­konar eins og maður myndi halda að maður sæi bara í hryll­ings­myndum. Vargynja sagði sen­una á Íslandi vera allt öðru­vísi og ekki svona harka­lega nema þá kannski í ein­hverjum afmörk­uðum sellum sem ekki bæri mikið á. 

Gunnari vakti for­vitni á að vita hvað Vargynju fynd­ist um það að ein­stklingar sem höfðu upp­lifað brotna æsku og mögu­legt ofbeldi leiti frekar í BDSM en aðrir. Vargynja sagð­ist alveg halda að það væri svo í ein­hverjum til­fellum en þá sem leið til heil­unar. Heil­un­ar­ferlið segir hún þá snúa að því að finna mörkin sín og öðl­ast vald­efl­ingu í gegnum satalið áður en leik­ur­inn fer fram. Einnig er umhverfið öruggt og segir hún að þó svo að vald­beit­ingu sé beitt sé sá sem verður fyrir vald­beit­ingu í BDSM leik alltaf með stjórn­ina og ákveði sjálf eða sjálfur hversu langt má ganga; algjör­lega ólíkt aðstæðum sem skil­grein­ast myndu sem ofbeld­is­að­stæður þar sem mörk eru ekki virt og fyrir vikið mikið óör­yggi. 

Þó svo að Vargynja seg­ist halda mikið upp á fleng­ingar sér­hæfir hún sig í bind­ingum að japönskum sið. Bind­ingar að japönskum sið ganga undir heit­inu Shibari og eru upp­runnar í Japan á 15. öld. Shibari var leið sam­úræja til að hemja og pynta fanga sína með reipi. Það varð svo að eins­konar eró­tísku spektrum seint á 19. öld og er nú þekkt kink innan BDSM sam­fé­lags­ins til að örva þrýsti­punkta og næm tauga­svæði í gegnum reipi­stöður og hnúta. 

Þetta magn­aða við­tal við Vargynju má heyra og sjá hér í spil­ar­anum fyrir neðan en einnig má heyra öll við­töl Alkast­ins á öllum streym­isveitum eins og Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kúltúrinn

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“
Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugn­an­legar lík­kistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

DJ Khaled er orð­inn nýj­ast stjarnan til að fá afhenta óhugn­an­lega lík­kistu heim til sín í Flórída. Áður hafði Tekashi 6ix9ine fengið slíka send­ingu á höfð­ingja­setur sitt nokkrum dögum fyrr. Hin óhuggu­lega lík­kista var send að heim­ili Khaleds í Miami síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, af tveimur mann­eskjum sem keyrðu trukki til örygg­is­varðar, og sögð­ust vera frá send­ing­ar­fyr­ir­tæki, sam­kvæmt lög­reglu­skýrslu. Eftir að þeim...
Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans
Menning

Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tím­ans

Tón­list­ar­mað­ur­inn Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína á morgun en nafn hennar er Rykfall. Rykfall, þriðja breið­skífa Myrkva, er afrakstur margra ára vinnu. Hún er sjálf­stæð­asta verk lista­manns­ins til þessa en nán­ast hvert smá­at­riði plöt­unnar er spilað eða útsett af honum. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu var mark­miðið að skapa eitt­hvað sem gæti stað­ist tím­ans tönn. Platan fjallar um að leggja allt undir...
Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza
Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórn­ar­lömb þjóð­ar­morðs­ins á Gaza

Stór­tón­leikar verða haldnir í Háskóla­bíói laug­ar­dag­inn 1. mars kl. 14:00. Ágóði af miða­söl­unni rennur í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza. Laug­ar­dag­inn 1. mars efni Félagið Ísland-Palest­ína til stór­tón­leika í Háskóla­bíó þar sem fram koma Bubbi, GDRN, Friðrik Dór, Jón Jónsson, KK og Ellen og hljóm­sveitin FLOTT! Samkvæmt frétta­til­kynn­ing mun ágóði af miða­sölu renna í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza sem stofnað var...
The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“
Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tíma­lausum smellum og anda kán­trítón­listar“

Fyrir fjöru­tíu árum, árið 1985, varð kán­trítón­listar saga sköpuð þegar fjórir af bestu tón­lista­mönnum allra tíma, Johnny Cash, Waylon Jennings, Willie Nelson og Kris Kristoffer­son, komu saman til að stofna The Highwaymen. Samstarf þeirra var sam­stundis far­sælt, leiddi til upp­seldra tón­leika, toppplatna og var­an­legrar arf­leifðar sem mót­aði fram­tíð kán­trítón­listar. Kraft­mik­ill og hjart­næmur hljómur þeirra ómaði um allan heim og nú,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza