„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hamingjustund í Bæjarbíói á þriðjudaginn: „Einmanaleiki er eins og COVID-faraldur“

Hamingjustund í Bæjarbíói á þriðjudaginn: „Einmanaleiki er eins og COVID-faraldur“
Bæjarbíó

Ham­ingju­stund í Bæj­ar­bíói verður haldin á Ham­ingju­dögum í Hafn­ar­firði 17. sept­em­ber kl. 20:00.

„Ein­mana­leiki er eins og COVID-far­aldur, hann breið­ist hratt út og eykst svaka­lega,“ segir Linda Bald­vins­dóttir, sam­skipta­ráð­gjafi og mark­þjálfi. Talið sé að um fimmt­ungur Íslend­inga eldri en 67 ára upp­lifi sig oft eða stundum ein­mana. Linda segir að hún finni í ráð­gjöf sinni  mikið ójafn­vægi í nútíma­lífi fólks á öllum aldri. „Það er bara svo mikið að gera hjá fólki.“

Linda ætlar að sporna fótum við á ham­ingju­kvöldi í Bæj­ar­bíói 17. sept­em­ber. Und­ir­tónn­inn er alvar­legur, ein­mana­leik­inn en ham­ingjan verður í fyr­ir­rúmi á Ham­ingju­dögum í Hafn­ar­firði.

„Við ætlum að finna leið­ina að ham­ingj­unni. Tengsl, leiðir út úr ein­mana­leika og ræktun sjálf­skær­leika verða við­fangs­efnin,“ segir hún en við­burð­ur­inn hefst klukkan 20:00. 

Aðal­björg Stefanía Helga­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og höf­undur bók­ar­innar Einmana, fer yfir leiðir út úr ein­mana­leik­anum. Theodór Francis Birg­is­son, ráð­gjafi og viku­legur gestur í Bítinu á Bylgj­unni, talar um tengsl á léttum nótum. Sigga Kling, rit­höf­undur og fyr­ir­les­ari, gefur okkur leið­ina að ham­ingj­unni. Rósa Guð­bjarts­dóttir bæj­ar­stjóri opnar og Guðrún Árný söng­kona rammar kvöldið inn með því að stýra sam­söng og gleði. Sjálf talar Linda um sjálfs­ást.

„Við horfum í átt­ina að heil­brigði. Horfum raun­sætt á það að nútím­inn elur af sér kvíða og ein­mana­leika og gefum upp leið­ina að ham­ingju­rík­ara lífi,“ segir Linda.

Ham­ingju­dagar í Hafn­ar­firði standa yfir í sept­em­ber. Þeir eru nú haldnir í annað sinn en hug­myndin kvikn­aði í fyrra til að bregð­ast við ákveðnum vís­bend­ingum um að ham­ingju­stuð­ull lands­manna fari dvín­andi. Heilsu­bær­inn Hafn­ar­fjörður stendur fyrir fjöl­breyttum við­burðum til að efla jákvætt við­horf og stuðla að betri and­legri og lík­am­legri líðan – auka ham­ingj­una, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu.

Linda nefnir hvernig breytt fjöl­skyldu­gerð og tengsla­leysi sé afleið­ing nútíma­lífs­stíls. „Við erum öll svo upp­tekin. Það er alltaf svo brjálað að gera,“ segir hún og finnur það á eigin skinni. 

„Maður þarf að bjóða heim með góðum fyr­ir­vara. Ömmur og afar eru líka upp­tekin. Börnin koma ekki heim eftir skóla. Þau borða ekki með full­orðnum því íþrótta­iðkunin er jafn­vel á mat­ar­tíma,“ segir hún og horfir til breyttrar fjöl­skyldu­menn­ingar.

„Ég horfi til ungra kvenna í dag. Þær þora ekki segja frá því að þær séu búnar á því,“ segir hún um þá mörgu bolta sem þær þurfi að halda á lofti. Nú þurfi að staldra við, end­ur­skipu­leggja fjöl­skyldur, jafn­vel horfa til þess sem vel var gert hér áður.

„Ráðin mín eru: aft­ur­hvarf til for­tíðar þannig að það mynd­ist tími fyrir ein­ingu og tengsl. Þar sem við lærum að meta okkur sjálf út frá því sem við erum, ekki hvað við gerum,“ segir Linda og bætir við: „Við þurfum að elska okkur sjálf, læra að mynda tengsl og vera hluti af sam­fé­lagi þar sem við leysum vanda saman.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hátíð

Vel heppnað Hamingjukvöld í Hafnarfirði – Hlátur, gleði og samvera
Menning

Vel heppnað Ham­ingju­kvöld í Hafn­ar­firði – Hlátur, gleði og sam­vera

Sann­kallað gleði­kvöld var haldið í Hafn­ar­firði þann 17. sept­em­ber en það er hluti af Ham­ingju­dögum í Hafn­ar­firði. Ham­ingju­dagar í Hafn­ar­firði fara fram allan sept­em­ber­mánuð en þar er boðið upp á alls­konar skemmti­leg­heit á borð við sjó­bað, dáleiðslu og sam­veru­stundir. Síð­ast­liðið þriðju­dags­kvöld fór fram svo­kallað Ham­ingju­kvöld í Bæj­ar­bíói en kvöldið var upp­fullt af hlátri, gleði, sam­veru og söng, eins og það...
Hátíð Bangsafélagsins haldið um helgina: „Ljúfir, hressir, skemmtilegir og góðir við náungann“
Menning

Hátíð Bangsa­fé­lags­ins haldið um helg­ina: „Ljúfir, hressir, skemmti­legir og góðir við náung­ann“

Bangsa­fé­lagið stendur fyrir árlegri hátíð félags­ins Reykja­vík Bear dag­ana 29. ágúst til 1. sept­em­ber. Yfir 125 erlendir bangsar víðs­vegar úr heim­inum mæta á næstu dögum til Íslands og fagna með Bangsa­fé­lag­inu. Reykja­vík Bear hátíðin í ár er nokkuð stærri en í fyrra með umtals­vert fleiri miðum seldum. Hátíðin hefur stækkað ár frá ári og hefur aldrei verið vin­sælli. Hátíð­ar­passar eru...
Sænska Jónsmessuhátíðin á Árbæjarsafni sló í gegn: Gestir stigu hringdans undir fallegum fiðlutónum
Menning

Sænska Jóns­messu­há­tíðin á Árbæj­ar­safni sló í gegn: Gestir stigu hringdans undir fal­legum fiðlu­tónum

Fólk gerði sér glaðan dag á Árbæj­ar­safn­inu í dag en þar var boðið upp á Jóns­messu­há­tíð að hætti Svía. Midsommar stöngin fal­lega.Mynd: Björgvin Gunn­ars­son Þær Anneli Schöldström og Rebecka Karlsson skipu­lögðu sænskan Jóns­messu­fagnað í sam­starfi við Árbæj­ar­safn, Þjóð­dansa­fé­lags Reykja­víkur, Cornelis Vreeswijk-félagið og Sænska félagið á Íslandi en mæt­ingin var að sögn Anneli framar vonum, enda veðrið ekk­ert frá­bært. Hringdans var...
Sænsk Jónsmessuhátíð á Árbæjarsafni á sunnudaginn: „Ég finn fyrir miklum stuðningi“
Innlenthátíð

Sænsk Jóns­messu­há­tíð á Árbæj­ar­safni á sunnu­dag­inn: „Ég finn fyrir miklum stuðn­ingi“

Á sunnu­dag­inn 23. júní verður boðið upp á Jóns­messu­fagnað að hætti Svía á Árbæj­ar­safn­inu. Þær Anneli Schöldström og Rebecku Karlsson, skipu­leggja sænskan Jóns­messu­fagnað í sam­starfi við Árbæj­ar­safn, Þjóð­dansa­fé­lags Reykja­víkur, Cornelis Vreeswijk-félagið og Sænska félagið á Íslandi, sunnu­dag­inn 23. júní. Í við­burða­lýs­ingu á skemmt­un­inni á Facebook segir eft­ir­far­andi: „Komdu og fagn­aðu „svensk midsommar“/ Jóns­messu með okkur! Í sam­starfi við Árbæj­ar­safn og...
Kynnir þorraíspinna til sögunnar: „Fyrir unga fólkið …“
Menning

Kynnir þorra­í­spinna til sög­unnar: „Fyrir unga fólkið …“

Á meðan sumir kvarta yfir hlut­unum, hugsa sumir í lausnum. Þorrinn er geng­inn í garð með til­heyr­andi þorra­blótum um allt land, eins og sjá má á enda­lausum ljós­mynda- og mynd­skeiða­flaumi á sam­fé­lags­miðl­unum, þar sem oft má sjá mynd­skeið frá grín­at­riðum sem eng­inn skilur, sem ekki var á blót­inu sjálfu. Ein­hverjir hafa haft áhyggjur af því að þorra­mat­ur­inn sé ekki að...
Alþjóðleg bangsahátíð í Reykjavík – Sameinast um lífsgleði, samstöðu og samkennd
Menning

Alþjóð­leg bangsa­há­tíð í Reykja­vík – Sam­ein­ast um lífs­gleði, sam­stöðu og sam­kennd

Bangsa­fé­lagið stendur fyrir árlegri hátíð félags­ins Reykja­vík Bear dag­ana 31. ágúst til 3. sept­em­ber. Rúmlega 100 erlendir bangsar víðs­vegar úr heim­inum mæta til Íslands og fagna með Bangsa­fé­lag­inu. Reykja­vík bear hátíðin í ár er nokkuð stærri en í fyrra með tvö­falt fleiri miðum seldum en áður. Hátíðin hefur stækkað ár frá ári og hefur aldrei verið vin­sælli. Hátíð­ar­passar hafa verið...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza