Yazan Tamimi hefur verið fluttur aftur á Landspítalann en í nótt var hann fluttur á Keflavíkurflugvöll þar sem átti að senda hann af landi brott.

Hinn ellefu ára gamli Yazan Tamimi frá Palestínu, sem lögreglan sótti á Barnaspítala Hringsins í nótt og flutti á Keflavíkurflugvöll ásamt foreldrum hans, í þeim tilgangi að senda úr landi, hefur nú verið fluttur aftur á spítalann. Yazan er með taugahrörnunarsjúkdóminn Duchenne en brottvísun hans en fyrirhugaðri brottvísun hefur verið harðlega mótmælt og á það bent að brottvísunin brjóti í bága við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þá segir í læknisvottorði sem foreldrar Yazan hafa frá íslenskum lækni að jafnvel flugferð geti orðið Yazan að bana.
Albert Björn Lúðvígsson lögmaður Yazan sagði í samtali við RÚV að verið sé að flytja Yazan í lögreglufylgd aftur í Rjóðrið á Barnaspítalanum en ekki liggi fyrir hvort brottvísun hans verði framhaldið seinna í dag.

Samtökin No Borders Iceland boðuðu til mótmæla á Keflavíkurflugvelli í nótt vegna brottvísunarinnar en um tuttugu mættu á flugvöllinn rétt fyrir þrjú í nótt. Einn mótmælendanna, Guðbjörg Ása Jóns Guldudóttir sagði í samtali við Mannlíf að þegar það fréttist að það ætti að senda Yazan aftur á spítalann, hafi mótmælendur talið að verið væri að plata þau. „Við héldum að það væri verið að leika á okkur, við vorum þrjár komnar inn fyrir öryggisleitina. Við vorum að bíða eftir að þau kæmu út og að hliðinu en svo kom þetta smá saman í ljós. Það var ein sem náði að sjá á eftir þeim upp í bíl sem keyrði í átt frá flugvellinum.“ Aðspurð um ástæðu þess að Yazan var fluttur aftur á spítalann, segist hún ekki vita það en að ýmsar tilgátur séu á lofti. „Það eru ýmsar kenningar á lofti en maður veit ekki neitt. Það er spurning hvort þetta séu einhverjir spottar sem hefur verið kippt í eða hvort hann hafi hreinlega fengið áfall. Það er náttúrlega búið að þvæla barninu um hérna í alla nótt. Algjör viðbjóður.“


























Athugasemdir