„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna gruns um mansal á unglingsstúlkum: Önnur ólétt og hin HIV-smituð

Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna gruns um mansal á unglingsstúlkum: Önnur ólétt og hin HIV-smituð
Kefla­vík­ur­flug­völlur – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum hefur haft íslenskan karl­mann í haldi í eina viku vegna gríð­ar­lega umfangs­mik­illar rann­sóknar sem snýr meðal ann­ars að man­sali og skipu­lögðu smygli á fólki. Samkvæmt RÚV er grunur um að fleiri teng­ist mál­inu.

Sögðust vera dætur mannsins

Fram kemur í gæslu­varð­halds­úr­skurði Hér­aðs­dóms Reykja­víkur fyrir viku, að tvær ung­lings­stúlkur undir átján ára aldri, hafi komið til lands­ins með flugi 4. júlí 2023. Hafi þær sagst vera komnar til að heim­sækja föður sinn en það er mað­ur­inn sem síðar var hand­tek­inn og hnepptur í gæslu­varð­hald. Var hann ekki á land­inu á þeim tíma. Búið er að afmá upp­lýs­ingar um það hvaðan stelp­urnar voru að koma og hvaða þjóð­erni þær hafi gefið upp, úr úrskurð­inum sem birtur var á vef Lands­réttar í dag.

Samkvæmt frétt RÚV fletti lög­reglan stúlk­unum upp en að þá hafi komið i ljós að þeim hefði verið veitt dval­ar­leyfi sem börnum Íslend­ings. Þá var mað­ur­inn skráður faðir þeirra í kerfum íslenskra stjórn­valda. Sögðu þær að vinur föður þeirra væri mættur í flug­stöð­ina til að sækja þær og gáfu upp síma­númer hans. Reyndist það vera maður með ótíma­bundið dval­ar­leyfi á Íslandi. Stúlk­urnar voru færðar í úrræði á vegum barna­verndar Suð­ur­nesja­bæjar og dvöldu þær þar í nokkra daga sem fylgd­ar­laus börn en þegar mað­ur­inn kom aftur til lands­ins fóru þær til hans.

Grunur um slæmar aðstæður

Vitnað er í grein­ar­gerðar lög­reglu um málið í gæslu­varð­halds­úr­skurði hér­aðs­dóms en þar segir að lög­reglan sé með rök­studdan grun um að stúlk­urnar búi við slæmar aðstæður. Önnur þeirra sé barns­haf­andi en óvíst er með fað­ernið og hin stúlkan er HIV-smituð og á ungan son erlendis sem hún hefur ekki aðgang að nema í gegnum mann­inn sem nú situr í gæslu­varð­haldi.

Stúlk­urnar og mað­ur­inn voru látin gang­ast undir DNA-rann­sókn af Útlend­inga­stofnun en sú rann­sókn sýndi fram á að mað­ur­inn er ekki faðir þeirra. Í hús­leit lög­reglu á heim­ili manns­ins fyrir viku fund­ust skjöl sem stað­festu DNA-rann­sókn­ar­nið­ur­stöð­una og að hann hafi vitað áður en þær fengu dval­ar­leyfið, að hann væri ekki faðir þeirra.

Sennilega ekki einn að verki

„Það er grunur lög­reglu að varn­ar­að­ili sé vís­vit­andi og með skipu­lögðum hætti að blekkja íslensk stjórn­völd og gefa upp rangar upp­lýs­ingar í því skyni að fá dval­ar­leyfi fyrir aðila á fölskum for­sendum og [eftir atvikum] hag­nýta sér þau í man­sali og hagn­ist á því,“ er haft eftir lög­reglu í úrskurð­inum. „Þá er það einnig grunur lög­reglu að varn­ar­að­ili standi ekki einn að verki heldur njóti lið­sinnis, sam­starfs og [eftir atvikum] sam­vinnu ann­arra aðila.“

Í rök­stuðn­ingi lög­regl­unnar varð­andi gæslu­varð­halds­kröf­una kemur fram að rann­sóknin væri „mjög umfangs­mikil“, að til rann­sóknar væri grunur um man­sal, rangan fram­burð hjá stjórn­valdi, skjala­fals og eftir atvikum brot á útlend­inga­lögum, „s.s. skipu­lagt smygl á fólki“.

Bæði Hér­aðs­dómur og Lands­réttur féllust á að gæslu­varð­haldið haldi til klukkan fjögur í dag. Ekki hafa komið fram upp­lýs­ingar um það hvort gæslu­varð­haldið hafi verið fram­lengt eða hvort þess verði kraf­ist í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lögreglurannsókn

Telja þrautþjálfaðan leigumorðingja hafa drepið framkvæmdarstjórann: „Þetta er fagmaður“
HeimurLögreglurannsókn

Telja þraut­þjálf­aðan leigu­morð­ingja hafa drepið fram­kvæmd­ar­stjór­ann: „Þetta er fag­maður“

Morðið á fram­kvæmd­ar­stjóra UnitedHealthCare trygg­inga­fé­lag­inu í New York í gær, ber ein­kenni „reynds, vand­aðs og þjálfaðs atvinnumorð­ingja“, að sögn fyrr­ver­andi full­trúa Alrík­is­lög­regl­unar (e. FBI). Terry Rankhorn sagði Kay Burley á Sky News Break­fast að upp­tökur af skotárásinni í New York-borg, sem lög­reglan lítur á sem skipu­lagða skotárás, hafi verið „hroll­vekj­andi“. Fram­kvæmda­stjóri UnitedHealthcare, Brian Thompson, 50, varð fyrir laun­sátri klukkan 6:45...
Búið að endurheimta hluta af Elko-þýfinu: „Við erum bara á fullu að yfirheyra og tengja saman fólk“
Innlent

Búið að end­ur­heimta hluta af Elko-þýf­inu: „Við erum bara á fullu að yfir­heyra og tengja saman fólk“

Lög­regl­unni hefur tek­ist að end­ur­heimta hluta af þeim verð­mætum sem stolið var úr tveimur Elko versl­unum í síð­ustu vikur. RÚV segir frá því að búið sé að ná hluta af þeim verð­mætum sem stolið var úr versl­unum Elko í Skeif­unni og á Dalvegi í síð­ustu viku en verð­mætum fyrir tugum millj­óna var stolið. Talið er að fleiri aðilar teng­ist mál­inu...
Hæstaréttarlögmaður vill láta rannsaka starfshætti lögreglunnar á Norðurlandi eystra
InnlentLögreglurannsókn

Hæsta­rétt­ar­lög­maður vill láta rann­saka starfs­hætti lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra

Jakob R. Möller hæsta­rétt­ar­lög­maður segir síma­stuldar- og byrl­un­ar­mál skip­stjór­ans Páls Stein­gríms­sonar vera stórfurðu­legt og að rann­saka þurfi starfs­hætti lög­erglunnar á Norð­ur­landi eystra. Í sam­tali við Morg­un­blaðið segir Jakob R. Möller hæsta­rétt­ar­lög­maður að lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hafi áttað sig á því alltof seint „að hún væri í tómri vit­leysu með rann­sókn­ina“ í máli Páls Stein­gríms­sonar. Segir hann að útskýr­ingar lög­regl­un­anr...
Nafn stúlkunnar sem fannst látin á sunnudagskvöld
InnlentLögreglurannsókn

Nafn stúlkunnar sem fannst látin á sunnu­dags­kvöld

Stúlkan sem fannst látin á sunnu­dags­kvöld hét Kolfinna Eldey Sig­urð­ar­dóttir. Kolfinna Eldey var 10 ára og var búsett í Reykja­vík. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni. Faðir hennar hringdi á lög­regl­una á sunnu­dags­kvöld og sagð­ist hafa banað dóttur sinni. Var hann þá staddur á Krýsur­vík­ur­vegi en þegar lög­reglan og sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra mætti á vett­vang fannst Kolfinna þar látin. Faðir...
Sá grunaði í Selfossmálinu lést í Taílandi – Engin ákæra gefin út
InnlentLögreglurannsókn

Sá grun­aði í Sel­foss­mál­inu lést í Taílandi – Engin ákæra gefin út

Maðurinn sem grun­aður er um að hafa banað Sofiu Sarmite Kol­senikovu á Selfossi í apríl í fyrra, lést í vik­unni. Rannsókn á and­láti Sofiu Sarmite Kol­senikovu verður lokið þó svo að ljóst sé að ákæra verði ekki gefin út á hendur manni á þrí­tugs­aldri, sem grun­aður var um að vera valdur að dauða hennar. Í sam­tali við Vísi stað­festir Karl...
Ósamstæðir sokkar leystu áratuga gamalt mannshvarf: „Hann var myrtur á grimmilegan hátt“
HeimurLögreglurannsókn

Ósam­stæðir sokkar leystu ára­tuga gam­alt manns­hvarf: „Hann var myrtur á grimmi­legan hátt“

Fimmtíu og sex ára gam­alt mann­hvarfs­mál hefur nú verið leyst í Derby-skíri í Englandi. Námu­verka­mað­ur­inn og dúfna­kapp­flugs­mað­ur­inn Alfred Swinscoe, 54 ára, týnd­ist í jan­úar 1967 eftir að hann hafði látið son sinn Gary fá pen­ing fyrir síð­ustu pönt­un­inni á Miner´s Arms Pub bar­inn í Pinxton í Derby-skíri. Alfred rétti syni sínum pen­ing­inn og skrapp á úti­kamar­inn. Hann kom aldrei aftur....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins