„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lögreglan staðfesti að engin kæra hafi borist á hendur Sóloni: „Þetta gæti ekki verið skýrara“

Lögreglan staðfesti að engin kæra hafi borist á hendur Sóloni: „Þetta gæti ekki verið skýrara“
Lög­reglan við Hverf­is­götu – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Lög­fræð­ingur lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festi átta dögum eftir and­lát Sólons Guð­munds­sonar að engin kæra eða kvörtun hefði borist emb­ætt­inu vegna meintra brota Sólons gegn sam­starfs­konum hans.

Vísir segir frá því í dag að fimm konur sem starfa eða hafa starfað hjá Icelandair segj­ast hafa verið beittar ofbeldi af hálfu Sólonar Guð­munds­sonar, sam­starfs­manns þeirra hjá félag­inu. Þar kemur fram að ein þeirra hafi lagt fram kæru á hendur honum fyrir nauðgun. Hefur Vísir þetta eftir yfir­lýs­ingu Vil­hjálms Vil­hjálms­sonar lög­manns sem gætir hags­muna kvenn­anna. Í yfir­lýs­ing­unni segir að ofbeldið hafi ýmist verið and­legt eða lík­am­legt, eða hvoru tveggja og megi meðal ann­ars setja undir atkvæði almennra hegn­ing­ar­laga um nauðgun. Taka skal fram að nafn Sólons er ekki nefnt í yfir­lýs­ing­unni, heldur talað um sam­starfs­mann kvenn­anna. Ein þeirra lagði fram kæru á hendur Sóloni fyrr nauðgun, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu Vil­hjálms en nauðg­unin er sögð hafa verið framin í lok júlí á þessu ári. Brota­þoli hafi í kjöl­farið leitað til sál­fræð­ings sem hafi sent hana á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis. Icelandair hafi síðan verið upp­lýst um hið meinta brot um miðjan ágúst og stuttu síðar hafi hún lagt fram kæru hjá lög­reglu.

Þann 2. sept­em­ber fékk fjöl­skyldu­með­limur Sólons stað­fest­ingu frá Kolbrúnu Jónu Pét­urs­dóttur, lög­fræð­ingi stjórn­sýslu­deildar lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, um að engin kæra né kvörtun á hendur Sóloni hafi borist emb­ætt­inu en átta dögum áður hafði Sólon framið sjálfs­víg en hann hafði verið neyddur til að láta af störfum hjá Icelandair stuttu áður að sögn fjöl­skyldu hans. Hún krefst þess að and­lát hans verði rann­sakað.

Í tölvu­póst­inum er það tekið skýrt fram að Sólon hafi ekki verið eða sé til rann­sóknar vegna saka­máls sem hann var aðili að. „Það hefur ekki borist nein kæra eða kvörtun á hendur Sóloni til lög­reglu.“

Skjáskot af tölvu­póst­inum.

„Þetta gæti ekki verið skýr­ara,“ segir Hödd Vil­hjálms­dóttir tals­maður fjöl­skyldu Sólons í sam­tali við Mannlíf, aðspurð um stað­fest­ingu lög­fræð­ings lög­regl­unnar.

Ekki náð­ist í Kolbrúnu Jónu Pét­urs­dóttur við gerð frétt­ar­innar.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og net­spjall Rauða kross­ins 1717.is. Opið allan sól­ar­hring­inn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráð­gjöf í síma 552-2218, allan sól­ar­hring­inn. Net­spjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkr­un­ar­fræð­ingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi má fá stuðn­ing í sorg hjá Sorg­ar­mið­stöð og hjá Pieta sam­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins