„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ósætti vegna úthýsingu Glímudeildar Njarðvíkur: „Staðfestir illvilja þess einstaklings“

Ósætti vegna úthýsingu Glímudeildar Njarðvíkur: „Staðfestir illvilja þess einstaklings“
Njarðvík

Mikill styr hefur staðið um ákvörðun Íþrótta- og tóm­stunda­full­trúa Reykja­nes­bæjar um að úthýsa Glímu­deild Njarð­víkur úr bar­daga­höll­inni á Iða­völlum. Í gær birt­ist færsla á Facebooksíðu Glímu­deild­ar­innar þar sem farið er ofan í saumana á mál­inu.

Færsla sem birt­ist á Facebook-síðu Glímu­deildar Njarð­víkur í gær hefur vakið athygli en þar er sagt frá því hvernig Íþrótta- og tóm­stunda­full­trúi Reykja­nes­bæjar með stuðn­ingi Íþrótta- og tóm­stunda­ráðs bæj­ar­ins hafi „fengið sínu fram“ og loka á afnot Glímu­deild­ar­innar af Bar­daga­höll­inni á Iða­völlum. DV tal­aði við lög­mann Glímu­deild­ar­innar í ágúst síð­ast­liðnum en hann tal­aði um „stjórn­sýslu­legt ein­elti“ en DV hefur síð­ustu ár flutt nokkrar fréttir af deilum félags­ins.

Færslan hefst á eft­ir­far­andi orðum:

„Möl­brotin stjórn­sýsla Reykja­nes­bæjar

Íþrótta- og tóm­stunda­full­trúi Reykja­nes­bæjar, með dyggum stuðn­ingi Íþrótta- og tóm­stunda­ráðs (ÍT-ráðs) hefur nú fengið sínu fram­gengt og lokað fyrir afnot Glímu­deildar Njarð­víkur að bar­daga­höll­inni á Iða­völlum. Þar með er barna- og ung­linga­starfi deild­ar­innar lokið í bili, sem hefur verið gjald­frjáls í rúm­lega 13 ár og þjálf­arar starfað þar í sjálf­boða­vinnu. Fjöl­margir hafa komið að starfi deild­ar­innar á þessum tíma og almenn ánægja verið með starfið. Deildin er sú stærsta sinnar teg­undar hér á landi og hefur eign­ast fjöl­marga Íslands­meist­ara, Norð­ur­landa­meist­ara og heims­meist­ara og einnig staðið fyrir glímu­mótum og öðrum við­burðum í Reykja­nesbæ fyrir alla ald­urs­hópa. Fyrir síð­ustu atlögu Íþrótta- og tóm­stunda­full­trúa voru um 100 iðk­endur á öllum aldri skráðir í deild­ina.“

Einnig er sagt frá því í færsl­unni að Íþrótta- og tóm­stunda­full­trúi Reykja­nes­bæjar hafi neitað Glímu­deild­inni um lán á dýnum sem voru keyptar sér­stak­lega fyrir deild­ina og er sér­merkt henni, þegar í ljós kom að rýma þyrfti æfing­ar­hús­næðið.

„Vilja ekki lána dýn­urnar

Þegar í ljós kom að Glímu­deildin þyrfti að rýma æfinga­hús­næðið, var óskað eftir að fá að taka dýn­urnar sem keyptar voru sér­stak­lega fyrir deild­ina. Þá væri hægt að halda barna- og ung­linga­starf­inu áfram þar til annað var­an­legt hús­næði fynd­ist. Dýnurnar eru merktar deild­inni og styrkt­ar­að­ilum hennar. Reykja­nes­bær á tvo júd­óvelli (dýnu­sett) sem ekki eru í notkun og einn glímu­völl. Beiðni um að fá að halda dýn­unum um sinn, var hafnað af Íþrótta- og tóm­stunda­full­trúa og það stað­festir ill­vilja þess ein­stak­lings í garð deild­ar­innar. Hann hót­aði einnig að kæra deild­ina fyrir þjófnað, ef umræddar æfinga­dýnur yrðu teknar úr núver­andi hús­næði við Iðavelli.“

Í færsl­unni er einnig sagt frá því að lög­reglan hafi verið kölluð til þegar iðk­endur deild­ar­innar mættu til að rýma æfinga­hús­næðið og sækja hluti sem eru í einka­eigu. Samkvæmt færsl­unni kærði Íþrótta og tóm­stunda­full­trú­inn til­tekt­ina til lög­reglu.

„Lög­reglan mætir á stað­inn

Iðkendur glímu­deild­ar­innar komu nýverið til að rýma æfinga­hús­næðið og sækja hluti sem til­heyrði deild­inni og eru í einka­eigu. Meðal ann­ars þurfti að losa

æfinga­búnað úr loftum og af veggjum. Á meðan verið var að losa þessa hluti, sem eru úr járni og stórir og þungir, var dýn­unum rúllað upp til að koma í veg fyrir skemmdir á þeim. Á meðan á þessu stóð hringdi íþrótta- og tóm­stunda­full­trúi, í sam­ráði við for­seta bæj­ar­stjórnar (að hans sögn), og kærði til­tekt­ina til lög­reglu. Lög­reglan kom á stað­inn og sagði að íþrótta og tóm­stunda­full­trúi hafi verið að fylgj­ast með til­tekt­inni í örygg­is­mynda­vélum. Iðkendur fengu ekki að klára að losa æfinga­að­stöð­una en fengu það viku seinna.“

Þá fær bæj­ar­ráð Reykja­nes­bæjar einnig á bauk­inn í færsl­unni en þar segir að bæj­ar­ráðið hafi ítrekað hunsað beiðni stjórnar Glímu­deild­ar­innar um fund vegna máls­ins.

„Hunsun og ófag­leg afgreiðsla opin­berra mála

Bæjarráð hefur ekki svarað ítrek­uðum beiðnum stjórnar Glímu­deildar um að fá fund til að gera grein fyrir sínum sjón­ar­miðum. Þar af leið­andi hafa allar ákvarð­anir Reykja­nes­bæjar byggst á ein­hliða mál­flutn­ingi hags­muna­að­ila og róg­burði. Þegar lög­maður glímu­deildar og Umboðs­maður Alþingis hafa óskað eftir rök­stuðn­ingi vegna stjórn­sýslu­á­kvarð­ana Reykja­nes­bæjar, hefur þeim erindum annað hvort ekki verið svarað, eða seint og illa.“Fyrr­ver­andi for­seti bæj­ar­stjórnar er sögð í færsl­unni hafa játað að hafa ekk­ert vitað af mál­inu þegar hún sam­þykkti funda­gerð ÍT um að taka æfing­ar­hús­næðið af Glímu­deild­inni.

„Forseti bæj­ar­stjórnar vissi ekk­ert – en greiddi samt atkvæð­i­Stjórn glímu­deild­ar­innar átti nýlega fund með fyrr­ver­andi for­seta bæj­ar­stjórnar, sem sam­þykkti fund­ar­gerð ÍT ráðs um að taka æfinga­hús­næðið af glímu­deild­inni. Á þeim fundi ját­aði hún að hún vissi ekk­ert um málið. Sagðist ekki hafa neinar skýr­ingar á fram­komu stjórn­sýsl­unnar gagn­vart glímu­deild­inni og kann­að­ist ekk­ert við sjón­ar­mið glímu­deild­ar­innar. Að þessu sögðu veltir maður fyrir sér hvort starfs­menn og aðrir full­trúar Reykja­nes­bæjar þekki almennt ekki lög um opin­bera stjórn­sýslu og geri sér grein fyrir sinni ábyrgð í þeim efnum?“

Þá er bent á í færsl­unni það sem höf­undur hennar kallar „hags­munda­tengsl og klíku­skap“ en þar segir frá að Glímu­deild Njarð­víkur hafi óskað eftir því að verða sam­þykkt sem félag undir ÍRB undir nýju nafni, Íþrótta­fé­lagið Sleipnir en því hafi verið hafnað á aðal­fundi.

„Hags­muna­tengsl og klíku­skapur

Glímu­deild Njarð­víkur til­heyrði áður UMFN en óskaði síðar eftir því að verða sam­þykkt sem félag innan ÍRB undir nýju nafni: Íþrótta­fé­lagið Sleipnir, eftir að for­maður UMFN reyndi að leysa eignir Glímu­deildar til aðal­stjórnar UMFN í trássi við lands­lög og lög UMFN. Því var hafnað á síð­asta aðal­fundi og útgefið að Íþrótta­fé­lagið Sleipnir yrði aldrei sam­þykkt því að stjórn­ar­menn Sleipnis hefðu verið í slæmum sam­skiptum við ÍT-ráð og fleiri. Þessi yfir­lýs­ing gengur í ber­högg við lög ÍRB þar sem stendur:„3. grein.

Öll íþrótta­fé­lög í Reykja­nesbæ, sem hafa íþróttir á stefnu­skrá sinni, eiga rétt á að ger­ast aðilar að ÍRB, enda full­nægi þau þeim skil­yrðum sem á hverjum tíma gilda um frjálsa íþrótta­starf­semi og lögum ÍSÍ.

4. grein.Óski félag eftir að ger­ast aðili að ÍRB, skal það senda stjórn ÍRB umsókn sína ásamt lögum félags­ins, skýrslu um stofndag þess og ár, stjórn þess og tölu félags­manna. Uppfylli félagið inn­töku­skil­yrði þess­ara laga, öðl­ast það rétt­indi í banda­lag­inu eftir að umsókn þess er sam­þykkt. Stjórn ÍRB úrskurðar um inn­töku nýs félags, en árs­þing stað­festir“.

Með því að því að Íþrótta­fé­laglið Sleipnir fái að vera aðili að ÍRB, er ÍRB að brjóta sínar eigin reglur, sam­kvæmt ofan­greindu. Þegar betur er að gáð þá er ÍRB nú að mestu skipað starfs­mönnum íþrótta­fé­lags Kefla­víkur og núver­andi og fyrr­ver­andi með­limum ÍT-ráðs. Síðan eru náin fjöl­skyldu- og vina­tengsl einnig í þeim hópi við hátt­setta starfs­menn Reykja­nes­bæjar. Ákvarð­ana­tökur og umfjall­anir verða aldreif fag­legar í svona umhverfi.“

Að lokum segir frá næstu skrefum deild­ar­innar:

„Næstu skref­Full­orð­ins­hópur Sleipnis er kom­inn með æfinga­að­stöðu hja vina­fé­lagi í íþrótta­húsi Bjarkar í Hafn­ar­firði. Æfingar á mánu­dögum og fimmtu­dögum kl. 20. allar upp­lýs­ingar verða á nýrri æfinga­töflu sem kemur fram í októ­ber.

Barna- og ung­linga­starfið fer því miður ekki af stað fyrr en nýtt hús­næði fæst frá Reykja­nesbæ eða styrkt­ar­að­ilum.“

Mannlíf heyrði í Hafþóri Barða Birg­is­syni, Íþrótta- og tóm­stunda­full­trúa Reykja­nes­bæjar vegna færsl­unnar en hann neit­aði að tjá sig en benti á Friðþjóf Helga Karlsson, for­mann Íþrótta- og tóm­stunda­ráðs Reykja­nes­bæjar en ekki náð­ist í hann við gerð frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins