„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir ákvörðun um kæru á hendur Sóloni tekna fyrir andlátið

Segir ákvörðun um kæru á hendur Sóloni tekna fyrir andlátið
Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður.

Hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son segir nú að ákvörð­unin um að kæra flug­mann­inn Sólon Guð­munds­son fyrir nauðgun, hafi verið tekin áður en hann framdi sjálfs­víg.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður lagði fram nauðg­un­ar­kæru fyrir hönd skjól­stæð­ings síns á hendur Sóloni Guð­munds­syni, þremur dögum eftir and­lát Sólons eða þann 28. ágúst. Samkvæmt tíma­línu sem hann sendi á Vísi tók hann málið að sér 25. ágúst, sama dag og Sólon tók sitt eigið líf. Segir hann að ákvörðun um að kæra Sólon hafi verið tekin áður en fregnir bár­ust af and­láti hans en kæran lögð fram nokkrum dögum síðar. Segir Vil­hjálmur að konan hafi verið boðuð stuttu síðar í skýrsla­töku en vegna mis­taka við bókun hjá lög­regl­unni hafi skýrsla­takan verið færð til 2. októ­ber.

Mál Sólons hefur vakið mikla athygli í fjöl­miðlum eftir að Hödd Vil­hjálms­dóttir tals­maður fjöl­skyldu hans kom fram og sagði frá því og kröfu for­eldra hans um að meint ein­elti á hendur Sóloni verði rann­sakað. Vegna umfjöll­un­ar­innar sendi Vil­hjálmur frá sér yfir­lýs­ingu þar sem sagði meðal ann­ars að hið meinta nauðg­un­ar­brot hafi átt sér stað í lok júlí á þessu ári. Hafi konan í beinu fram­haldi leitað til sál­fræð­ings sem sendi hana á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis.

„Kon­an hafi svo upp­lýst Icelanda­ir um hið meinta brot um miðjan ág­úst og stuttu síðar lagt fram kæru hjá lög­reglu,“ eins og sagði í yfir­lýs­ingu Vil­hjálms.

Samkvæmt DV leit­uðu for­eldrar Sólons til Vil­hjálms þann 27. ágúst og báðu hann að taka að sér mál lát­ins sonar síns. Hann hafi neitað á grund­velli hags­muna­á­rekstra og benti þeim á annan lög­mann. Í sam­tali við Mannlíf fyrir þremur dögum sagð­ist Vil­hjálmur ekki hafa vitað af and­láti Sólons þegar kæran var lögð fram þann 28. ágúst. Þær full­yrð­ingar stand­ast hins vegar ekki, miðað við fréttir DV og Vísis. Vil­hjálmur neit­aði að tjá sig um málið við Mannlíf.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Mannlífs var lög­regl­unni ekki kunn­ugt um kæru á hendur Sóloni 2. sept­em­ber en hugs­an­lega er það vegna fyrr­greindra mis­taka við bókun.

Sjá einnig: Lög­reglan stað­festi að engin kæra hafi borist á hendur Sóloni: „Þetta gæti ekki verið skýr­ara“

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og net­spjall Rauða kross­ins 1717.is. Opið allan sól­ar­hring­inn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráð­gjöf í síma 552-2218, allan sól­ar­hring­inn. Net­spjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkr­un­ar­fræð­ingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi má fá stuðn­ing í sorg hjá Sorg­ar­mið­stöð og hjá Pieta sam­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kærumál

Kæra MAST fyrir að veita Arnarlaxi rekstrarleyfi: „Stofnanir hafa ekki sjálfstæðan vilja“
Innlent

Kæra MAST fyrir að veita Arn­ar­laxi rekstr­ar­leyfi: „Stofn­anir hafa ekki sjálf­stæðan vilja“

Íslenski nátt­úru­vernd­ar­sjóð­ur­inn, auk NASF, land­eig­endur og íbúar á Vest­fjörðum hafa nú kært útgáfu MAST á rekstr­ar­leyfi handa Arn­ar­laxi fyr sjó­kví­elda á laxi í Ísa­fjarð­ar­djúpi. „Við hjá Íslenska nátt­úru­vernd­ar­sjóðnum höfum ásamt NASF, land­eig­endum og íbúum á Vest­fjörðum kært til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála útgáfu Mat­væla­stofn­unar (MAST) á rekstr­ar­leyfi handa Arn­ar­laxi fyrir sjó­kvía­eldi á laxi í utan­verðu Ísa­fjarð­ar­djúpi, út af Drangs­vík, Eyjahlíð...
Einar neitar ekki að vera sá sem kærði Maríu og Semu: „Einhver hlýtur að vera með lekt þak hjá sér“
InnlentKærumál

Einar neitar ekki að vera sá sem kærði Maríu og Semu: „Einhver hlýtur að vera með lekt þak hjá sér“

Einar S. Hálf­dána­son, hæsta­rétta­lög­maður og faðir Diljár Mistar, þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, neitar að segja hvort hann sé huldu­mað­ur­inn sem kært hefur Semu Erlu Serdaroglu og Maríu Lilju Kemp. Konurnar hafa nú verið kærðar fyrir að beita mútum við að bjarga palest­ínskum fjöl­skyldum sem fengið höfðu dval­ar­leyfi hér á landi, frá bráðri lífs­hættu, með því að koma þeim yfir landa­mærin til Egypta­lands...
Aron og Eggert hafna sekt: „Reikna með að málið verði fellt niður“
Innlent

Aron og Eggert hafna sekt: „Reikna með að málið verði fellt niður“

Sagt var frá því í dag að Aron Einar Gunn­ars­son lands­liðs­fyr­ir­liði og Eggert Gunnþór Jónsson, leik­maður FH, hefðu gefið skýrslu hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Eru þeir sak­aðir um grófa nauðgun í Kaup­manna­höfn fyrir 11 árum. Einar Oddur Sig­urðs­son, lög­maður þeirra, sendi stutta yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla í dag fyrir hönd þeirra beggja, þar sem hann hefur ekki haft mögu­leika á að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins