„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

KSÍ segir áfengissölu sambandsins vera jákvæða: „Sjálfsögð þjónusta við fólkið“

KSÍ segir áfengissölu sambandsins vera jákvæða: „Sjálfsögð þjónusta við fólkið“
Eysteinn Pétur Lárusson, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, og Salvör Nordal, umboðs­maður barna – Myndin er sam­sett

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands vill halda áfram að selja áfengi á lands­leikjum sam­kvæmt Eysteini Pétri Lárus­syni, fram­kvæmda­stjóra KSÍ.

Samkvæmt umboðs­manni barna kall­aði Reykja­vík­ur­borg eftir umsögnum frá hags­muna­að­ilum í sumar varð­andi hvort breyta ætti eða fella niður reglur borg­ar­innar sem banna áfeng­is­sölu í íþrótta­mann­virkjum.

Selt áfengi frá 2022

„Áfeng­is­veit­ingar í íþrótta­mann­virkjum í tengslum við íþrótta­við­burði eru bann­aðar. Undir þetta ákvæði falla áfeng­is­veit­ingar fyrir eða eftir íþrótta­við­burð eða á meðan á honum stendur,“ segir í regl­unum en KSÍ hefur frá því árinu 2022 selt áfengi á knatt­spyrnu­lands­leikjum.

Umboðs­maður barna sendi frá sér umsögn um málið þar sem segir að breyt­ing eða nið­ur­fell­ing á þessum reglum sam­rým­ist ekki bestu hags­munum barna. „Umboðs­maður barna telur alls ekki að fella eigi ákvæði 11. gr. niður eða breyta því. Ákvæðið leggur bann við veit­ingu áfengis í íþrótta­mann­virkjum og telur umboðs­maður ekki undir neinum kring­um­stæðum að breyt­ingar, sem hafa í för með sér aukna áfeng­is­neyslu eða áfeng­is­veit­ingar á íþrótta­við­burðum þar sem börn eru við­stödd eða taka þátt, geti sam­rýmst þeirra bestu hags­munum.“

Fara eftir lögum

Mannlíf sendi nokkrar spurn­ingar á Eystein Pétur Lárusson, fram­kvæmda­stjóra KSÍ, sem snúa að þessu máli en þeim var ekki svarað beint. Meðal þess sem spurt var um var hvernig það sam­ræm­ist lýð­heilsu sjón­ar­miðum KSÍ að selja áfengi og hvort KSÍ hafi sent frá sér umsögn um málið og hvað hafi staðið í þeirri umsögn.

„Staðan er sú að vall­ar­gestir hafa getað keypt sér bjór á lands­leikjum síðan haustið 2022. Reynslan af því hefur verið mjög jákvæð og mikil ánægja með þá þjón­ustu og þann val­kost. KSÍ hefur sem fyrr sótt um við­eig­andi leyfi til þar til bærra aðila, það stytt­ist í næstu lands­leiki og við bíðum nið­ur­stöðu. Við förum auð­vitað bara að lögum og höfum fulla trú á því að leyfið verði veitt, eins og á ýmsum öðrum við­burðum í Reykja­vík og víðar, eins og til dæmis tón­leikum, enda sjálf­sögð þjón­usta við fólkið sem sækir við­burð­ina,“ sagði fram­kvæmda­stjór­inn í svari sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins